Vikan - 13.09.1973, Blaðsíða 22
SAFT.
Aætlið 250 gr. af sykri fyrir
hvern liter af saft. Sjóðið saftina
með sykrinum i 5—10 minútúr
án loks og fleytið vel froðuna of-
an af. Bætið 1 msk. af uppleystu
benzoesúru natroni i hvern liter
af saft. (Benzoesúrt natron fæst
i apótekum og eru 20 gr. af þvi
leyst upp i 1/4 ltr. af sjóðandi
vatni. Hellið saftinni á vel
hreinar flöskur og lokið.
HLAUP
Mælið saftina sem siast hefur
og látið suðuna koma upp og
hreinsið froðuna. Takið pottinn
af og hrærið 1 kg. af sykri á móti
hverjum liter af saft og setjið
pottinn yfir aftur, þegar sykyr-
inn er alveg uppleystur. Sjóðið
við mjög hægan hita þar til 1
skeið af saftinni stifnar er hún
er sett á disk. Veiðið froðuna af
og hellið á hrein glös. Bindið yfir
þegar hlaupið er orðið kalt.
RIFSBERJADRYKKUR
4 dl. ósoðin rifsberjasaft
sykur
1 appelsina
mulinn is.
rifsberjaklasar.
Fyllið 4 stór glös til hálfs með
muldum is. Pressið safann úr
appelsinunni og blandið með
sykri. Hellið á glösin og hengið
rifsberjaklasa á glasabarmana.
ÍS MEÐ RIFSBERJUM
1/2 ltr. vanilluis
rifsber
sykur
1 msk. sherry ef vill.
Hreinsið rifsberin og núið
þeim i gegnum sigti eða setjið i
mixara. Sjóðið sykurlög úr 1 1/2
dl. af vatni og 100 gr. af sykri og
látið kólna. Hellið siðan yfir 1
bolla af rifsberjum og látið
standa I nokkra tima til að taka
súrinn úr rifsberjunum.
Hrærið rifsberjamaukið upp
með sykri eftir smekk og vini ef
vill. Hellið yfir isinn sem annað
hvort er borinn fram heill eða i
ábætisskálum. Skreytið með
berjunum sem lögð voru i
sykurlöginn, en látið renna vel
af þeim fyrst.
RIFSBERJAABÆTIR
4 msk. rifsberjahlaup
ca. 400 gr. rifsber
100—200 gr. sykur
8 kexkökur (aflangar, t.d. te-
kex)
2glös vin (t.d. eitthvert ávaxta-
vin)
1/2 ltr. vanilluis.
1 1/2 dl. rjómi
Hrærið rifsberjahlaupið með
dálitlu af sjóðandi vatni, og hell-
ið þvi i 4 breið glös. Stráið
hreinsuðum rifsberjunum yfir
með sykrinum og hristið glösin
til svo allt blandist vel saman.
Setjið kúfaða skeið af is i hvert
glas og þar á ofan kexið sem sið-
an er bleytt með vini. Fyllið sið-
an glösin með rifsberjum og
sprautið litium rjómatoppum á
kantana.
RIFSBERJASAFT
OG HLAUP
2 kg. rifs, vatn, sykur
Skolið rifsberin. Setjið þau i
pott með vatni og hitið hægt.
Pegar búin er til saft, má
vatnið ná 2/3 miðað við hæð
berjanna i pottinum, en við
hlaup notast 1 ltr. vatn á móti 2
kg. af berjum. Látið suðuna
koma hægt upp og sjóðið i 15—20
minútur, undir loki. Hellið inni-
haldinu siðan i góða siu, t.d.
gassiu, og látið siast til næsta
dags. Nú breytist aðferðin eftir
þvi hvort búin er til saft eða
hlaup.