Vikan - 05.12.1974, Side 10
Ævintýraheimur barnanna.
Walt Disney's útsaums myndir og í fyllt,
sem settar eru í ramma.
* , KtA* | í r ; i i
m mF ;
Einnig mikill fjölrii af öðrum barnamyndum
í grófan stramma, áteiknað og úttalið.
Fyrir stúlkur og drengi, frá 6-9 ára.
- Tilvalið til gjafa.
Skólavörðustíg 13a
Sími 19746 - Pósthólf 58
Reykjavík
Sendum litmyndalista i pústi et osKaö er.
Dósturinn
Sjúkraliði og fleira
Hæ, Póstur minn!
Ég vil byrja á aö þakka fyrir
allt gott i Vikunni. Hér koma svo
nokkrar spurningar.
1. Hvaða menntun þarf til að
komast i: a) hjúkrunarnám, b)
sjúkraliðanám?
2. Hvað er hjúkrunarnámið
langt, og hvað er sjúkraliðanámið
langt?
3. Hvaða menntun þarf til að
geta orðiö flugfreyja? Er eitt-
hvert aldurstakmark?
4. Hvað lestu úr skrjftinni?
Ég vona, að ég fái svar við
þessum spurningum. Bless, Póst-
ur minn.
Daddý
1. Menntunarskilyröi til
hjúkrunarnáms er aö hafa lokið
landsprófi eða námi á hjúkrunar-
sviöi I framhaidsdeildum gagn-
fræöaskólanna. Sjúkraliöanemar
þurfa aðeins að hafa lokiö skyldu-
námi.
2. Hjúkrunarnámið tekur 3 ár,
sjúkraliöanámið 1 ár
3. Umsækjendur um flugfreyju-
störf þurfa aö vera orönir 20 ára
og hafa góöa almenna menntun
og gott vald á ensku og einhverju
ööru tungumáli, helst Noröur-
landamáli, þýsku eöa frönsku.
Skriftin bendir til þess, aö þú
hafir mikla ábyrgöartilfinningu.
Á tvær ruslakörfur
Kæri Póstur!
Mig langar til að fá vitneskju
um hjúkrun, ef þú vilt vera svo
vænn að svara nokkrum spurn-
ingum fyrir mig.
Hvað þarf ég að vera gömul til
að fá inngöngu i hjúkrunarskól-
ann? Hvaða menntun þarf ég að
hafa? Hvað tekur námiö langan
tima? Mér þætti vænt um, ef þú
vildir vera svo góður að svara
þessu fljótlega, þvi að það liggur
á, þegar námið er annars vegar.
Svo er það, sem allir spyrja um
og lfka ég: Hvernig er skriftin, og
hvað lestu úr henni? Hvað heldur
þú, að ég sé gömul? Ég er viss
um, að þú lætur þetta ekki falla
undir skrifborö og ofan I bréfa-
körfu, þvl ég hef litla trú á henni,
þótt ég eigi sjálf tvær!
Þin einlæga Dún
Svör viö spurningum þinum um
hjúkrunarnám færöu i svörum
minum viö næsta bréfi á undan,
nema hvaö þvi má bæta viö, að
hjúkrunarnemar skulu hafa náö
18 ára aldri. Skriftin er hreint
ekki falleg, en þaö getur nú lag-
ast, þvl ég giska á, aö þú sért ekki
nema 15 ára. Skriftin gefur ann-
ars til kynna, aö þú sért skapgóð
og dugleg stúika. En til hvers I ó-
sköpunum þarftu tvær ruslakörf-
ur? Mér nægir alveg ein, en hún
er reyndar ákaflega rúmgóö.
Enn um kanann
Kæri Póstur!
Það er nú dálitiö erfitt að skrif-
ast á i gegnum þig um áhugamál
liðandi stundar þvi að það tekur
svo langan tima að fá bréfin birt.
En ég get nú ekki stillt mig um að
leggja orð i þann umræðubelg um
kanasjónvarpið, sem Atli nokkur
opnaði fyrir nokkrum vikum og
einhver Erla svarar svo i Póstin-
um i 43. tbl. Mér finnst algjörlega
óþolandi sú meinloka, að allir
hljóti að vera kommar, eins og
Erla segir, sem eru á móti kana-
sjónvarpinu. Satt er það, komm-
arnir hafa hæst og eru orðljótastir
i garð kananna, en ég vil mót-
mæla þvi harölega, að við séum
öllálitin kommúnistar, sem erum
á móti þessu kanasjónvarpi. Ætti
að nægja i þessu sambandi að
benda á prýðilega grein, sem Sig-
urlaug Bjarnadóttir, alþingis-
maður, skrifaði i Morgunblaðið
snemma i október, þar sem hún
setti einmitt á svo skýran hátt
fram sjónarmið okkar, sem telj-
um kanasjónvarpið ólöglegt. Það
stóð heldur ekki á þvi, að kanaað-
dáendurnir tækju við sér og skrif-
uðu hverja greinina af annarri til
varnar kanasjónvarpinu. Þetta
virðist mikiö hitamál á báða
bóga, og helsti gallinn við allar
þessar umræður, hvar sem þær
fara fram, er sá, að fólk talar
aldrei út frá sömu forsendu. And-
stæðingar kanasjónvarpsins eru
ekki á móti kanasjónvarpinu sem
sliku, það á bara ekki rétt á sér
hér á Islandi, þar eð Islensk lög
heimila ekki öðrum en ríkinu að
reka útvarp og sjónvarp. Þið
kanasjónvarpsaðdáendur byrjið
á vitlausum enda. Berjist fyrir
þvi, að útvarps- og sjónvarps-
rekstur sé gefinn frjáls á Islandi,
og þá þurfið þið ekki lengur að
skrökva þvi að sjálfum ykkur, að
takmörkun kanasjónvarpsins sé
skerðing á persónufrelsi, svo að
maður bregði nú fyrir sig þessu
útjaskaða orði. Og ég held menn
ættú svona hver fyrir sig i ró og
næði að hugsa um, hvað orðiö
frelsi þýöir. Vilja menn virkilega
leggja þá merkingu i oröiö frelsi,
að ALLT sé leyfilegt? Eigum við
þá engin lög að hafa? Eru lög ekki
skerðing á persónufrelsi?
Jæja Póstur góður, ég læt þá
staöar numið hér, en mig langar
að lokum að láta það álit mitt i
ljósi, að Vikan sé allgott heimilis-
blað. Ég finn það helst að henni,
að hún tekur svo langan tima i
vinnslu, að t.d. svona merkis-
þættir eins og Pósturinn tapa dá-
litið gildi slnu. Og ykkur hlýtur að
vera taisvert þröngur stakkur
skorinn, þegar þið þurfið að
vinna efnið svona langt fram i
timann. En hvað um það, ég óska
Vikunni langra lifdaga og vona,
að hún eigi eftir að þykkna svolit-
ið, svo að rúm verði fyrir fjöl-
breyttara efni. Með bestu kveðju
og þökkum, ef af birtingu þessa
bréfs verður. Sjöfn
Skrifið eða hringið. - Svo eruð þið auðvitað velkomnar.
OPIÐ A LAUGARDÖGUM FRA 9-12.