Vikan - 10.02.1972, Blaðsíða 28
Ef vel er æf t
næst ávallt árangur
-fvrr eöa síöar
M
TEXTI: ÖRN EIÐSSON MYNDIR: EGILL SIGURÐSSON OG GUNNAR HEIÐDAL
*
niimiÉaiT
Hjalti Einarsson: — Mér finnst oft skorta á góða samvinnu með mark-
vörðum og öðrum leikmönnum i liðum hér.
íþróttamaður ársins við þrekæfingar í Laugardalshöll.
VIKAN heimsækir íþróttamann ársins 1971,
Hjalta Einarsson, handknattleiksmann úr FH.
íþróttamaður ársins 1971,
Hjalti Einarsson, handknatt-
leiksmaður úr FH fæddist í
skíðabænum Siglufirði 23. júní
1938. Hjalti fluttist til Vest-
mannaeyja á fjórða ári og þar
kynntist hann fyrst íþróttum.
Það var þó ekki handknattleik-
ur, sú íþrótt nýtur aðeins hylli
kvenfólksins í Eyjum. Knatt-
spyrnan er vinsælasta íþrótta-
greinin í Vestmannaeyjum og
Hjalti kynntist fyrst markvörzl-
unni hjá Þór, en hann lék með
Þór til 12 ára aldurs, er hann
flutti til Hafnarfjarðar með
fjölskyidu sinni. Þar komst
hann fljótt í kynni við hand-
knattleikinn, en aðalbaráttu-
maður þeirrar íþróttagreinar í
Firðinum var Hallsteinn Hin-
riksson. Hjalti varð strax mjög
hrifinn af handknattleiknum og
ekki síður af kennara sínum og
leiðtoga, Hallsteini Hinrikssyni.
Hann kynntist jafnöldrum sín-
um og fljótlega myndaðist
kja/ni í handknattleikslið, sem
vann marga frækna sigra undir
stjórn Hallsteins. Margir af fé-
lögum hans léku með liði FH í
tæpan áratug og einn þeirra,
Birgir Björnsson er einn bezti
leikmaður FH-liðsins enn í dag
ásamt Hjalta. Annars sagði
Hjalti að margir snjallir leik-
menn hefðu leikið með liðinu í
„gamla daga“ eins og hann seg-
ir. Hann nefndi Ragnar Jóns-
son, Hörð Jónsson, Sverri Jóns-
28 VIKAN 6. TBL.