Vikan - 03.01.1974, Blaðsíða 31
spá eftir Völvu Vikunnar
Og hér kemur ný
skeran veröur miklu betri i ár.
Þetta ár verður iðnaðinum
erfitt, sem er kannski ekki ný
bóla, en þar er þó margt að
gerast, og ég sé ekki betur en
okkur bætist alveg ný atvinnu-
grein, það er áreiðanlega eitt-
hvað i sambandi við sjó eða
vatn.
Við fáum okkar skerf af
náttúruhamförum, þó það verði
ekkert i likingu við atburði
siðasta árs, en mér er ógeðfellt
að lýsa þvi nánar, ég vil ekki
vekja ótta hjá neinum. Við verð-
um oftast fyrir einhverju sliku á
hverju ári, og það er ,ekki um
annað að ræða en taka þvi, sem
að höndum ber. Það er hins veg-
ar alltaf óþægilegt að eiga eitt-
hvað yfir höfði sér, og ég vil eng-
an hræða. Við stöndum þetta af
okkur án teljandi erfiðleika.
Meira vil ég ekki um það segja.
Ég sé-fram á mikið öngþveiti i
efnahagsmálum íslendinga.
Verðbólgupúkinn fær nóg að éta,
og það verða a.m.k. tvær gengis-
breytingar á árinu. Heldur verð-
ur ófriðlegt á stjórnarheimilinu,
og þar verða harðástar deilur út
af hernstöðvarmálinu. Hlutur
forsætisráðherra vex i þvi máli,
hann á eftir að standa i ströngu
til að sætta ólik sjónarmið, en
honum tekst að halda stjórninni
saman, þótt geigvænlega hrikti i
undirstöðunum.
Einhvers konar niðurstaða
fæst i herstöðvarmálinu á þessu
ári, og ég held ég ráði það rétt,
að hún verði fremur i anda
framsóknar en alþýðubanda-
lags. Það verður efnt til þjóðar-
atkvæðagreiðslu um þetta mál,
iklega i tengslum við bæjar- og
sveitarstjórnarkosningarnar i
vor. Þær kosningar verða mjög
tvisýnar, og spái ég ýmsum
breytingum að þeim loknum.
Aðalspennan verður i Reykjavik
og nágrenni, en einnig verða
óvænt úrslit á ísafirði, Húsavik
og viðar.
Ég held það verði nokkuð frið-
samlegt á vinnumarkaðinum á
árinu. Þó er einhver stétt, sem á
i mikilli baráttu við vinnuveit-
endur sina, i henni er einkum
kvenfólk, og mér virðist það ein-
kennisklætt, en ég er ekki nógu
viss til þess að segja hreint út,
hvaða stétt þetta er..(Það skal
skýrt tekið fram, að þessi spá
var gerð, áður en nokkuð fréttist
af deilu flugfreyja við sina at-
vinnurekendur.)
Enn sem fyrr eru það hand-
boltakapparnir, sem halda uppi
heiðri íslendinga á iþrótta-
sviðinu. Geir er áfram stærsta
nafnið, og hann kemur til aðstoð-
ar i landsleikjum og verður eitt
af stóru númerunum i heims-
meistarakeppninni, þótt ekki nái
íslendingar þar einu af efstu
sætunum. Ég spáði þeim sigri
yfir Dönum i fyrra, þá vantaði
eitt mark til þess að sá spádóm-
ur rættist. Að visu er ekki óhugs-
andi, að þeir eigi eftir áð keppa,
áður en 1973 er alveg á enda
runnið, en ef þeim tekst ekki að
sigra i þeim leik, þá spái ég
þessum langþráða sigri veru-
leika á árinu 1974.
Ýmsir frægir menn gista
landið á árinu, þó ekki sjái ég
fram á neitt i likingu við topp-
fund Nixons og Pompidous á
siðasta ári. Háttsettir banda-
riskir stjórnmála - og embættis-
menn koma til viðræðna um her-
stöðvarmálið, og i sama tilgangi
verður framkvæmdastjóri
NATO hér á ferð. Við fáum lika
gesti nokkuð langt að með fram-
andlegu útliti, en ég get ekki
ráðið fram úr þvi, frá hvaða
landi þeir koma. Þeim verður
vel tekið. Einnig Willy Brandt,
sem ég þykist sjá hér i heim-
sókn.
Það þarf varla að minna á það,
að 1974 er okkar þjóðhátiðarár,
og eins og margoft hefur verið
skýrt frá, verður auðvitað mikið
um að vera, bæði i héruðum og i
Þingvöllum. Þessar hátiðir fara
vel fram á okkar tiðar mæli-
kvarða, og engin stórvandræði
verða i kringum þær, eins og
margir hafa spáð. Hátiðarhöldin
á Þingvöllum verða með virðu-
leikablæ, enda verður veðrið
nokkuð hagstætt, eða þannig vil
ég túlka þá birtu, sem i kringum
þessa samkomu virðist vera.
Úti i hinum stóra heimi gerist
að vonum margt, sem vert væri
að geta. Fjölmiðlar hafa Nixon
áfram að skotspæni, þó talsvert
hljóðni i kringum hann, og ekki
spái ég þvi, að hann láti hrekja
sig frá völdum. Vinsældir hans
munu m.a.s. heldur fara vax-
andi, þó fremur sé það Kissinger
.að þakka en honum sjálfum. Ed-
ward Kennedy verður mikið i
sviðsljósinu, og fjölskyldumál
hans virðast i nokkru öngþveiti,
þó úr rætist, þegar á liður.
Framhald á bls. 35