Vikan - 03.01.1974, Síða 6
Langar þig til að vita, hvernig þér vegnar
á þviherrans ári 1974? Þá skaltu gangast
undir prófið hér á opnunni — til gamans
auðvitað.
Nýtt ár er gengið i garð. Það mun
færa þér bæði sorgir og gleði, eins og
alltaf, en af hvoru skyldir þú fá meira i
þetta sinn? Hvemig skyldi lif þitt vera,
þegar þú rifur siðasta blaðið af daga-
talinu 31. desember 1974? Ef til vill
verður þetta hagstætt ár — ár vel-
gengni og framfara. Það er ekki gott að
segja.
En þegar geturðu fengið að vita,
hvaða möguleika þú hefur á komandi
ári. Tilviljun ræður ekki öllu lifi okkar.
Hver er sinnar gæfu smiður, segir mál-
tækið, og talsverður sannleikur er fólg-
inn i þvi. Spurningin er þvi: Ertu gædd-
ur þeim eiginleikum sem þarf til að ár-
ið 1974 verði þér ábatasamt og hag-
stætt.
Ef þú svarar samvizkusamlega og i
fullri alvöru og berð siðan svör þin
saman við ,,réttu svörin”, ættirðu að
verða nokkurs visari.
Og hér koma spumingarnar:
1. Hverju heitiröu sjálfum þér um þessi áramót?
Að verða
a) betri
b) rikari
c) grennri
d) eða finnst þér heitstrengingar um áramót
eintóm vitleysa?
2. Hvernig fannst þér að vakna að morgni hins 1.
janúar? Var það
a) jafnspennandi og að opna dularfullan
jólapakka
b) rétt eins og að vakna á ósköp venjulegum
degi
c) eins og að vakna á morgnana, þegar
sumarfri er á næsta leyti?
3. Hvaða hluti vikunnar likar þér bezt?
a) byrjunin
b) dagarnir i miðri vikunni
c) vikulokin?
4. Ef þú lentir i illdeilum á vinnustað og þér yrði
sagt upp starfi þinu, mundir þú þá álita slikan
atburð:
HVERNIG
VERÐUR LÍF
ÞITTÁ
ÞESSU ÁRI
a) gullið tækifæri þrátt fyrir allt
b) eins og hvert annað mótlæti, sem enginn
fær gert við
c) hörmuleg atburð, sem veldur óbætan-
legu tjóni?
5. Hvað mundir þú gera, ef þú fengir slæmt kvef,
sem vildi ekki batna, og læknirinn úrskurðaði,
að þú þyldir illa vetrarkuldana og þyrftir að
komast í hlýrra loftslag?
a) selja allt sem þú átt að kaupa þér
bananaekru á Kanarieyjum.
b) fylgja ráði læknisins að nokkru leyti og
bregða þér til Majorku, en koma siðan aftur
heim og halda áfram þinu venjulega lifi.
c) skella skollaeyrum við ráðleggingu læknis-
ins og vona, að visindunum takist brátt að
finna upp meðal við kvefi?
6. Hefurðu i huga ráðagerðir um verulega breyt-
ingu á lifi þinu á árinu 1974?
a) Já
b) Nei
7. Gerðirðu margar slæmar skyssur á siðasta
ári?
a) Já
b) Nei
8. Setjum svo, að þú yrðir látinn taka sæti i kvið-
rómi, þótt hann sé raunar ekki til hér á landi,
og ættir að kveða upp dóm i sakamáli. Þú veit-
ir þvi brátt eftirtekt, að dómarinn hefur
greinilega andúð á hinum ákærða. Hann litur i
rauninni þegar svo á, að hann sé sekur. Mund-
ir þú láta þetta hafa áhrif á dóm þinn?
a) Já
b) Nei
6 VIKAN l.TBL.