Vikan - 09.12.1971, Page 47
„Allt í lagi, Thelma. Eigum við
að skemmta okkur svolítið,
þegar ég kem aftur?“
„Við sjáum til.“
„Er það loforð?“
„Við sjáum til.“
„Ég tek það sem loforð,“
sagði hann.
Hann hló aftur og kyssti
hana á hálsinn, og hún fann til
æsingar.
„Þú getur haldið loforð,
Thelma? Er það ekki?“
„Hugsum ekki um það núna,“
sagði hún. „Hvenær á ég að
vekja þig í fyrramálið?"
„Vektu mig snemma, móðir
góð,“ sagði hannt „Ég á að
vera komínn af stað um sex-
leytið eða rúmlega það.“
Hún gat ekki sofið þessa
nótt. Hún hugsaði aftur og aft-
ur um, hvernig George Fur-
ness hafði kysst hana. Hún
mundi votar, hlýjar varirnar,
rauða káta tunguna, sem
teygði sig eftir beykihnetunum
og hvernig sólskinið, sem skein
í gegnum lauflitlar haustgrein-
arnar hafði dansað yfir létt-
lyndislegt andlit hans og hend-
ur. Hún mundi, hvernig hann
hafði talað um loforð og að
nota tækifærið. Og innan
skamms gat hún ekki gert að
því, að hún óskaði þess, að
hún hefði gert það, sem Ge-
orge Furness vildi fá hana til.
„En svo kemur næsta helgi,“
hugsaði hún. „Ég bíð eftir
næstu helgi.“
Hún sofnaði mjög seint og
klukkan var orðin meira en
hálfsjö, þegar hún vaknaði aft-
ur. Klukkuna vantaði fjórðung
í sjö, þegar hún hafði búið til
teið, og þegar hún flýtti sér
upp með bakkann, skulfu
hendurnar á henni. Síðan gekk
hún inn í herbergi Georges
Furness eftir að hafa barið að
dyrum og gerði þá fyrstu upp-
götvun sína. Rúmið var tómt,
og George Furness hafði farið
í burtu í bifreið.
Aðeins fáum árum seinna,
Um það leyti, sem hún var
tuttugu og fimm ára, kom og
fór næstum hver einasti herra-
ínaður í bifreið. En þennan
morgun var það ný og kynleg
reynsla að komast að því, að
herramaður þyrfti ekki að
fara með lest. Það var bylt-
ing í lífi hennar, að maður
gæti borgað reikninginn sinn,
farið fyrir morgunverð og
þyrfti ekki að bíða eftir rak-
Vatnskönnunni.
Alla næstu viku og nokkrar
þær næstu beið hún þess, að
George Furness kæmi aftur.
Hún beið sérstaklega spennt á
Wsiífl
I97Z
Kodak
ÍNSTAMATIC X
mqndavélarnar
eru kommr
3 Kodak Instamatic-X myndavélar,
sem ekki nota rafhlöður við flashlampa
Eru til stakar og í gjafakössum.
Kodak Instamatic — qiöf sem qleður.
BANKASTRÆTI 4 — SÍMI 20313
GLÆSIBÆ, ÁLFHEIMUM 74 — SÍMI 82590
Kodak ^
Instamatic
55-X
kr. 1.428.00
Kodak
Instamatic 155-X
kr. 1.808.00
Kodak
Instamatic 255-X
kr. 2.779.00
■SrX J HN&TAWiA'nC <)AM6RA
A.MA' 1C C-AMtHA
49. TBL. VIKAN 47