Vikan


Vikan - 10.02.1972, Blaðsíða 29

Vikan - 10.02.1972, Blaðsíða 29
Hjalti Einarsson í marki íslenzka landsliðsins. son, Sigurð Júlíusson, Kristófer Magnússon og Ólaf heitinn Þór- arinsson. Til marks um ágæti FH á þessum árum má geta þess, að í hinu fræga landsliði íslands 1961, þegar íslendingar voru í 5.—6. sæti í heimsmeist- arakeppninni voru 7 FH-ingar í liðinu. í viðtali, sem Vikan átti við Hjalta á hinu vistlega heimili hans í Hafnarfirði fyrir skömmu barst talið fyrst að því, hvers- vegna hann hefði farið í mark- ið? — Ja, það kom nú ekki til af góðu, sagði Hjalti, þegar ég var smástrákur var ég alltaf lasinn og gat því hvergi ann- arsstaðar spilað nema í mark- inu. — Hvernig er að leika í marki? — Það er nú svona og svona. Þegar vel gengur er það mjög gaman, en hræðilegt þegar illa gengur. Markvörður verður að vinna vel með vörninni, annars fer oftast illa. Mér finnst oft skorta á góða samvinnu með markvörðum og öðrum leik- mönnum í liðum hér. — Það hlýtur að vera slæmt fyrir handknattleiksmarkvörð, þegar leikmaður hefur komizt inn fyrir vörnina og á bara markvörðinn eftir? — Það er nú vægt til orða tekið, maður stendur bara eins og þvara og veit eiginlega ekk- ert hvað gera skal, fálmar eitt- hvað út í loftið. — Hvaða leikir eru þér minn- isstæðastir frá fyrstu árum þín- um með FH? — Ég get ekki sagt að neinn einn leikur skeri sig úr, en leikir KR og FH á árunum 1955 til 1956 voru sérstaklega skemmtilegir og jafnir. KR átti gott lið á þessum árum. Ef ég hugsa mig vel um, er því ekki að neita, að fyrsti sigurinn á íslandsmótinu 1956 er ógleym- anlegur, það var áfangi, sem stefnt hafði verið að í nokkur ár. Einnig er mér minnisstætt tap í leik við Ármann, sem þýddi að við í FH töpuðum ís- landsmótinu það árið. — Þú lékst fyrstu stórleiki þína i íþróttahúsinu að Há- logalandi? — Ég sé alltaf eftir Háloga- landi, þó að þar væri þröngt og húsið ófullkomið. Hvergi hefur verið jafnmikil stemning, þar sem ég hefi leikið. — Fyrsti landsleikurinn Hjalti? — Hann var gegn Norðmönn- um í Osló 1959, og við töpuðum þessum leik eftir snarpa viður- eign. Það er gaman að leika með landsliðinu, og meiri ábyrgð heldur en í klúbbliði. Samvinnan er oftast betri í fé- lögunum, en einstaklingarnir sterkari í landsliði. — Þú hefúr þrívegis tekið þátt í heimsmeistarakeppni, er önnur tilfinning að leika í slikri keppni, heldur en í venjulegum landsleik? — Spennan er óneitanlega meiri — einnig er gaman að fylgjast með beztu liðum heims, slíkt er ómetanlegt og lærdóms- ríkt. Ég hefi átt margar ánægju- stundir á heimsmeistaramótum, en keppnin 1961 er þó ógleym- anlegust. Þá var ísland í 5.—6. sæti og ég held, að lið okkar þá sé það bezta sem við höfum eignast. Sigurinn yfir Svíum var ánægjulegur. Handknatt- leikurinn var einnig skemmti- legri þá; nú er það harkan sem ræður rííkjum, en minna sést af fallegum leik. — Viltu gera samanburð á íslenzkum og erlendum áhorf- endum? — Mér finnst islenzkir áhorf- endur ekki taki eins mikinn þátt í leiknum og þeir erlendu. íslenzkir áhorfendur eru miög góðir þegar vel gengur, en í mótlæti eru þeir oft neikvæðir, en þá er þörfin fyrir hvatningu oft mest. Á þessu þyrfti að verða breyting. — Hvernig var að hefja leiki í Laugardalshöllinni eftir öll Hálogalandsárin, Hjalti? — Munurinn var gífurlegur, ef ég ætti að koma með sam- líkingu, þá er það svipað og að fara í Hálogaland úr litla íþróttahúsinu í Hafnarfirði. Með tilkomu Laugardalshallar- innar urðu margir að æfa meira og tæknin kom betur í ljós. — Hvað er erfiðast við að stunda íþróttir, til þess að kom- ast í fremstu röð? — Þetta er argasta púl — mikil streita og ekki má gleyma því sem konan og heimilið verða að fórna, því að æfingar og leik- ir eru næstum hvern einasta dag. — Hvað er eftirminnilegasta atvikið á íþróttaferli þínum? — Ég held að það sé jafn- teflið við rúmensku heimsmeist- arana sl. vetur. Þetta kom svo skemmtilega á óvart. Landslið- ið var óvenju samstillt og við höfðum æft af dugnaði og sam- vizkusemi. — Hvernig lízt þér á undan- Framhald á bls. 37. 6. TBL. VIKAN 29

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.