Vikan - 09.12.1971, Side 25
MOTLEIKARINN
Ali MacGraw var mótleikari Ryans í
kvikmyndinni „Love Story", sem
hefur verið sýnd viS metaðsókn um allan
heim.
Ekkjumaðurinn ungi, Oliver Barret
IV. úr „Love Story“, öðru nafni Ryan
O'Neal, er nú að skilja við aðra eigin-
konu sína. Hversvegna kvennagullið
vill skilja við konu sína og soninn
Patrick, liggur ekki ljóst fyrir. Ryan
átti það til að verða ástfanginn af
meðleikurum sínum og tvær leikkonur
hafa fylgt honum að altarinu. Fyrri
eiginkona var hin glæsilega leikkona
Joanna Moore. Það slitnaði upp úr því
hjónabandi, þegar Leigh Tayler-Young
var ráðin til að leika á móti honum í
sjónvarpssyrpunni „Peyton Place“, þar
sem hann lék eitt af aðalhlutverkun-
um. Það hafði reyndar hrikt í stoðum
hjónabands hans og Joönnu áður,
vegna Miu Farrow, Barböru Perkins
og annarra. Nokkru fyrir fæðingu son-
arins Patricks, kvæntist hann Leigh,
móðurinni. Það er ótrúlegt hve mót-
leikari hans í „Love Story“, Ali Mac
Graw, er lík Leigh Táyler-Young, en
ekkert bendir samt til að það geti ver-
ið orsök skilnaðarins. Ali MacGraw
býr í mjög hamingjusömu hjónabandi
með Bob Evans, sem var framleiðandi
að kvikmyndinni „Love Story“.
Leikkonan Leigh Tayler-Young fæddi Ryan soninn Patrick, nokkru fyrir
brúðkaup þeirra fyrir þrem árum.
49. TBL. VIKAN 25