Vikan


Vikan - 10.02.1972, Blaðsíða 3

Vikan - 10.02.1972, Blaðsíða 3
6. tölublaS - 10. febrúar 1972 - 34. árgangur ii i Hún man fyrra líf sitt Óvenjulegur greinaflokk- ur hefst í þessu blaði. Hann segir frá sænskri konu, sem fullyrðir, að hún muni fyrri tilveru sína. Þessi furðulega frásögn hefur birzt í blöðum um öll Norður- lönd að undanförnu. Sjá bls. 6. EFNISYFIRLIT GREINAR BLS. Hér er ég grafin, fyrsti hluti óvenjulegs greinaflokks, sem nefnist „Eg hef sett blóm á gröf mína" 6 Elskað ekki viturlega en hóflaust, sagt frá sýningu Þjóðleikhússins á Óþello 8 Af ættum stórbrotinna gósseigenda, grein um bernsku og uppruna rússneska Nóbels- skáldsins Solsénitsyns 16 Bernska Nóbels- skáldsins Solsénitsyn er frægasta núlifandi skáld Rússa. Við lesum um hetjulega bar- áttu hans heima fyrir ■ fjölmiðlum. En hvað vit- um við um ætt hans og uppruna? Svarið við því fæst í grein á bls. 16. Þorrablót Lions- félaga Guðbrandur Magnússon, fyrrum forstjóri Áfengis- verzlunar ríkisins, er í hópi elztu félaga i Lions- klúbb Reykjavíkur. Klúbburinn hélt bænda- kvöld nýlega, þar sem eingöngu voru karlmenn. Sjá myndasyrpu frá veizl- unni á bls. 23—25. KÆRI LESANDI! VIÐTÖL Ef vel er æft næst ávallt árangur — fyrr eða síðar, Vikan heimsækir íþróttamann ársins, Hjalta Einarsson 28 SÖGUR Hjáguði skrifað, smásaga eftir Tove Jansson 12 Kona um borð, framhaldssaga, fjórði hluti 20 Leyndardómur Maríu Roget, framhaldssaga eftir Edgar Allan Poe, annar hluti 32 ÝMISLEGT Þorrablót á bóndadegi, myndasyrpa frá bændakvöldi Lionsklúbbs Reykjavikur 23 Fondue og aðrir ostaréttir; Eldhús Vikunnar, umsjón: Dröfn Farestveit, húsmæðrakennari 26 Stjörnuspá fyrir allt árið 14 Simplicity-snið 30 Lestrarhesturinn, lítið blað fyrir börn; um- sjón: Herdís Egilsdóttir, kennari 45 FASTIR ÞÆTTIR Nú eru þorrablótin í algleym- ingi. Þær eru ekki svo fáar sam- komurnar, sem haldnar eru um land allt þessa dagana, þar sem eingöngu eru íslenzkar krásir á boðstólum. Vikan brá sér á eitt þorrablót og harla óvenjulegt. — Við heimsóttum bændakvödd Li- onsklúbbs Reykjavíkur, þar sem karlmenn einir máttu mæta. Það var sannarlega glati á hjalla, mikið etið og drukkið og sungið við raust. Við birtum skemmti- legar svipmyndir frá samkom- unni á þremur síðnm í þessu blaði. Þá lögðum við einnig leið okk- ar heim til íþróttamanns ársins, Hjalta Einarssonar. Vikan hefur haft fyrir sið undanfarin ár að kynna rækilega þann íþrótta- mann, sem þennan eftirsótta tiiil hlýlur hverju sinni. Hjalti Ein- arsson er í hópi vinsælustu íþróttamanna og hefur oft orðið þess valdandi, að áhorfendur í Laugardalshöllinni liafa farið ánægðir heim eftir skemmtileg- an kappleik. Það er Örn Eiðs- son, sem spjallar við Hjalta um iþrótlaferil hans, framtíðaráform og sittlwað fleira. Loks vildum við mæta með tveimur þýddum greinum: Upp- hafi greinaflokks um sænska konu, sem man fyrri tilvist sína, og frásögn um bernsku og upp- runa Solsénitsyns. Pósturinn 4 Heyra má 10 Myndasögur 34, 36, 40 Krossgáta 35 Stjörnuspá 31 FORSJÐAN Íþróttafréttaritarar dagblaðanna kusu í ár eins og áður íþróttamann ársins. Fyrir valinu varð að þessu sinni Hjalti Einarsson, markvörður í FH. Við heimsóttum hann á dögunum og segjum frá heimsókninni á bls. 28. (Ljósm. Egill Sigurðss.). VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Gvlfi Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning: Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar: Sigríður Þorvaldsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir. — Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33. Símar: 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausa- sölu kr. 60,00. Áskriftarverð er 575 kr. fyrir 13 tölu- blöð ársfjórðungslega eða 1100 kr. fyrir 26 blöð misserislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram. Gjalddagar eru: nóvember, febrúar, maí og ágúst. 6. TBL. VIKAN 3

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.