Vikan


Vikan - 10.02.1972, Blaðsíða 15

Vikan - 10.02.1972, Blaðsíða 15
Eins og lesendum er kunnugt, birtir Vikan stjörnuspádóma vikulega. En hér kemur spádómur fyrir allt hið nýbyrjaða ár! KRABBINN 22/6 — 22/7 Reyndu að komast út úr sjálfum þér og þeirri tilfinningalegu einangrun, sem þú vísvitandi hef- ur komið þér í. Þú lærir mikið af fyrri mistök- um og ættir því ekki að þurfa að endurtaka þau .Þú gætir meira að segja gert öðru fólki gagn í janúar og febrúar og sýnt að þú getur bæði skipulagt starf og stjórnað því. Forsómaðu ekki þau tækifæri, sem þú færð til að afla þér nýrra vina og þróa fram gáfur þínar. Afsalaðu ekki tilkalli til neins annars manns vegna; það gerir þig bara óánægðan og spenntan. 1 vor eignastu nýjan vin, sem getur ýtt þér áfram í rétta átt. En engu að síður verðurðu sjálfur að bera ábyrgð gerða þinna. í ástarsambandi verð- urðu hamingjusamastur ef hvorugur aðilinn er undir hinn gefinn og þú getur sætt þig við það. Að líta upp til ástarinnar þinnar en niður á sjálfan þig veldur bara leiðindum í sambúðinni. Hafðu þig sem minnst í frammi 1 október og í haust skaltu reyna að draga skýra línu á milli vinnu og einkalífs. Árinu lýkur með miklum sigri. STEINBUKKURINN 22/12 — 20/1 Þú leggur þig hart fram við verkefni um ára- mótin og vinnur kannski meira en þér er hollt. Skipulegðu tíma þinn betur og forðastu að tak- ast á hendur nein ný verk í febrúar. Þú þarft að slappa af ásamt elskunni þinni, sem raunar hefur áhuga á að hafa svolítið meira af þér að segja. Þú hefur ekki nema gott af því sjálfur; þú þarfnast einhvers sem þú getur trúað fyrir öllu, enda þótt þú kjósir yfirleitt fremur að vera trúnaðarmaður annarra. Þú hittir 1 sumar fólk, sem þú átt margt sameiginlegt með og getur hjálpað þér ef þú leyfir því það. Heimurinn þinn hrynur alls ekki saman þótt þú hafir ekki al- veg svona stranga stjórn á sjálfum þér og slettir lítið eitt úr klaufunum. í september kallar skyld- an aftur, og þá þarftu ekki aðeins að afkasta miklu, heldur þarftu að vera frumlegur. Þú skiptir um skoðun 1 máli sem snertir þig per- sónulega, og í nóvember kemurðu til með að losna við slatta af fordómum, sem þú gerir þér ekki nú ljóst að þú hefur. LJÖNIÐ 23/7 — 23/8 Þú verður fyrir vonbrigðum með manneskju, sem þú hefur vænt þér langtum of mikils af, og verður því heldur einmana í ársbyrjun. En málaðu ekki skrattann á vegginn. Þú getur miðl- að reynslu þinni og innsýn til annarra og mann- þekking þin reynist þér vel, ef þú heldur tals- vert aftur af tilfinningunum. í apríl gerirðu þér ljóst, hve mikið þú átt eftir ólært. Ef tækifæri bjóðast, tekurðu kannski til þar sem frá var horfið við nám eða færð þér vinnu, sem gefur þér aukna möguleika til að þróa fram gáfur þín- ar og hæfileika. Taktu sjálfan þig ekki of al- varlega. Umhverfið fyrirgefur gjarnan veikleika þína ef þú sjálfur getur hlegið að þeim, og sjálf- ur ertu mjög umburðarlyndur og skilningsrík- ur hvað snertir veikleika annarra. í júll endur- heimtir þú þinn fyrri lífsþrótt og sjálfstraust og getur þá bætt upp það, sem þú heldur að þú hafir farið á mis við. Þú ert mjög lystugur á lifsins gæði og getur ekki hugsað þér að missa af þeim. Sköpunarþrá þín fær framrás í ágúst. Þú reynir að breyta