Vikan

Tölublað

Vikan - 13.09.1973, Blaðsíða 9

Vikan - 13.09.1973, Blaðsíða 9
Allt i einu heyröi flóttafólkiö skip- unina, sem þaö haföi óttazt allan timann. hátt, en allt hefur komiö fyrir ekki. Þaö er þó vitaö meö vissu, aö Fersen faldi sig i Tuilerihöllinni nóttina á milli 13. og 14. Febrúar. Það kemur ber- lega i ljós við lestur dagbókarinn- ar og aö öllum likindum hefur hann dvalizt 1 herbergjum drottn- ingarinnar, þvi aö hann hittir ekki konunginn fyrr en siðdegis daginn eftir. Klukkan hálf tiu fór hann úr höllinni. 9:30 je la quittiii skrifar hann i dagbókina. Þaö getur ekki þýtt nema eitt, aö hann notar kven- kyns persónufornafn. Ég fór frá henni. Fór konungurinn á undan Fersen, eöa hugsaöi Axel ein- göngu um drottninguna á þessu augnabliki? Sársaukafullur hlýt- ur skilnaöurinn að hafa verið, þau vissu bæöi að aö öllum likindum var hann þeirra siöasti. Þau áttu heldur ekki eftir aö hittast aftur. Tæpu ári siöar, hinn 21. janúar, var Lúðvik tekinn af lifi. 16. október sama ár steig Marie An- toinette upp á aftökupallinn. Eftir aö Fersen haföi gert þaö ógerlegt fyrir sig aö dveljast i Paris, útnefndi Gústav III. hann ambasador sinn i Brussel og þangað fékk hann tilkynninguna um dauða drottningarinnar. Fer- sen brá i fyrstu ekki mjög viö fréttirnar. „Ég er hissa á aö ég skuli ekki vera i meira uppnámi”, skrifaði hann I dagbókina. „Ég fann eigin- lega ekki fyrir neinu. Þó hef ég hugsaö um hana allan daginn og þær hættulegu kringumstæöur, sem hún var i, um börn hennar, um son hennar og þaö óréttlæti sem hann hefur oröiö fyrir, um hve óhamingjusöm hún var yfir þvi aö fá ekki aö sjá hann, um ef- ann, sem hún kann að hafa boriö i brjósti um tryggö mína.... i stuttu máli sagt, ég hugsaöi um allt og ekkert”. En deyföin, sem heltók hann i fyrstu, tók skjótan endi. Þremur dögum seinna skrifaði hann i dag- bókina: „Sorg mln eykst i staö þess aö minnka”. Ariö eftir, aö þau Lúövik og Marie Antoinette voru tekin af lifi, lézt ríkisráöiö Axel von Fer- sen I Stokkhólmi og sonur hans sneri aftur til Svlþjóöar. Réttu ári eftir dauöa Marie Antoinette, var hann á Eystrasalti á leiö heim. „Þessi dagur”, skrifaði hann I dagbókina, „er afdrifarikur dag- ur fyrir mig. Þetta er dagurinn, sem ég missti konuna, sem ég elskaöi mest af öllu I heiminum og hún elskaöi mig raunverulega lika”. Þegar maöurinn, sem oröróm- ur var uppi um aö veriö heföi elskhugi Marie Antoinette, sneri Moröiö á Axel von Fersen. aftur til Sviþjóöar, vakti þaö mikla athygli. „Fólk horfir for- vitnislega á mig”, skrifaði Fer- sen. „Ég veitti þvl sérstaka at- hygli I Óperunni. Mér fannst eins og allir horföu á mig, en ekki sýn- inguna”. Sorgin og spenna fjögurra undangenginna ára haföi sett sinn svip á hann. Hann leit út fyrir aö vera eldri en þrjátiu og niu ára. Hár hans var tekið aö grána og hrukkurnar, sem gjarnan vekja áhuga rómantlskra kvenna, höföu dýpkaö aö mun. Axel var þagmælskur maöur og vinátta hans og Sophie systur hans átti sér djúpar rætur. Hún bjó nú meö Taube elskhuga sln- um. Hann var nokkurn veginn ánægöur og hamingjusamur á óðalssetri sinu Steningi, þar sem allt var I blóma á hinum stuttu sænsku sumrum. Þessi teikning á aö sýna Marie Antoinette á leiö á aftökustaöinn. „Jarðarberin eru I blóma, en erturnar eru ekki fullvaxnar enn. Ráösmaöurinn minn er afbragös maöur og búreksturinn er I góö- um höndum, þar sem hann er. Þegar ég horfi á þetta allt, skil ég fyrst hve djúpar rætur jöröin á i manninum. Þá iörast ég flakks mins um ævina og finn að hér hef ég skyldum aö gegna”. Arin liðu. Þau færöu Axel von Fersen allar þær uppheföir sem mögulegt var aö veita honum. Gustav III. trúöi honum fyrir alls konar embættum og veitti honum nafnbætur. Hann varö geröur aö kanslara við Uppsalaháskóla, rikismarskálki og hann var einn rikisherrana. 1809 varð hann hershöfðingi. Svo virtist sem þann heföi komizt eins langt og veraldlegur metnaöur hans gat óskað sér. En þessi frami lét hann ósnort- inn. Hljóðlátur, dapur og fyrir- ferðarlítill rækti hann störf sln af hendi af vélrænum dugnaöi. Raunverulegt líf hans var ekki viö hiröina — þaö var hjá Sophie systur hans og I endurminningun- um. Minningarnar fylgdu honum hvert Sem hann fór. I dagbók hans verður þess hvaö eftir annaö vart og hún varpar nokkru ljósi á leyndustu hugsanir hans, sem flestar snerust um sorgina og söknuöinn, sem hann bar I brjósti. 16. október 1796 (réttum þremur árum eftir aftöku Marie Antoin- ette): „Þúsundir sárra minninga hafa verið hjá mér I allan dag. Þjáningar hennar sækja óaflát- anlega á huga minn...” 16. október 1798: J dag er dagur bænanna hjá mér. Ég get ekki gleymt öllu þvi, sem ég hef misst. Sorg min tekur út yfir gröf og dauöa”. Framhald á bls. 19 37. TBL. VIKAN 9

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.