Vikan - 13.09.1973, Síða 4
f
Dósturinn
Ef bí trt d:
BYGGJA.
BREYTA
EBA BJETA
bá lítti vil i LitnverL
bvi bað hefir évellt
beroaflsii
LITAVER
■!
Símar 32262 - 30280 oo 30480
fireosásveoi 22 - 24
ALLAR SEX!
Elskulegi póstur!
Þú hefur leyst úr svo mörgum
vandamálum, en nú erum viö
hérna sex stelpur i mjög miklum
vanda.
Þannig ver mál meö vexti, aö
viö erum allar hrifnar af sama
stráknum sem er 17 ára og viö
höfum allar veriö meö honum eitt
eöa fleiri kvöld.
Viö erum allar aö drepast úr
ást, en hann veit ekkert um þetta.
Jæja viö vonum, aö þú leysir
þennan vanda okkar og ekki snúa
út úr.
Fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
P.S. Hvaö lestu úr skriftinni?
Sex I sorg.
Máliö er einfalt! Þið skiptiö
stráknum á milli ykkar, þannig
aö hver ykkar hefur hann eitt
kvöld vikunnar. Sú fyrsta á
mánudegi önnur á þriöjudegi og
svo framvegis. Gefiö svo
stráknum fri á sunnudögum svo
hann veröi ekki alveg útkeyröur.
Skriftin bendir til þó nokkurrar
kimnigáfu, þó aö ekki séu allir
brandarar jafn góöir. (Þessi var
háif lélegur!)
Sf^«í?4Srjrír^»iæ?
RÉTT TIL ATVINNU!
Kæri póstur!
Viltu gjöra svo vel aö svara
þessari spurningu fyrir mig.
Hvor hefur meiri rétt á vinnu,
sá, sem er á atvinnuleysisbótum
eöa sá, sem er á vinnumarkaöi og
sækir um vinnuna, en hefur ekki
fengiö bætur?
Meö þökk fyrir allt,
Kolla.
Venjan er sú hjá ráöningar-
skrifstofum sveitarfélaga, aö
minnsta kosti I Reykjavik, aö sá,
sem hefur beöið lengst eftir vinnu
fær hana aö öllu jöfnu, enda sé sá
hæfur i starfiö. Enginn kemst á
atvinnuleysisbætur, nema aö
hafa veriö skráöur hjá vinnu-
miölunarskrifstofu I minnst þrjár
vikur, þannig aö sá, sem er á
atvinnuleysisbótum hefur beöiö
aö minnsta kosti þrjár vikur eftir
vinnu og ef einhver hefur beöiö
skemur, sem sækir um sömu
vinnu, á sá, sem er á bótunum
meiri rétt á vinnunni.
Þetta eru reglurnar, en hitt er
annaö mál, hvort alls staöar er
fariö eftir þessum reglum.
Vona bara, aö þú sért komin i
góöa vinnu!
ER HÆGT AÐ LÆRA
YOGA A ISLANDI?
Kæri póstur.
Ég er ekki I ástarsorg, og ég er
ekki ólétt, en mig langar aö biöja
þig aö svara fyrir mig tvelmur
spurningum.
1. Er hægt aö læra Yoga á ís-
landi?, og ef svo er, hvert get ég
snúiö mér til aö læra þaö?
Meö hjartans þökk fyrir allt
gott i Vikunni.
Gulla.
Þú getur alla vega lesiö þig
eitthvaö til um yoga. Blkur um
slikt munu fást I bókabúöum, sem
hafa eitthvert úrval erlendra
bóka.
Hér I sumar var einhver Þór
Þóroddsson kallaöur fræöari frá
Kaliforniu, sem var meö fyrir-
lestra um yoga I Reykjavik og á
Akureyri. En ég hef ekki hug-
mynd um, hvort hann er snúinn
aftur til Kalifornfu.
Þú getur reynt aö snúa þér til
Guðspekifélags islands (stendur i
simaskránni), eöa Geirs Vil-
hjálmssonar sálfræöings, sem
hefur stundaö hugleiöslu og haft
námskeiö i sliku.
UM ORÐFLOKKA-
GREININGU.
Pósturinn Vikunni.
Viltu gjöra svo vel og greina
fyrir mig i oröflokka úr þeirri ein-
staklega skemmtilegu sögu úr ís-
lenzkri málfræöi fyrir barna-
skóla, sem hefst þannig: Friörik
mikli, konungur á Prússlandi.
Svo kemur þar i frásögninni, aö
konungurinn kemur inn i
veitingahús, þar sem einn her-
maðurinn hans sat meö flösku af *
dýru vini fyrir framan sig:. Er
oröiö einn I þessu tilviki töluorö?
Er þessi setning úr málfræöinni
rétt: „Þaö er sá, sem meiddi sig i
fótinn”?
Ein i vafa.
Eftir þvi sem Pósturinn veit
bezt er oröiö einn töluorö i þessu
tilviki, sést þaö bezt á þvi, aö
hægt er aö setja annaö orö, sem
tvimælalaust er töluorö t.d.
„tveir” i staöinn, án þess aö
setningarskipunin raskist. (Þú
veröur þó aö sjálfsögöu aö setja
oröiö „hermennirnir” i fleirtölu).
Hins vegar er rangt aö segja
„einn hermaöurinn hans”, þvi
hér er veriö aö tala um hluta af
ákveöinni heild og er þá réttara
aö láta oröiö, sem stendur fyrir
heildina, standa I eignarfalli
„einn hermannanna” eöa láta
þaö stýrast af forsetningunni af
„einn af hermönnunum”. Ekki er
heldur taliö gott aö hafa ákveðinn
greini meö nafnorði, er eignarfor-
nafn svo sem oröiö „hans”
stendur meö þvi, væri þvi betra
aö segja „einn hermanna hans"
eöa „einn af hermönnum hans”.
Hin setningin, sem þú spyrö
um, er heldur ekki rétt aö dómi
Póstsins. Yfirleitt er notuð
setningarbyggingin „meiöa sig
i/á + nafnorö i þágufalli.” Þvi
væri réttara aö segja „Þaö er sá,
sem meiddi sig á/á fætinum”’.
4 VIKAN 37. TBL.