Vikan


Vikan - 10.02.1972, Blaðsíða 23

Vikan - 10.02.1972, Blaðsíða 23
Þorrablót á bóndadegi LJÓSMYNDIR: EGILL SIGURÐSSON. Þó að kalt sé þorrans loft þannig verði saga félagið hylli og fegri oft fjölda bóndadaga. Þessi vísa er úr löngum brag, sem Jón Pálmason á Akri, fyrrum forseli sameinaðs alþingis, flutti á bænda- kvöldi Lionsklúbbs Reykjavíkur 1972. Þessar samkom- ur liafa þá sérstöðu, að þær mega karlmenn sækja ein- göngu. Gleðin verður því með öðrum brag, þróttmeiri og ef til vill eilítið taumlausari. Ljósmyndari Vikunnar brá sér á bændakvöldið, sem baldið var í annað sinn i Tjarnarbúð 21. janúar síðastliðinn. Veizluborðið svign- aði undan dýrindis þorramat, og mikill glaumur og gleði rikti, en allt fór þó liið bezta fram og var félaginu til sóma. Margir skemmtikraftar komu fram, svo sem ó- perusöngvararnir Magnús Jónsson, Kristján Kristjáns- son og Kristinn Hallsson, Skúli Halldórsson, tónskáld, Ressi og Gunnar og fleiri. Einnig var fjöldasöngur og tekið kröftuglega undir. Tilgangur bændakvöldsins er ekki eingöngu sá að skemmta félögum Lionsklúbbs Reykjavíkur. Það er i w ' á j haldið fyrst og fremst til að safna fé i liknarsjóð klúbbs- ins. Aðalverkefnið um þessar mundir er stuðningur við bina nýju augndeild Landakotsspítala, sem kemur til með að gjörbreyta aðstöðu til lækningar augnsjúkdóma hér á landi. Lionsfélagar gerðu þvi tvennt í senn þetta skemmti- lega kvöld: blótuðu þorra á bóndadegi og styrktu um leið þarft og gott málefni.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.