Vikan


Vikan - 10.02.1972, Blaðsíða 39

Vikan - 10.02.1972, Blaðsíða 39
sveitina í sleða og faðir minn hefði átt úlfapels. É'g hafði dá- ið árið 1875. Stúlkan, sem einu sinni hafði verið Ing-Britt, fór nú að taka á sig skýrari mynd. — Hún átti ekki skemmti- lega æsku, en nú lifði hún áfram í mér. Stundum var mér þetta vel ljóst, stundum fann ég ekkert fyrir því. Ég hef oft velt því fyrir mér, hvort hún hefði raunverulega verið til. Mig langaði til að komast að hinu rétta. Mig langaði fyrst og fremst að fara til Sala og skoða mig um í kirkjugarðin- um. Ég ætlaði að reyna að finna hæðina og trén og leiðið, sem ég hafði séð. Finna nafn föður míns í kirkjubókunum. Þetta var fjarskalega æsandi og ég efaðist eiginlega aldrei um að ég hefði lifað þarna áð- ur, ég fann svo sterk áhrif frá þessari ókunnu stúlku, sem var, ef svo mætti taka til orða, ég sjálf. Og silfurkúlurnar — gátu þær ekki bent til silfurnám- anna í Sala? GRÖFIN VAR HORFIN Árið 1965 fékk Ing-Britt tækifæri til að fara til Sala. Maðurinn hennar þurfti að fara í viðskiptaerindum til Stokk- hólms og hún fór með honum. Hún hafði aldrei komið til Sala áður. Þau komu þangað um kvöld og fóru strax til kirkjugarðsins. — En ég sagði við Ing-Britt að ef við fyndum gröfina henn- ar, þá skildi ég. persónulega, þrýsta henni ofan í hana aftur. Mig langaði ekki til að hafa þessa afturgöngu lengur til að trufla líf okkar, sagði hann. — Ég trúði ekki á þetta eitt ein- asta augnablik. — Við komum til Kristina- kirkjugarðsins, að minnsta kosti held ég að hann hafi ver- ið kallaður það, sagði Ing- Britt. — Ég kannaðist ekkert við mig þarna og hafði engan áhuga á að skoða hann nánar. En Erik, aftur á móti, gekk um allt og leitaði. Hann hló og gerði að gamni sínu, eins og hann var vanur og sagði að þetta væri það sem hann hafði búizt við. Allt ímyndun. Mér leið svolítið ónotalega. Þarna var ekkert sem ég gat heim- fært upp á tilfinningar mínar, en samt var ég viss um að þetta var bærinn. Ég varð að láta í minni pokann að lokum og við- urkenna að maðurinn minn hefði á réttu að standa. Gröfin mín var ekki þarna. ÖNNUR KIRKJA Við héldum því áfram áleið- is til Stokkhólms. En þegar við vorum að beygja út á þjóðveg- inn, kom ég auga á annan kirkjuturn. Nú, eftir á, veit ég að þetta var Norrbykirkja. Er- ik yppti þreytulega öxlum, en fór nú samt með mér þangað, þar sem hann vissi hve áríð- andi mér fannst þetta. Þetta var heldur ekki svo mikill krókur. Við ókum nokkra kíló- metra eftir Uppsalaveginum en beygðum svo til hægri. Og skyndilega var mér ljóst að við vorum komin á rétta staðinn! Við fórum úr bílnum við hliðið. Klukkan var kortér yfir níu um kvöldið. Allt var þarna kyrrt og rólegt. Ég beið meðan maðurinn minn gekk frá bíln- um, svo tók ég í hönd hans og opnaði svörtu hliðgrindina. Eftir það var mér ekki fylli- lega ljóst hvað skeði. Ég var gripin einhverri óljósri tilfinn- ingu. Það var sem einhver ósýnileg hönd leiddi mig upp á hæðina og sneri mér að leið- inu. Svo sneri ég mér við og hélt að maðurinn minn væri hjá mér. — Hér stóð ég, sagði ég. Þá fyrst sá ég að maðurinn minn hafði numið staðar við hliðið. — Hvað ertu að gera þarna? kallaði ég til hans. — Hér stóð ég og horfði á mína eigin jarð- arför. Komdu, við skulum líta á leiðið. Þarna er ég grafin! Framhald í næsta blaði. LEYNDARDÖMUR MARÍU ROGET Framhald af bls. 33. skjótastrar og almennastrar hylli. í báðum þessum greinum eru þau það, sem er minnst virði. Það, sem ég ætla að segja, er að það er það sambland af kjarnyrði og tilfinningasemi, sem einkennir hugmyndina um, að María Roget sé enn á lífi, fremur en nokkur raunveruleg líkindi fyrir þessum möguleika, sem hefur gefið Stjörnunni hug- myndina og tryggt henni hlið- holla móttöku hjá almenningi. Við skulum rannsaka helztu at- riðin í röksemdafærslu þessa blaðs, og reyna að forðast það samhengisleysi, sem kom fram í hinum upphaflegu ummælum blaðsins. Fyrsta markmið höfundarins er að sýna fram á, að vegna hins stutta tíma, sem leið frá hvarfi Maríu og þangað til að líkið fannst á floti, geti þetta lík ekki verið af Maríu. Stytt- ing þessa tíma, eins og frekast er unnt, verður þannig strax keppikefli höfundarins. Hann reynir þannig í fljótfærni að gera tímann sem stytztan og lítur strax í byrjun á getgátur