raunveruleikanum, svo að hann komi heima við hugsjónir þínar. Það hvet- ur þig og gefur þér hugmyndir. VATNSBERINN 21/1 — 18/2 Þú ert mikið fyrir hugsjónir og drauma og fólki geðjast vel að þér eins og þú ert, en í upphafi árs þarftu að vera hagsýnn og djarfur í baráttunni gegn öflum, sem leggja hindranir í veg þinn. Þú trúir engum til neins nema góðs, en þar fyrir þarftu ekki endilega að láta aðra ráða þegar þú veizt með sjálfum þér að þú hef- ur á réttu að standa. í marz verða vonbrigði eða mistök til þess að þú þekkir sjálfan þig betur eftirleiðis, og þegar þú hefur náð þér eftir það, geturðu sjálfsagt komið í kring þeim breyting- um sem þú nú þegar fyrirhugar — jafnvel þótt þú hafir enn ekki gert þér ljóst hve nauðsyn- legar þær eru. í vor verðurðu sennilega ást- fanginn í einhverjum, sem er bein andstæða þín og bætir þig upp. En þið eruð svo ólík að þið eigið erfitt með að aðlagast hvort öðru. Þú mátt reikna með nokkrum hörðum árekstrum áður en allur misskilningur leiðréttist og þið getið slappað af saman. í október ferðu i utan- landsferð til að kynnast heiminum, og uppgötv- ar þá einnig nýja og óvænta hiið á sjálfum þér. JÖMFRÚIN 24/8 — 23/9 Efnahagur þinn kemst á fastan fót í janúar, svo að þú þarft ekki lengur að vinna einungis til að þéna peninga, heldur geturðu nú ráðið sjálfur verkefnum þínum og valið, þau, sem örva þig og þú finnur tilgang í að sinna. Notaðu það tæki- færi vel, en taktu ekki á þig alltof mikla ábyrgð. Þú þarft kannski að auka kunnáttu þína til að komast svo langt í starfsgrein þinni sem þú vilt og getur, en gættu þess að vera þolinmóður í marz. Láttu þér ekki detta í hug að fyrirhöfn þín verði til einskis, þótt hún beri ekki ávöxt þegar í stað. í ágústlok byrjar fyrir þig önnum kafið og viðburðaríkt tímabil, en þú verður að hafa trú á sjálfum þér ef allt á að ganga vel. Þótt einhverjir gagnrýni þig, þá er ekki þar með sagt að þeir viti betur en þú. í október verða breytingar á þínum persónulegu kringumstæð- um og kannski finnur þú þá þann félagsskap, sem þig dreymir. Þú myndir vilja lifa með elsk- unni þinni í smáheimi sem aðeins rúmaði ykkur tvö og gerði engar kröfur til þín. En samvizka þín leyfir það ekki. FISKARNIR 19/2 — 20/3 í samlifi þínu og elskunnar þinnar ríkir í byrj- un árs hamingja og samræmi, en þetta hefur kannski kostað mörg tár og sársaukafulla hrein- skilni. Þess vegna ert þú mjög þakklátur þegar þið loksins farið að skilja hvort annað. Erfitt verkefni bíður þín í vor og þú kemur til með að þurfa þá á að halda öllum þeim sjálfsaga, sem erfiðleikarnir hafa kennt þér. Þú tekur alltof mikið tillit tii álits annarra og verður að herða þig gegn utanaðkomandi gagnrýni, ef þér á að ganga vel í starfinu. Vinir þinir hjálpa þér og hvetja þig á allan hátt, en þann styrk sem þú þarft færðu bezt með að sannfærast um eigið gildi. Ótti þinn við ókunnugt fólk stafar af þvi að þú gefur þér ekki tíma til að virða það fyrir þér og skilja það, heldur hugsar aðeins um hvernig því geðjist að þér. í október verður þér gert að taka erfiða ákvörðun, og getur með engu móti skorazt undan því. Og I árslok færðu góðan fyrirboða um laun erfiðis þíns. 6. TBL. VIKAN 15

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.