Vikan - 03.01.1974, Side 15
óhræddur
lét Simon Ward, sem er 31 árs enskur leik-
ari og leikur Winston Churchill i nýjum
sjónvarpsmyndaflokki, gera af sér eftir-
mynd til aö klæða I tizkuftatnað. Hann er
ekki hræddur vlð að það verði honum til
trafala á leikferli sinum, þvi að hann segir
aö fólk sé löngu hætt að kippa sér upp við,
þó að það sjái hvarvetna auglýsingar með
myndum af leikurum.
PÓLSK LJÓSKA
sem heitir Barbara Nielsen er að hasla
sér völl sem kvikmyndaleikkona i V-
Þýzkalandi. Hún er tuttugu og fjögra ára
gömul og var um skeiö gift syni norska
sendiherrans i Varsjá og þá fékk hún
þetta norræná nafn. En hjónabandiö stóð
ekki nema I fjóra mánuöi, þvi að Barbara
gerði sér ljóst að hún var ekki hamingju-
söm og ákvað aö snúa sér aö kvikmynda-
leik og útlitsins vegna ætti hún aö vera
gjaldgeng á þeim markaði.
Fjölbýlishús
Þetta sambýlishus var reist i Moskvu á
siöastliönu ári i tilraunaskyni. 1 þvi eru
900 Ibúöir. Það er einsog sjá má á mynd-
inni hringlaga og portið innan i hringnum
er 154 metrar að þvermáli. Húsið sjálft er
niu hæða. A neðstu hæöinni eru verzlanír
og veitingahús. 26 hliö liggja inn i portiö,
þar sem er að finna leiktæki fyrir börn,
tennis- og fótboltavöll auk blómabeða til
skrauts.
Morosz Czory
var drottning tiu þúsund pólskra Sigauna
og fluttist með fólki sinu til V-Þýzkalands
árið 1958 Hún lézt nýlega i Munchen og
var mikill harmdauði „þegnum” sinum,
sem flykktust að úr öllum áttum, þegar
hún var grafin þar i borginni.