Vikan - 13.09.1973, Page 40
ið. En ég reyni að gleyma þvi sem
gerðist. Lifið verður að ganga
sinn gang. Og mér finnst ég hafa
það gott. En stundum vakna ég
upp við að mér finnst ég sitja föst
i leðjunni.
Sem afgreiðslustúlka var
Ragnhild tryggð. Tryggingin
veitir henni lifeyri. Og 200 þúsund
krónur af þvi fé sem safnaðist i
landssöfnuninni eftir náttúru-
hamfarirnar voru settar i sjóð tii
að veita henni fjárhagsaðstoð við
endurmenntun til annars starfs.
Ekkert varð af skólagöngunni en
fjárhæðinni hefur hún fengið að
verja ti! að létta sér lifið.
Yfirvöldin hófust strax handa.
Margir vinnuflokkar voru sendir
á vettvang og nýr þjóðvegur var
geröur á 9 dögum. Tveim vikum
eftir jarðskriðið var járnbrautin
komin i samt lag. Umferðin um
ána var komin i eðlilegt horf eftir
6 vikur.
Fyrir þá húsnæðislausu var
byggt nýtt þorp meö nýjum hús-
um á fjórum mánúðum.
A degi hverjum gengur Allan
Alenfors hér og viörar hundinn
sinn. Hann býr i húsi nálægt slys-
staðnum. Hús hans hvarf i jarð-
skriðinu...
— Ég var i lestinni og varð þvi
ekki fyrir jarðskriðinu. Gullborg,
kona min hafði ný stigið upp i
áætlunarvagninn við þjóöveginn.
Hún hafði heppnina með sér. Veg-
urinn hrundi fyrir framan og aft-
an vegninn með 35 farþega en
vagninn stóðst.
Sjálfur fór ég með fiskbil til
baka frá Agnesberg, þegar ég
heyrði um atburöinn.
Það var hræðileg sjón. Húsið
var á hliðinni húsgögnin brotin og
innbúiö ónýtt, en það var ekki
mikil leöja i húsinu.
— Viö bjuggum i þrjú ár i nýja
ibúöarhverfinu i Skadoll, en kon-
una langaði til baka og 1953 flutt-
um við i tvibýlishús sem hafði
flotið um 100 metra við jarðskriö-
ið er var þá búið að gera við.
— 1 fyrstu var það erfitt.
Hræðslan við nýtt skrið sat i
manni. 1 fimm ár fór ég upp á
næturnar og leit út. Ég stillti
vekjaraklukkuna svo ég vaknaöi
örugglega á nóttunni.
FÁNASTÖNGIN
BROTNAÐI
Bo Johansson kaupmaður var
sjónarvottur að skriðinu i Surte.
Hann kom hjólandi eftir veginum.
— Allt i einu geystist steinlagð-
ur vegurinn á móti mér. Hjólið
valt um koll. Jörðin steyptist yfir
mig. Mér tókst að ná handfestu og
sveifla mér upp...
— Þegar ég kraup á jörðinni sá
ég hús rakarans koma á fleygi-
ferð á mótj'mér. Ég man enn vel
hvernig flaggstöngin brotnaöi og
stefndi á mig.
Þegar Bo Johansson tókst að
komast heim tii verzlunarinnar
var húsið i tveim hlutum. Olga,
móðir hans, hrópaði úr öðrum
helmingnum.
Hún hafði vakað hjá móður
sinni um nóttina og var ný komin
heim.
— Ég hafði lagt mig á legu-
bekkinn til aö hvila mig smá
stund. Þá sá ég skyndilega að
þakið var byrjað að gefa eftir og
var aö detta ofan á mig. Hvaö er
að ske hrópaöi ég á manninn
minn.
— Hann hrópaði, aö viö yrðum
að reyna að komast út. Hann
hljóp út á tröppur og hvarf meö
þeim. Sjálf reyndi ég aö komast
út i gegnum eldhúsið, en fékk eld-
hússkáp yfir mig. Einum meter
frá mér klofnaöi húsiö.
— Mér varð mikiö um, þegar
ég kom út aftur og sá hvaö haföi
gerzt. Maðurinn minn hafði flotið
meö húshelmingnum sem brotn-
aði frá en hann sat niðri á enginu
næstum þvi ómeiddur, segir Olga
Johansson
VERKSMIÐJAN
FÉLL SAMAN
Föstudag sjö árum seinna varö
árdalurinn fyrir ööru áfalli, Hinn
7. júni 1957 klukkan 11.25 klofnaöi
verksmiöjuhús efnaverksmiöj-
unnar Göte Sulfitfabrik AB fyrir
utan Lilla Edet, sem er nokkrum
kilómetrum fyrir neðan Surte i
tvennt. Ytri endi verksmiöju-
hússins rann niður i á. Stórar öld-
ur brotnuðu á hinum árbakkanum
þegar leirstraumurinn steyptist i
rúmlega 100 metra breiða ána.
Byggingar féllu, oliugeymar
sprungu og þykk olian dreifðist
um allt svæöiö. Járnbrautartein-
Hrúts
merkið
21. mari —
20. aprfl
Af einhverjum ástæð-
um ertu miöur þin og
starfskraftar þinir
nýtast ekki sem
skyldi. Þú munt verða
fyrir töluverðum von-
brigöum.en þegar llða
tekur á vikuna mun
rætast úr málum þin-
um.
Nauts-
merkiö
21. aprfl —
21. maf
Þú stendur i þakkar-
skuld við nákomna
persónu, og þér þykir
leitt að geta ekki
endurgoldið vináttu og
hlýhug hennar.
Misklið eða mis-
skilningur, sem gert
hefur þér lifið leitt að
undanförnu, verður til
lykta leiddur í vikunni
Tvlbura-
merkiö
22. mai —
21. júnf
Þú átt þvi láni að
fagna að geta losaö þig
við tvær skuldir, sem
þú hefur lengi haft
áhyggjur af. Þetta
verður vika viöbrigða.
Venjur, sem þú hefur
tamið þér i sumar,
geta oröið þér til traf-
ala, svo þú verður að
aölaga þig nýjum
aðstæðum.
Krahba-
merkið
22. júni —
23. júlf
Þú hefur áhyggjur af
að geta ekki staöið i
skilum við verk þín, að
þú sért of seinn og
hægfara og aö seina-
gangur þinn muni
valda þér óvinsæld-
um. Þetta eru ástæðu-
lausar áhyggjur, og
engin ástæða til svart-
sýni.
Ljóns
merkiö
24. júlf —
24. ágúst
Tilhneigingar þinar til
sparsemi eru farnar
að likjast hreinni
nlzku! Gættu þin sem
sagt. 1 rauninni ertu
að eðlisfari frekar
gjafmildur.
Meyjar
merkið
24. ágúst —
23. sept.
Þú ert ekki einn af
þeim, sem gleymir
gömlum vinum. Ein-
mitt þess vegna verð-
ur vikan ánægjuleg.
Stjöiimspá
40 VIKAN 37. TBL.