Vikan - 10.02.1972, Page 5
E3
og raunar má lesa í blaðhausn-
um.
Skriftin er næsta ómótuð og
hæpið að spá nokkuð í hana.
Guð sé oss næstur
Kæri Póstur!
Við erum þrjár stelpur hérna og
allar ófrískar eftir sama strák-
inn, en hann vill ekki viður-
kenna það. Við vorum mjög góð-
ar vinkonur. Við erum alveg í
1 hruni og vitum ekki hvað við
eigum að gera, og þess vegna
langar okkur til að biðja þig að
reyna að ráðleggja okkur hvað
við eigum að gera. Við viljum
enga útúrsnúninga, því það er
alvara á ferðum. Ekki henda
bréfinu beint í ruslakörfuna.
Þrjár I hruni.
P.S. Hvað lestu úr skriftinni?
Undarlegt má það vera með
annað eins kúltúrpláss og heima-
bær ykkar gefur sig út fyrir að
vera að ungar stúlkur þar skuli
vera slík eindæma börn I kyn-
ferðismálum og bréfið gefur til
kynna varðandi ykkur þrjár. —
Hvernig er það, blessaðir aum-
ingjarnir mfnir, hafið þið aldrei
heyrt minnzt á að til væri neitt,
sem heitir getnaðarvarnir? Haf-
ið þið aldrei heyrt minnzt á
Pilluna, eða Sprautuna? Það er
varla hægt að áfellast ykkur
þótt þið viljið skemmta ykkur
pínulftið með strákum, svo fremi
þið séuð nokkurn veginn búnar
að slíta barnskónum, en þá er
lágmark að þið hafið orðið ykk-
ur úti um sómasamlega fræðslu
um þau mál. Hvers konar for-
eldra eigið þið, og er ekkert
minnzt á þetta i skólunum? Eða
eruð þið bara svona sljóar og
kærulausar sjálfar? Sé það svo,
er varla hægt að lá drengnum
að hann beri kinnroða fyrir að
viðurkenna að hafa haft nokkuð
við ykkur saman að sælda.
Svo fremi þið hafið piltinn fyr-
ir réttri sök, ætti að vera erfitt
fyrir hann að koma þessu af
sér. Ef þið sverjið þetta á hann
og blóðsýni staðfestir framburð
ykkar, mun vera mjög erfitt eða
jafnvel óhugsandi fyrir hann að
sleppa. Nú, hvað annað þið get-
ið gert ætti að liggja nokkuð
Ijóst fyrir. Þið verðið auðvitað
að segja foreldrum ykkar þetta
og reyna svo bara að taka þessu
eins og manneskjur. Um annað
er ekki að ræða — það er að
segja ef þetta bréf er ekki tómt
grin og plat, eins og við teljum
langsennilegast.
Skriftin ber vott um verulegan
skapstyrk, er þó ekki frí við
taugaveiklunareinkenni. — Það
gæti þó stafað af æfingarskorti.
Heldur framhjá
meö mér
Kæri Póstur!
Ég er alveg í stökustu vandræð-
um og langar því að biðja þig
að hjálpa mér. Það er þannig að
ég er alveg ofsahrifin af strák
og við vorum saman en nú er
hann með annarri stelpu. — En
samt heldur hann alltaf framhjá
henni með mér öðru hvoru og
ég læt alltaf undan af því ég er
svo hrifin af honum. Ég ætla al-
drei það en get bara ekki ann-
að. Hvað á ég nú að gera? Og
að lokum: hvað sérðu úr skrift-
inni?
Virðinga rf y I Ist,
ein í vandræðum.
E.t.v. er um að ræða mismunandi
skoðanir á reglum um samskipti
kynjanna. Þú segir að hann sé
„með" annarri stelpu, en ertu
viss um að hann líti svo á sjálf-
ur? Gæti ekki hugsazt að hann
kærði sig ekkert um að vera á
föstu með einni eða neinni, en
vildi þess i stað hafa lausari
sambönd við tvær eða fleiri? Sé
svo, er ekki um annað skárra að
ræða fyrir þig en að gera það
upp við þig, hvort þú sættir þig
við þessi viðhorf hans eður ei.
Gerir þú það ekki, ættirðu að
reyna að manna þig upp í að
hætta að láta undan honum. Ef
þú hættir því ekki, leiðir það
sennilega til þess að þú missir
traust á sjálfri þér, og það yrði
heldur ógæfulegt til frambúðar.
Skriftin ber vott um hneigð ti!
snyrtimennsku og reglusemi, en
jafnframt hik við að taka ákveðna
afstöðu.
NÝTT FRÁ RAFHA
XmfJk
NÝ ELDAVÉL GERÐ HE6624. 4 hellur, þar af 1 með stiglausri
stillingu og 2 hraðsuðuhellur, stór ofn, 56 lítra, yfir- og undirhiti
fyrir steikingu og bökun, Ijós í ofni. Fæst með eða án glóðar-
steikar elements (grill). — Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð.
VIÐ ÖÐINSTORG - SlMI 10322
SKRIFVÉLIN
Bergstaðastræti 3,
.símar 19651 & 3733C
Framleiðendur CANOLA-reiknivélanna
fullyrða:
Með nýju L-CANOLA-gerðunum verður ekki
lengra komizt í smíði
„elektroniskra kalkulatora".
6. TBL. VIKAN 5