Vikan

Tölublað

Vikan - 13.09.1973, Blaðsíða 14

Vikan - 13.09.1973, Blaðsíða 14
Þvi er oft haldiö á lofti lækna- visindunum til hnjóðs, aö enn hafi þeim ekki einu sinni tekizt að sigrast á kvefinu. Þegar haustar að og veður gerast hrollköld, bregzt það ekki, að annarhver maður fyllist af ban- settu kvefinu. En hvers vegna fáum við kvefið einmitt á vet- urna? Það litur út fyrir, að við verð- um aö biða enn um hrið eftir pillunni eða sprautunni, sem losar okkur við hið hvimleiöa kvef. Þar er enn óskrifað blað i sögu læknavisindanna. Við þekkjum kvefiö og rennslið i nefinu, við vitum um bakteriur og virus. Er þetta svo erfitt fyrir visindin, sem ráða bót á bóiu- sótt, lömun og öðrum sjúkdóm- um, sem hrjá mannkyniö? að beina gegn ákveönum liffær- um, sem eru einangruð og gegna ákveðnum liffærastörf- um. Visindamenn hafa fundið milli 50 og 100 virustegundir við rannsókn á hálsbólgu. 1 slikum tilfellum er nauðsynlegt að finna lyf, sem ræður niðurlögum á starfsemi, sem er virusnum lifsnauðsynleg, en sem ekki skaðar frumurnar í likama okk- ar. Að baki kvefvandamálinu er ein mikilvæg spurning, sem vis- indamenn glima stöðugt við og nefnd var hér i upphafi: Hvers- vegna verðum við aðallega kvefuð aö vetrarlagi? Hér á eft- ir verða talin upp fáein fróðleg atriði til að brjóta heilann um milli hóstakviðanna: Mótstöðuafliö minnkar við að: Skýringin á þvi, að svo erfitt reynist að finna upp pillu eða sprautu, sem ræður viö kvefið, er sú, að bakteriu- og vfrus- magniö er svo viðtækt og ótrú- lega margbreytilegt. Það er eins og að skjóta á stóran hóp fugla: maður getur varla búizt við meiru en að kúlan hitti einn fuglinn. Viðvfkjandi kvefinu er það að segja, aö litið hefur á- unnizt, þótt varnarefni gegn einni eða fáum tegundum af þessu á'rásarliði sé fundið. Þá er eins og það gefi aðeins þeim sem eftir lifa meira svigrúm i slfmhúðinni. Bólusetningu er aðeins hægt aíslimhúðin verður við- kvæmari viö miklar veður- farsbrevtingar, b) viðsvitnum minna ikulda, og þá missir húðin varnar- efni, c) slimhúðin þornar við hit- ann innan dyra og á erfið- ara með aö verjast baktérfum og vírus (það er algengt, aö það sé allt að því eyðimerkurþurrkur i hýbýlum manna), d) samsetning efna i blóðinu breytist við áhrif kulda og hita og snögg umskipti. Veöurfarsbrevtingar hafa lika áhrif á bakteriurnar. Útfjólu- bláu geislarnir i sóiarljósinu drepa bakteriurnar, og áhrif geisianna eru meiri þvi þurrara sem. loftslagið er. A veturna er litið um sól og loftraki mikill. Svo er það lika eftirtektar- vert, hver áhirf kuldi og votveð- ur hefur á lifsvenjur manna. Þeir loka sig inni, hrúgast sair an á skemmtistöðum, i skólun. . og öðrum stofnunum. Smithætta eykst mikið yfir vetrarmánuð- ina. Hvernig veröa svo varnarlyf við kvefi i framtiðinni? Við get- um liklega verið viss um, ao þau verða ekki i bólusetningar- formi. Til þess eru bakteriurnár of margbrevtilegar og erfitt að einangra virusinn. Liklega verða varnarlyfin i töfiuformi, og ekki óliklegt, að slíkt iyf verði byggt á efni, sem myndast i likamanum til að verjast árás- um virusa. Þetta efni er mjög erfitt að framleiða f rann- sóknarstofum, en fyrir alllöngu sögöust ameriskir visindamenn þó vera búnir að finna aðferð, sem virtist ætla að gefa góða raun. Þetta lyf (interfernot ætti að geta haft svipuð áhirf á vírus og þau sem fúkalyfin hafa á bakterfur. Við skulum að minnsta kosti vona hið bezta. FÓLNUÐ ÁST____________________ geislandi í hvít skýi brúðarslörs- ins I armi pabtd, I inar, ungur og glæsilegur flokksforingi i ein- kennisklæðum, beið við altarið, Berit sæta var bleikklædd brúðarmær. Mamma var auðvit- að hrifandi og stórkostleg i fjólu- bláum kjól með perlur. En stóra- systir, Ingalunda var eins og undanvillingur i hinni glæsilegu fjölskyldu. Hún neitaði að punta sig, hátiðarklæði fóru henni alltaf illa, fannst henni. Skfnandi smar- agðsgræni kjóllinn, sem saumað- ur var fyrir brúðkaupið, sat illa á öxlunum og var i heild mistök, — og Eyvindur var ekki með. Hann var á vakt i apótekinu. Eyvindur haföi breytzt, þegar sumarið nálgaðist haust. Hann mátti ekki lengur vera að, afsak- aði sig með, að hann þyrfti að lesa fyrir lokaprófið. En hann var sagður hafa dansaö eitt kvöld á‘ Borginni við Katrinu dóttur apótekarans ... Það var mikið, sem gekk á það haustið. Berit fór til Englands i september. Rúmum mánuði seinna kom reiðarslagið. Pabbi lézt úr hjartaslagi. Marianne bjó vfðs fjarri.i öðrum bæ og vænti sins fyrsta barns. Berit var sem sagt I Englandi og mamma var ákveðin I, að hún fengi að vera þar sitt ár. Hún hafði glaðzt mik- ið, vegna þess að hún þurfti ekki að koma heim fyrr en áætlað var. Peningalega mundu þau klára þaö! Og þær höfðu hvor aðra, sagði mamma — hún og hennar stóra, væna Ingalunda. Hvað var þá eðlilegra en að hún færi til Eyvindar og segði eins og satt var: að þessu yrði að vera lokið, að hennar væri þörf heima. Seinna? Nei, nei, hún vildi ekki fjötra hann. Hún minntist enn greinilega þessa örvæntingar- fulla krampa f hálsinum, meðan hún beiö með öndina i hálsinum, hvort hann skyldi kannske, þrátt fyrir allt, skyldi þiggja, sam- þykkja . . . Nokkrum mánuðum seinna giftist Eyvindur dóttur apótekarans, Katrinu. Og þegar fram liðu stundir, varð hann sjálfur apótekari I Kulleras. Dagar striðsins i Kulleras voru bara þungir og leiðinlegir. Erfitt með brenni f gapandi ofnana I stóra einbýlishúsinu, eilifar áhyggjur. af knöppum matar- skömmtum og krökkunum henn- ar Marianne, sem auðvitað höfðu verið fluttir til ömmu og móöur- systur I Kulleras. Einar var á vig- stöðvunum, Marianne var sjálf- boðaliði og vann hetjulega i flutn- ingalest, sem flutti særða til her- sjúkrahúsanna. Berit dvaldist i öðrum heimi. Hún hafði stuttu fyrir striösbyrjun gifzt Englend- ingnum Donald. Hún lifði af loft- árásirnar á London og maður Framhald á bls. 37

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.