Vikan


Vikan - 10.02.1972, Blaðsíða 2

Vikan - 10.02.1972, Blaðsíða 2
í VIKUBYRJUN FYRSTA FLOKKS FRÁ FÖNIX Nedstu þrepin slitna örar- - en lausnin er á efsta þrepinu! HAFIÐ ÞÉR TEKIÐ EFTIR ÞVÍ — að teppið á neðstu stigaþrepunum slitnar örar en á hinum. Sandur, stein- korn, glersalli og önnur gróf óhreinindi, sem berast inn af göfunni, þurrkast af skónum á neðstu þrepun- um, setjast djúpt í teppið, renna til, þegar gengið er á því, sarga sundur hárin við botninn og slíta þannig teppinu ótrúlega fljótt. Og grófu óhreinindin berast líka inn á gólfteppin í sjálfri íbúðinni, inn um opna glugga og á skónum, því ekki er alltaf gengið um feppalagðan. stiga. En æðrist ekki - lítið bara upp hinn tæknilega þróunarstiga - þar blasir lausnin við - Á EFSTA ÞREPINU: NILFISK - heimsins bezta ryksuga! NILFISK VERNDAR GÓLFTEPPIN — því ekki skortir sogaflið, og afbragðs teppasogstykkið rennur mjúk- lega yfir teppin, kemst undir lágu húsgögnin (mölurl) og DJÚPHREINSAR fullkomlega. NILFISK slítur ekki teppunum, hvorki bankar né burstar, en hreinsar mjúklega með nægu, stillanlegu sogafli. FJÖLVIRKARI — FLJÓTVIRKARI — VANDVIRKARI — ÞÆGILEGRI — HREINLEGRI — TRAUSTARI • fleiri og betri fylgistykki • fjöldi aukastykkja: bónkústur, fatabursti, málningarsprauta, hitablás- ari, húsdýraburstar, blástursranar o.m.fl. • meira sogafl • stöðugt sogafl • stillanlegt sogafl # hljóður gangur • hentug áhaldahilla • létt og lipur slanga • gúmmístuðari • gúmmíhjólavagn, sem eltir vel, en taka má undan, t.d. í stigum • hreinlegri tæming úr málmfötunni eða stóru, ó- dýru Nilfisk pappírs-rykpokunum • áratuga reynsla • dæmalaus ending • ábyrgð • traust vara- hluta- og viðgerðaþjónusta • gott verð og greiðsluskilmálar. SÍMI 2 44 20 — SUÐURGÖTU 10 — Ég var bara hjá Frissa að skoða frímerki! — Áður en viS byrjum á megr- unarkúrnum œtla ég að benda ykkur á að þetta eru einu útgöngudyrnar! — Hvað segir kærastinn þinn, þegar þú hangir hér yfir mér þrisvar í viku?

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.