Vikan - 05.12.1974, Page 15
þeir sáu fjallstind upp úr
sortanum. Þeir ræddu um, hvaða
fjall þetta myndi vera, en enginn
treysti sér til þess að kveða upp
öyggjandi dóm. Það varð að ráði
að biðja Pétur Ólafsson matsvein
að koma á þilfar. Hann hafði lengi
verið til sjós á Vestfjörðum og
þekkti hverja gnipu.
Pétur kom upp og sagöi um
leið, að hér væri ekki um að
villast. Þeir væru staddir út og
suður af Kóp, nesinu milli Arnar-
fjarðar og Tálknafjarðar. Frá þvi
að norðanfárviðrið skall á hafði
skipið rekið undan þvi alla leið
suður i Patreksfjarðarflóa.
Baldvin skipstjóri ákvað nú að
leita hafnar á Patreksfirði.
Mannskapurinn var kallaður á
þilfar. Nú fengu lika þeir yngstu
að koma á þilfar, en skipstjóri,
hafði skipað þeim að vera niðri
þangað til. Þeir komu upp fokku
og tvirifuðu og létu þririfað stór-
seglið standa. Messanseglið var
einnig rifað og nú var hver maður
á sinum stað til þess að aka
seglum. Tveir menn við stýrið,
þeir Jónas Hallgrimsson stýri-
maður og Vilhjálmur Grimsson.
Þegar hér var komið hafði dregið
nokkuð úr veðrinu og þeim gekk
vel að snúa skipinu undan. Stefna
var nú tekin sunnan við Tálkna á
opinn Patreksfjörð. Kútter Július
óð nú á söxum undan storminum
þvi ennþá var hvasst. Allir-skips-
menn stóðu frammá skipinu
nema þeir sem stýrðu.
Skyndilega lygndi, og i sömu
andrá hóf sig brot skammt fyrir
aftan skipið, æddi að þvi og
steyptist inn yfir hekkið. skiP-
stjórinn kallaði og bað alla að
halda sér. Þeir sem voru framá
sáu félaga sina við stýrið hverfa
inn i sjávarskaflinn, skipið sogast
i kaf að aftan og brotsjóinn koma
æðandi fram eftir. 1 sama bili
rauk sjórinn i kring, og skörp
vindhviða skall á skipinu, sem nú
var við það að ganga undir.
Stormhviðan fyllti seglin, skipið
fékk framskrið og reif sig undan
sjávarfarginu. Um leið rifnaði
stórseglið, og messanseglið
sviftist sundur. Sjórinn fossaði út
af skipinu, sem nú hraktist undan
veðrinu, brotið með rifin segl.
Tvö brot fylgdu þvi fyrsta, en nú
var skipið komið innfyrir boðann,
og þau féllu rétt aftan við það.
Brotsjórinn hafði brotið stýris-
hjólið og kastað mönnunum
báðum, öðrum undir það en
hinum fram undir lifbátinn, þar
sem hann náði hand festi. Átta-
vitahúsið hafði brotnað og farið
fyrir borö og fleira brotnaö og
skemmst. Það reið baggamuninri,
að káetukappinn hélt, þótt brotið
skylli á honum. Allir voru skips-
menn ómeiddir, nema þeir sem
voru við stýrið. Þeir höfðu hlotiö
skrámur.
Þeir hagræddu seglum, og
nokkrusiðar varakkerum varpaö
á Patreksfirði. Þar var legið i tiu
daga, meðan gert var við skipið.
Smlðað nýtt áttavitahús, segl og
falir bættir og endurnýjaðir.
Arla morguns, tiu dögum eftir
komu til Patreksfjarðar, var létt
og haldið út á ný. Veður haföi
veriösæmilegt þennan tima, en á
útmánuðum er allra veðra von á
Vestfjarðarmiðum. Það var bjart
i lofti að morgni 8. april,
þegar kútter Július sigldi fyrir
fullum seglum norður með Kópa-
nesi. Siðan var stefna sett norð-
austur með fjörðum.
Skipið hafði góðan framskrið,
og niður sjávarins við súðina lét
vel I eyrum. Þeim hafði gengið
vel að fiska áður en óhöppin
steðjuðu að: veikindi skipverja og
siðan áfall. Ef allt gengi eftir yrði
fullfermi skipað upp á Akureyri
áður en langt um liði.
Hann hafði lygnt, þegar kom
undir kvöld, og um það leyti er
þeir höfðu Barðann I fjórum
strikum i stjór andaði af norð-
austri. Þeir tóku slag útum og
siðan uppum, og seint um kvöldið,
er þeir voru fyrir opnum
önundarfirði, skall bylurinn á.
Hann var orðinn rokhvass, þegar
Baldvin skipstjóri lét leggja
skipinu til drifs. Þrátt fyrir
hriðarsortann sáu þeir ljós á
öðrum skipum, sem ýmist létu
drifa eða voru á leið inn á
önundarfjörð.
Þegar skipstjóravaktin fór
niður um miðnætti var dimm
hrið. Ekkert sást út frá skipinu.
Akveðið var að halda við þarna i
landvari þar til birti.
Það var seint á hundvaktinni,
sem skipið tók niðri. Menn sem
voru i koju, voru kallaðir á þilfar.
Þótt ekki sæist til lands þótti vist,
að skipið væri strandað við
norðanverðan önundarfjörð. Nú
var útfall, og þótt skipið stæði
kjölrétt i fyrstu hallaðist það
brátt á stjórnborða. Menn báru
saman ráð sin, og ákveðið var að
biða i skipinu, þar sem hætta
virtistekki yfirvofandi. Yfirmenn
gerðu ráð fyrir, að skipið losnaði
á flóðinu. Skipsbáturinn stóð i ^
sketpar
oryg&i
fyrir þig og þina
4
Frægur sigur vannst
í baráttunni við berklana.
Nú gefst hvers konar öryrkjum
kostur á að endurheimta
heilsu og orku með þjálfun og
störfum við hæfi á Reykjalundi og
Múlalundi. Enn þurfa margir
að bíða eftir vist og vinnu.
En uppbyggingin heldur áfram.
Með þinni aðstoð — þátttöku í
happdrætti SIBS.
Happdrætti SÍBS
vinningur margra, ávinningur allra.
49. TBL. V1KAN 15