Vikan


Vikan - 09.12.1971, Blaðsíða 43

Vikan - 09.12.1971, Blaðsíða 43
sekt mína! Ég gaf mig á vald Muhammads, vegna þess að það var eina leiðin til að komast inn í þessa höll, ég átti ekki annarra kosta völ! — Og Brézé? Hafðirðu ekki annarra kosta völ þá? Catherine dró djúpt andann. Ef hann ætlaði að fara að grafa allt upp, þá yrði þetta löng og hörð barátta! En hún þröngv- aði sér til að láta það ekki á sig fá og svaraði rólega: — Hvað sem þú hefur heyrt, þá hefur Brézé aldrei verið elskhugi minn! Hann vildi kvænast mér. Og um stund fann ég hjá mér freistingu til þess. Það var eftir fall de Tre- moilles og mér fannst ég alltof þreytt til að halda áfram þessu lífi. Ég var í gríðarlegri þörf fyrir frið, blíðu og vernd.. Þú getur aldrei látið þig dreyma hvernig vorið í fyrra var og hvað sigur okkar kostaði mig! Hefði ekki Brézé bjargað mér, þá hefði ég verið tætt í sundur af böðlum Dame de Tremoille. Hún þagnaði um stund, til að láta sársaukann, sem þessum minningum var samfara, líða hjá. Svo hélt hún dauflega áfram: — Brézé hjálpaði mér, bjargaði mér frá dauðum, verndaði mig og hjálpaði mér til að ná hefndum. Hann barð- ist fyrir minningu þína, hann hélt að þú værir látinn, hann sá ekkert rangt í því að vilja kvænast mér. Hann er góður og tryggur maður . . , — Þú verð hann líka hraust- lega! tók Arnaud fram í fyrir henni með biturri rödd. — Ég er undrandi að þú skyldir standast töfra hans . . . — Það var vegna þess að mér var ekki leyft það! sagði Cath- erine, sem var að missa taum- hald á sér aftur.og vildi viður- kenna af hreinskilni hvað fyr- ir hafði borið. — Hefði ekki Bernard de Armanac komið á milli, þá er ekkert sennilegra en að ég hefði tekið bónorði hans. En ég sver við Guð að þegar hann fór til Montsalvy til að sækja bannfæringarskjal- ið, þá hafði Pierre de Brézé enga ástæðu til að halda að ég ætlaði að giftast honum. Það var þegar ég frétti um þessa framhleypni hans að ég rauf al- veg sambandið við hann. — Þetta er allt ósköp hug- næmt, sagði riddarinn þurrlega. — Og hvað gerðir þú eftir þenn- an skilnað ykkar? Catherine varð að taka á allri sinni þolinmæði, til að æpa ekki af bræði. Þessar yfir- heyrslur Arnauds gerðu hana frávita af reiði. Hann lék þetta hlutverk bróður, sem vill hreinsa heiður fjölskyldunnar, of vel, þar sem hann krafðist svara, án nokkurrar miskunn- ar, eins og árin sem þau höfðu átt saman, hefðu alls ekki ver- ið til. Jafnvel bréfið, sem hann hafði skrifað henni, þegar hann yfirgaf Montsalvy, hafði ekki sýnt svona mikið sært stolt og biturleika . . . Það hafði verið yndislegt bréf, fullt ástar. Það gat verið að hann hafi litið mildari augum á lífið, þegar hann sjálfur hélt að ekkert væri framundan, annað en öm- urleiki og dauði. En nú, þegar Arnaud hafði endurheimt heils- una og lífið, var eins og hann yrði aftur einstrengingslegur og að hin gamla þrjózka og heift, sem svo oft hafði orsakað henni sársauka, væri nú búin að ná valdi yfir honum. ☆ VARÐ MAÐURINN VITSMUNAVERA... Framhald af bls. 14. hann „kynferðislegra áhrifa“ var. Þessi tilraun olli þó ekki mestu um að sannfæra Maerth, heldur „þessi svokölluðu vís- indi“, sem hann annars talar um af heldur lítilli virðingu. Mannfræðingar hafa sem sé veitt því athygli, að mjög margar höfuðkúpur frá fyrstu tíð mannsins, sem fundizt hafa, eru með götum, sem greinilega hafa ekki orðið til af sjálfu sér. Tilraun, sem bandarískir líf- fræðingar nýlega gerðu, hefur gert kenningu Maerths eitthvað sennilegri. Líffræðingar þessir tömdu fyrir nokkrum árum nokkur dýr og fæddu síðan ótamin dýr sömu tegundar á heilum þeirra. Skepnurnar sýndu þegar aukna greind, rétt 49. TBL. VIKAN 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.