Vikan


Vikan - 09.12.1971, Qupperneq 45

Vikan - 09.12.1971, Qupperneq 45
eins og þær hefðu með heila- átinu beinlínis bætt við sig greind hinna dýranna. Maerth efast þó um, að vísindamenn þessir þori að draga réttar ályktanir af rannsóknum sín- um opinberlega, af ótta við að mannkynið verði ekkert hrifið er það heyrir „hinn hræðilega sannleika" um upphaf hins skyni gædda manns. Ekki gekk þessi gáfnavöxtur andskotal'aust, segir Maerth. Af öllu heilaátinu og greindarvext- inu stækkaði heili manna svo ört, að hann hætti að komast þægilega fyrir í höfuðkúpunni. Afleiðingin varð hræðilegur höfuðverkur, sem allt mann- kyn var sárþjáð af í ein fimm- tíu þúsund ár. Þessi þrýstingur á heilann hafði í för með sér að græðgi manna í heila og greind hvarf, að undanteknum fáeinum mannætum, sem enn eru til og hafa dregizt ein tvö hundruð þúsund ár aftur úr í þróuninni. Kenning Maerths er raunar syndafallssagan úr Fyrstu Mósebók, að vísu sett fram á miklu grófari hátt. í staðinn fyrir eplið af skilningstré góðs og ills étur maðurinn heila ná- ungans, en árangurinn verður sá sami, yfirburðagreind og um leið erfðasynd, því að auðvita^ er það vondslegur hlutur að drepa náunga sinn og borða úr honum heilann. Manninum var refsað með því að heili hans varð ofvaxinn og sjúkur, að hann losnaði úr samræmi við náttúruna. Siðan hefur saga mannkynsins verið eirðarlaus en algerlega árangurslaus leit að því samræmi. Meira að segja hefur ástandið síversnað; of- fjölgun, mengun og atómvopn hafa þegar leitt mannkynið fast að höggstokknum. Eina hugsanlega björgin, heldur Maerth áfram, er að mannkynið tileinki sér nýja lífsheimspeki, þar sem mest áherzla sé lögð á hógværð og kæruleysi um veraldargæði. Vesturlönd séu mjög djúpt sokkin í viðurstyggilega efnis hyggju, sérstaklega Bandarík- in, sem Maerth kallar „heila- lausa risann“. Hann hugsar sér að villan við Como-vatn verði miðstöð, þar sem spekingar víða að geti í næði og friði hugsað, rökrætt og ræktað hug sinn í leit að ráðum til bjargar aumingja heiminum. Lífsferill þessa sjálfmenntaða heimspekings, mannfræðings og heimsfrelsara hefur verið nokk- uð viðburðaríkur. Hann barð- ist í ungverska flughernum í heimsstyrjöldinni síðari, lenti í einhverju klandri við yfirboð- ara Sína og var handtekinn af Gestapo. Franskir hermenn leystu hann úr haldi í stríðs- lok. Þá fór hann til Ítalíu og vann þar fyrir sér sem leigu- bílstjóri, unz hann hafði öngl- að saman fyrir fari til Suður- Ameríku. Þaðan komst hann til Austur-Asíu, settist að í Hong Kong og bjó þar ellefu ár. Hann kom sér upp skóverksmiðju og græddi á því fyrirtæki auð fjár. Honum líkaði stóryel við Kínverja, „þeir eru svo mann- legir,“ segir hann. Hann fór að tileinka sér lifnaðarhætti og heimspeki Austurlanda fjær. í ferð til Ástralíu kom hann við á Nýju-Gíneu og kynntist mannætum þar. Þá datt hon- um í hug kenning sú, sem hann heldur nú fram um uppruna mannsins. Hann gerir sér raunar ekki miklar vonir um að mannkyn- inu sé viðbjargandi, úr því sem komið er. Honum finnst meira að segja meira en trúlegt að í framtíðinni verði á ný hafin fjöldamorð og stríð með það eitt fyrir augum að ná heilan- um úr náunganum og éta hann. „Við þörfnumst meiri greind- ar!“ gæti vel orðið slagorð framtíðarinnar. „Stríð borga sig!“ HÆFILEIKAR I SERFLOKKI Framhald af bls. 23. komin og láta þeir félagar illa af viðskiptum sínum við fyrir- tækið. Annars er það aukaatriði. Að- alatriðið er það, að þessir drengir semja og flytja góða músík og lofa góðu. Er platan kemur út gefst landslýð að heyra en þeir hafa hugsað sér að nota hana sem „start“ og vilja, eftir útkomu hennar, hefjast handa við að koma fram, hvar sem er — „svo lengi sem fólk vill hlusta“, eins og Magnús segir. Það þarf enginn að efast um að fólk vill hlusta. Hlusta og hrífast. Glataða sál sína leggur umsjónarmaður þessa þáttar að veði. THELMA Framhald af bls. 13. hitt og þetta og þá kom fram, að hann gat ómögulega trúað því, að hnetur, sem uxu á beyki- trjám væru alveg jafnætar og Kr. 1.444,00 Hátíðaplatti '70 Kr. 895,00 Jólaplatti '71 Kr. 595,00 Mæðradagsplatti '71 Kaffistell Matarstell Vasar Styttur Veggplattar RiimMitriiii Hafnarstræti 17 Prjónastofa Önnu Bergmann sími 52533 JÓLAFÖTIN Á BÖRNIN FRÁ PRJÓNASTOFU ÖNNU BERGMANN fást hjá: Valborg, Sif, Berglind og Storkinum, Kjörgarði. Úti á landi: Verzl. Edda, Kefla- vík; Kaupfél. Höfn, Selfossi; Kaupfél. A.-Skaftfellinga, Höfn, Hornafirði; Verzl. Ásbyrgi, Akureyri; Kaupfél. Skagfirðinga, Sauðarkróki; Kaupfél. Patreksfirði; Kaupfél. Borgfirðinga, Borgarnesi. 49. TBL. VIKAN 45
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.