sem gefinn hlut. „Það er heimskulegt að gera ráð fyrir,“ segir hann, ,,að morðið, ef morð var framið á líkama hennar, hefði getað verið yfirstaðið svo snemma, að morðingjarnir hefðu getað kastað skrokknum í ána fyrir miðnætti." Við heimtum strax, eins og eðlilegt er, að fá að vita hvers vegna? Af hverju er heimskulegt að gera ráð fyrir, að morðið hafi verið framið innan fárra mín- útna frá því, að stúlkan yfirgaf hús móður sinnar? Hvers vegna er heimskulegt að gera ráð fyr- ir, að morðið hafi verið framið á einhverjum tilteknum tíma dagsins? Árásir hafa átt sér stað á öllum tímum sólarhrings- ins. En hefði morðið átt sér stað einhvern tíma milli klukk- an níu á sunnudagsmorgun og stundarfjórðungs fyrir mið- nætti hefði alltaf verið nógur tími „til að kasta skrokknum í ána fyrir miðnætti“. Þessi for- senda þýðir þá einmitt þetta — að morðið var alls ekki framið á sunnudeginum — og ef við leyfum Stjörnunni að gera ráð fyrir þessu, getum við leyft henni hvað sem vera skal. Máls- greinin, sem byrjar með „Það er heimskulegt að gera ráð fyr- ir, að morðið, o.s.frv.", hefði raunverulega getað hljóðað þannig í huga höfundarins, hvernig sem hún lítur út prent- uð í Stjömunni: „Það er heimskulegt að gera ráð fyrir, að morðið, ef morð var framið á stúlkunni, hefði getað verið framið nógu snemma til þess, að morðingjarnir gætu kastað Hkinu í ána fyrir miðnætti; það er sem sagt heimskulegt að gera ráð fyrir öllu þessu og gera jafnframt ráð fyrir (eins og við ætlum að gera ráð fyrir), að líkinu hafi ekki verið kastað í ána fyrr en eftir miðnætti" — og er þetta málsgrein, sem í sjálfu sér er nógu órökvísleg, en ekki eins fjarstæðukennd og sú, sem var prentuð. „Ef tilgangur minn væri sá einn,“ hélt Dupin áfram, „að hrekja þennan hluta af rök- semdaleiðslu Stjörnunnar, gæti ég hæglega látið málið lönd og leið. En það er ekki Stjarnan, sem við þurfum að eiga skipti við, heldur sannleikurinn. Setn- ingin, sem um er að ræða, hef- ui aðeins eina merkingu, eins og hún stendur; og þessa merk- ingu hef ég sett fram á sann- gjarnan hátt; en það skiptir meginmáli, að við skyggnumst lengra en orðin segja til um, og leitum að hugmynd, sem þessi orð hafa bersýnilega lotið að, en mistekizt að láta 1 ljós. Það var ætlun blaðamannanna að segja, að hvaða tíma á degi eða nóttu sunnudagsins sem morð- ið hefur verið framið á, væri það ólíklegt, að árásarmennirn- ir hefðu vogað sér að bera líkið til árinnar fyrir miðnætti. Og í þessu liggur í raun og veru sú skoðun, sem ég er að kvarta um. Gert er ráð fyrir, að morð- ið hafi verið framið í þeirri að- stöðu, og við þær aðstæður, að nauðsynlegt hafi orðið aö bera það til árinnar. Nú hefði árásin getað átt sér stað á árbakkan- um, eða á sjálfri ánni; og þann- ig hefði það ráð getað verið tekið, hvenær sem var um dag- inn eða nóttina, að kasta líkinu í ána, þar sem það væri hið augljósasta og fljótlegasta ráð til að losna við líkið. Þú munt skilja, að ég mæli ekki með neinu sem líklegu í þessu tilviki, eða sem samhljóða skoðun minni. Áætlun mín hingað til tekur alls ekki til staðreynda málsins. Ég vil aðeins vara þig við öllum tóninum í tilgátu Stjörnunnar, með því að benda þér strax í byrjun á, að hún er mjög einhliða. Þegar blaðið hefur þannig til- tekið tímatakmark, sem hentar þess eigin fyrirframhugmynd- um, og gert ráð fyrir, að væri um lík Maríu að ræða, hefði það ekki getað verið nema mjög stuttan tíma í vatninu, heldur það áfram og segir: „Öll reynsla hefur sýnt, að lík drukknaðra manna, eða lík, sem kastað er í vatn strax eftir dauða, sem leitt hefur af of- beldi, þurfa að liggja í vatninu í sex til tíu daga til þess að nægileg rotnun eigi sér stað til að láta þau fljóta uppi. Jafnvel þar sem er hleypt af fallbyssu yfir líki og það flýtur uppi, áð- ui en það hefur legið að minnsta kosti fimm eða sex daga í vatn- inu, sekkur það aftur, ef ekki er við því hreyft.“ „Þessar staðhæfingar hafa öll blöð í París samþykkt þegj- andi að undanteknu Stjórnar- blaðinu. Þetta siðastnefnda blað reynir að hamla á móti þeim hluta greinarinnar, sem fjallar um „lík drukknaðra manna" eingöngu, með því að vitna til fimm eða sex dæma, þar sem lík manna, sem vitað var, að höfðu drukknað, fund- 6. TBL. VIKAN 39

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.