Vikan - 05.12.1974, Blaðsíða 8
bar hann fram þá tillögu, að fslenska þjóðin
reisti f Saurbæ minningarkirkju um séra
Hallgrim.
Kátt varð þó um framkvæmdir framan af,
en upp úr 1930 komst nokkur skriður á málið,
og þá voru skipaðar Hallgrfmsnefndir f
fiestum sóknum landsins, og áttu þær að hafa
forgöngu um fjársöfnun til kirkjubygg-
ingarinnar. Efnt var til samkeppni um
teikningu að kirkju i Saurbæ, en engin tillaga
fann náð fyrir augum dómnefndar. Var
Guðjón Samúelsson húsameistari rikisins þá
fenginn til að teikna kirkjuna og var bygging
hafin samkvæmt teikningu hans, en verð-
hækkanir, sem fylgdu I kjölfar styrjaldar-
innar, komu i veg fyrír, að verkinu yröi lokið
og lá kirkjubygging i Saurbæ niðri fram yfir
1950. Þegar hafist var handa um kirkju-
byggingu að nýju, var horfið frá þvi að
byggja samkvæmt teikningu Guðjóns, og
arkitektarnir Sigurður Guðmundsson og
Eirikur Einarsson fengnir til að gera nýja
teikningu. Samkvæmt teikningu þeirra var
svo Hallgrfmskirkja f Saurbæ reist á árunum
1954 til 1957 og vigð 28. júli 1957 af Ásmundi
Guömundssyni þáverandi biskupi. i vigslu-
ræðu sinni lagði biskup út af svofelldum
orðum II. Mósebókar: „Drottinn sagði: Drag
skó þina af fótum þér, þvi að sá staöur, er þú
stendur á, er heilög jörð.”
Engin orð lýsa betur andrúmsiofti Hall-
grfmskirkju I Saurbæ. Hún er full friöar og
helgi og minnir fagurlega á andagift
skáldsins, „er svo vel söng, að sólin skein f
gegnum dauðans göng.”
Gluggar kirkjunnar, sem Gerður Helga-
dóttir hefur gert, gefa henni sérstakan svip.
Stafnglugginn er elstur þeirra, og sá eini,
sem listakonan gerði, áður en kirkjan var
vfgð. Hinir gluggarnir eru tfu ára'
gamlir. Lltmyndirnar hér á siðum Vikunnar
gefa ekki nema örlitla hugmynd um gerð
glugganna, en það er stutt niður að Saurbæ af
alfaraleið um Hvalfjarðarströndina og
kirkjan þar vel þess virði að hún sé skoðuð.
Tról.
Drottinn
og lífsins
stjarna
Jóhannesarguðspjall 1:1-14.
Séra Jón Einarsson, Saurbæ.
8 VIKAN 49. TBL.