Vikan


Vikan - 03.01.1974, Page 34

Vikan - 03.01.1974, Page 34
TlQBIS straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörg- um mynztrum og litum. Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverj- um sem hlýtur. Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og lífgið upp á litina í svefnherberginu. Reynið Night and Day og sannfærizt. # V 4 Samband ísl. samvinnufélaga > INNFLUTNINGSDEILD Óvenjulegur maður Framhald af bls. 22 hjólið hefur verið að renna af, þvi að skyndilega rann það áfram, án þess að hún gæti varað sig á þvi, og yfir annan handlegginn á henni. Hún fann ægilegan sársauka upp i öxlina og rak upp óp, áður en hún missti meðvitund. Hún rankaði samt fljótlega við sér, og þá lá hún á grúfu i sandinum, en handleggurinn var fastur undir hjólinu. Hún lá graf- kyrr um stund og barðist við flökurleika og henni varð fljótt ljóst hve vonlaust ástand hennar var. Hún gat alls ekki hreyft sig. Hún reyndi varlega að hreyfa sig svolitið, sársaukinn var hræðilegur, en henni tókst að skafa svolitiö af sandinum frá með lausu höndinni. En það bar litinn árangur og aö lokum gafst hún upp og lá kyrr i hálfgerðu móki. Timinn var óbærilega lengi að' liða og stundirnar sem hún hafði meðvitund urðu æ styttri, en hún var þakklát meðvitundarleysinu. Hún missti allt timaskyn, dagur varð að nótt, en svo varð bjart og sólin skein beint i andlitið á henni. Hún fann að þorstinn var að gera út af við hana, hana dreymdi um ferskt lindarvatn, fossandi ár og henni fannst hún sjá tæran poll rétt hjá sér, en þegar hún reyndi að ná til hans, hvarf hann með öllu. Þegar leið að kvöldi, var hún komin með óráð, kallaði á Brett, Marion frænku sina og Simon, en þegar henni fannst Charles standa yfir sér, rak hún hann i burtu, Jafnvel þegar hjólinu var lyft og hún tekin mjúklega upp, æpti hún og sagði Charles að fara. — Þetta er ekki Charles, þetta er Brett, heyrði hún að einhver sagði. Þegar hún opnaði augun, sá hún hann eins og i móðu. — Brett, Brett, muldraði hún, — þú komst þá! Og svo lokaði hún augunum. Hann lagði hana varlega niður við hliðina á bilnum, opnaði sjúkrakassa, sem hann hafði komið með, tók upp sprautu og gaf henni kvalastillandi skammt. Svo kinkaði hann kolli til Mulga og þeir báru hana að vörubilnum. Mulga settist undir stýri, en Brett sat hjá Miu aftan á pallinum og hafði nákvæmar gætur á litarhætti hennar og hélt stöðugt um úlnliðinn. Þegar hún'vaknaði, var það fyrsta sem hún sá, að grann- vaxin, ljóshærð stúlka var hjá henni. Sársaukinn var horfinn og hún fann aðeins djúpan og inni- legan frið. — Jæja, væna min, hvernig liður þér núna, heyrði hún einhvern segja. Þegar hún leit I kringum sig, sá hún að hún var i herberginu sina á Tarcoola. — Hvernig....hvernig komst ég hingað? gat hún rétt stunfð upp. — Maðurinn þinn kom heim með þig. Það var sannarlega heppilegt, að hann fann þig svona fljótt. — Hvar....hvar er hann núna? — Hann er hér. Langar þig til að sjá hann? Mia kinkaði kolli. Liklega hafði hún biundað, en þegar hún vaknaði, sat Brett við hliðina á rúminu. Hann var fölur og þreytulegur. — Brett, hvtelaðj hún og rétti fram höndina . ^Haún tók hana blfðlega I sina og þá sá hún að hinn handleggurinn var i gipsi, svo það sáust aðeins fingur- gómanir. — Er hann brotinn? spurði hún. — Já, svaraði hann. — En læknirinn segir að þetta sé ekki slæmt brot, og þú verðir fljót að ná þér. Svo þrýsti hann fast heilbrigðu höndina. — Hversvegna fórstu frá mér? spurði hann. Hún horfði þegjandi á hann, svo fór hún að brosa og það var striðnisglampi i augum hennar. — Til að sjá hvort þér þætti nógu vænt um mig, til að leita mig uppi. Hann skildi ekki strax hvað hún átti við, en svo birti yfir ásjónu hans. — Þætti nógu vænt um þig, Mia ég heföi elt þig til vitis og til baka aftur, ef mig hefði grunað, að þú kærðir þig um mig. — ó, Brett, hvort ég þrái þig. Göði reyndu nú að treysta mér. Ég elska þig. t stað þess að svara, hallaði hann höfðinu á koddann, vafði hana örmum og kyssti hana blið- lega á hálsinn. — Ég hefi verið asni, tautaði hann. — Það höfum við bæði verið. Hún snéri höföinu, svo varir hennar snertu varir hans og þau gleymdu öllu öðru, en þvi eina, að nú voru allir erfiðleikar yfir- staðnir. Læknirinn kom inn. — Hvernig Hður sjúklingnum? spurði hún og virti fyrir sér ljómandi ásjónur þeirra. —Ég sé að ég þarf ekki að hafa áhyggjur. Hiín þarf nú einskis frekar en góðs atlætis. — Það mun hún fá i rikum mæli, sagöi Brett brosandi. Þegar Mia vaknaði, eftir hress- andi svefn, sat Brett við rúmið hennar! — Hvað -er klukkan? spurði Mia. — Rúmlega niu! — Brett, hvenær ferðu að smala nautgripunum? spurði hún. — Hvaða máli skiptir það? Ég gæti jafnvel frestað smölun og samið við járnbrautarfélagið. — Viltu þá taka mig með þér? — Heldurðu að þú sért nógu sterk til að þola það? Það er löng leið. — Mig langar svo til þess. Og svo ætla ég að segja þér eitt, ég læt þig aldrei fara frá mér aftur, ég vil ekki vera hér ein og yfir- gefin. Þú verður aö taka mig með þér. Hann vaföi hana bliölega örmum og hallaði sér að brjósti hennar. Sögulok. Meö Kari á gamlárskvöld Framhald af bls. 14 Ég varð snortinn af einlægni hennar og meðan ég var að leita að orðum til að tjá mig, sagði hún: — Þér hafið kannski áhug á mér sem lækni? Þetta var i fyrsta sinn, sem ég varð var við biturleika i rödd hennar. — Frá mlnum sjónarhöli eruð þér fullkomlega heilbrigð stúlka, sagði ég. — En hafið ér ekki tekið eftir þvi, að ég sé eitthvað viötuan? Þegar hún sagði þetta, var hún eitthvað svo hjálparvana, að mig langaði helzt til að taka hana I faðm mér og hugga hana. — Getum við ekki verið vinir, sagði ég. — Þér — þú — getum við ekki komið okkur saman um, að þú þarfnist ekki læknis. Þú ert i þörf fyrir vin. — Það getur enginn hjálpað mér, sagði hún, — þetta er of langt gengið. An þess að segja nokkuð frekar, sneri hún sér við og gekk 34 VIKAN l.TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.