Vikan - 13.09.1973, Blaðsíða 26
I
TEXTI: TRAUSTI ÓLAFSSON
„Hófaslögin háttum bundin
hrynja aö söngrödd gleöimanns”
Vikan heimsækir Sigurð Ólafsson, söngvara
Fá íslenzk dægurlög hafa notið
eins mikilla vinsælda og verið
jafn langlif og „Sjómannavals-
inn”, sem Sigurður Ólafsson söng
inn á plötu fyrir mörgum árum.
Valsinn einn hefði nægt til þess,
að margir Islendingar könnuðust
við nafn Sigurðar, en hann lét
ekki sitja við hann einan. Sigurð-
ur söng lengi með danshljóm-
sveitum og aragrúi af hljómplöt-
um með söng hans hefur verið
gefinn út og flestar eru þær ófá-
anlegar. Þess utan kom Sigurður
töluvert við sögu leikhússlifs á
IsteTTdi um nokkurt skeið og söng i
fjöldanum öllum af kabarettum
og revium. Hann söng lika i óper-
um, óperettum og söngleikjum og
einu sinni tók hann við Shake-
spearehlutverki af Ævari Kvar-
Gletta vann Glettubikarinn á Þingvölium árið 1!)(>2 og þá var þessi
mynd tekin. A henni eru talið frá vinstri: Glettingur, undan I.itlu-
Glcttu, Ilrollur, Litla- Gletta, Sigurður á Völsungi, ættmóðirin
Gletta og Gula-Gletta.
Illaðin fegurð, hýr á svip.
Ileimtar veg til spretta.
Engin dregur f þin grip,
yndislega Gletta.
Þessa visu um Glettu gerði Valdi-
mar Benónýsson. Myndin var
tekin kappreiðum Fáks árið
I!)57, en þá var Gletta tuttugu
vetra.
an, sem fór á leiklistarkynningu
til Bandarikjanna skömmu eftir
frumsýningu.
— Það var i ,,As you like it”,
eða „Sem yður þóknast” eins og
það var kallað á islenzku. I fyrstu
var talað um að ég tæki bara
sönginn, en einhver nemenda
leiklistarskólans tæki leikatriði
hlutverksins. En þegar á hólminn
var komið, treysti enginn þeirra
sér til þess. Ég gat þetta náttúr-
lega alls ekki, en Lárus Pálsson
var leikstjóri og hann taldi mér
trú um, að ég gæti það. Svo æfði
Haraldur Björnsson mig heima
hjá sér og niðri i leikhúsi og alls
staðar. Þetta fór allt saman
sæmilega. Að minnsta kosti var
ég ekki skammaður fyrir það að
ráði. En þetta var hörkutamning
og harðtamning hjá Haraldi.
— Þú söngst i Rigoletto?
— Já, það var glæfralegt
ævintyri að stökkva eins og hver
annar áhugamaður inn af götunni
og fara að syngja á móti Guð-
26 VIKAN 37. TBL.