Vikan


Vikan - 05.12.1974, Side 21

Vikan - 05.12.1974, Side 21
....og maður er orðinn svo góðu vanur, að mér finnst ekkert gaman að fara i leikhús, nema sitja sem fremst f slanum". tekur allar ákvarðanir. Svo er það i verkahring leikhússtjóra að vera fulltrúi og talsmaður leik- hússins á þeim mannamótum og stefnum, sem leikhúsið tekur þátt i. Hann þarf að fylgjast sæmilega vel með þvi, sem er að gerast, og skreppa til útlanda öðru hverju og sjá, hv^ð.er að gerast i helstu ingu, þvi það er erfitt að sitja heima við skrifborðið sitt og vera að fást við eitthvað, sem enginn hefur tima til að 'sinna. Þess vegna reyni ég að vera sem mest við á venjulegum skrifstofutima. En þegar heim kemur er oft eftir önnur eins vinna við að lesa og reyna að gæta þess að dragast ekki aftur úr i neinu, sem við kemur leikhúsmálum almennt i heiminum. Við erum komin í svo nána snertingu við alþjóðlega menningu og farin að taka þátt i henni sem virkir aðilar, bæði þiggjendur og veitendur. Utan leikhússins og skólastof- unnar hefur Vigdis um margra ára skeið gert sitt besta til að kynna erlendum ferðamönnum Island og islenska menningu, beint og óbeint, þvi hún hefur bæði verið leiðsögumaðui: sjálf og kennt verðandi leiðsögumönnum. Hvernig fór hún inn á þá braut? — Störf min að ferðamálum komu sem mjög eðlilegt framhald af þvi að vinna við leikhús og kennslu, þvi hvort tveggja liggur niðri á sumrin, meðan túrisminn blómstrar. Það liggur i augum uppi, að manneskja, sem er kenn- ari og vön að koma ákveðnum upplýsingum til skila og er þar að auki frönskumælandi, getur kom- ið að liði við landkynningu. Ég var drifin i þetta fyrir tilviljun eitt sumar, meðan ég var hér „En aftur á móti held ég, að allir kennarar, sem ná einhverjum árangri I starfi, séu að einhverju leyti leikarar”. heima i sumarfrii frá námi minu i Frakklandi. Þá kom hingað franskt skemmtiferðaskip,og hringt var út um allan bæ til aö reyna að grafa upp frönskumæl- andi fólk til að fara með farþeg- unum i ferðir hér. Ég fór með hluta hópsins að Gullfossi og Geysi, stóð I miðjum bil og reyndi að hropa einhvern fróðleik yfir farþegana, þvi þetta var fyrir daga hátalaranna, sem nú þykja algjört frumskilyrði þess að leiðsögumaðurinn geti unnið sitt starf. Síðan æxlaðist þetta þann- ig, að ég fór að vera i þessu sum- arlangt, og tvö sumur kom ég varla út úr bil. Ég kynntist smám saman skipulagningu ferðamála og fór að vinna á Ferðaskrifstofu Rikisins á sumrin og endaöi þar sem eins konar landkynningar- stjori, þ.e. sá um móttöku er- lendra blaðamanna og annarra, sem vildu fá upplýsingar um landiö. Siöustu 6 vetur hef ég svo ásamt Birni Þorsteinssyni sagn- fræðingi séð um að skipuleggja leiösögumannanámskeið Ferða- skrifstofu rikisins. — 1 þessu upplýsingastarfi hefur það komið mér til góða, að ég hef alltaf haft feikilegan áhuga á sögu. Sagan tengist lika leik- bókmenntunum, þvi lesi maður leikbokmenntir verður maður jafnhliða að kynna sér söguna svolitið, þvi leikritin eru eins kon- ar bergmál af þvi, sem er að ger- ast i þjóðfélaginu. — En þetta var útúrdúr, þvi við vorum að tala um Islandskynningu. Ég hef mikið yndi af öllu sem islenskt er. Ég er að visu ekki aðdáandi alls þess, sem hér hefur gerst, en mér finnst það mikið umhugsunarefni. Og mér finnst ákaflega gaman að reyna að gefa erlendum manni hlutdeild i þessu: reyna að gefa honum mynd af þvl, hvers vegna við erum hér og hvernig við höf- um lifaö af þessa eílifu baráttu leikhúsborgum. Svo þarf leikhús- stjóri umfram allt aö reyna að vera manneskja og tilbúinn að taka á móti fólki og spjalla við það. Þaö fer mikill timi i að tala við fólk. Það eru svo margir að skrifa leikrit, og það þarf að lesa þau og fjalla um þau, reyna aö gefa ábendingar og styðja þá, sem manni finnst eiga að fá hvatningu. Þaö þurfa reyndar all- ir, sem eru að skrifa, að fá hvatn- Fékkst þú þér 49. TBL. VIKAN 21

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.