Vikan - 05.12.1974, Side 25
GÓÐ
Smásaga
eftir
Gustav
Wied.
A jólakvöldiö vorum við i jóla-
boöi hjá Larsensfjölskyldunni.
ÞaB var reyndar ekki ætlunin.
Viö höfðum ætlað að gæöa okkur á
gæsinni einir og spila þriggja
manna lomber á eftir, drekka
konjak og reykja havanavindla,
og ég hafði aliö þá flfldjörfu von í
brjósti, að í spilunum tækist
mér að vinna þessar áttatíu krón-
ur sem ég átti að greiöa á miö-
nætti á nýársnótt.
Munið:
Á morgun getur verið of
seint að fá sér slökkvi-
tæki.
Ólafur Gíslason
& Co h.f.,
Klettagörðum 3.
Sími: 84800.
V I M ...............J
En skömmu fyrir hádegiö feng-
um við skilaboö af efri hæöinni,
okkur var boðiö að koma og horfa
á jólatréð klukkan sex. Það fylgdi
sögunni, að þar yrðu fáéin börn.
Ég vildi heldur lomberinn, en
hinir tveir eru viðkvæmari I lund
og lögöu til, að viö veldum jóla-
tréð og börnin. Og það varð úr.
Klukkán sló sex, og við vorum
aö byrja að jafna okkur eftir mat-
inn. Við höfðum borðaö gæsina
klukkan fjögur og komið okkur
svo vel fyrir með kaffi og konjak,
einn I sófanum, einn I ruggustóln-
um og einn I hægindastólnum I
horninu undir myndinni af ömmu.
— Æjá, guð, já, já! sagði sá elsti
okkar, sem var lögmaður og við
hinir dvöldumst hjá — það er gott
aö vera I henni Danmörk litlu! Og
svo geispaði hann og teygði úr
sér, svo aðbrakaði I liðamótunum
á honum.
— Jæja, er það! sagði ég og
andvarpaði.
En sá yngsti okkar, sem var af-
greiðslumaður I dreglabúð, sagði
ekki neitt, þvi að kærastan hans
var I Rödby.
Þá heyrðum við einn drengj-
anna uppi koma hlaupandi niður
stigann og rffa dyrnar hjá okkur
upp á gátt.
— Nú kveikja þau, nú kveikja
þau, hrópaði drengurinn, tók I
handlegginn á mér og dró mig af
stað. Hann dró mig upp eldhús-
stigann, gegnum eldhúsið og
svefnherbergiö og inn I boröstof-
una. Þar stóðu sex eða átta börn
eftirvæntingarfull á svip.
— Þau kveikja þarna iijni!
hvlslaði drengurinn og benti á
hurðina að dagstofunni, sem var
lokuð.
Nú komu lögmaðurinn og sá
trúlofaði. Lögmaöurinn’ settist
strax I hægindastól og tók litla
stúlku á hné sér. Hann kitlaði
hana I hálsakotið, svo hún skrikti
af gleði. Sá trúlofaði kom sér fyrir
inni I horni og brosti út i annað
munnvikið yfir. samkomuna,
Dyrnar voru opnaðar. Og þarna
stóð tréð, og á því höfðu öll ljós
verið kveikt. Það lá við, að birtan
skæri mig i augun. Ég ætlaði að
bera svolítiö augnvatn i þau, en
ég geymi alltaf augnvatnsglas i
vasa minum, en áður en ég vissi
af, tók einhver i hendina á mér,
og ég var farinn að ganga I kring-
um jólatréð.
— Heyriö þið, hugsaði ég —
þetta var nú ekki ætlunin.
En ég varð að gera svo vel að
ganga kringum fréð. Og svo fóru
börnin að syngja:
— Heims um ból, helg eru
jól....! sungu þau.
— Já, þið getið sungið, hugsaði
ég. — Þið eigið ékki að grejöa
áttatiu króna skuld klukkan tólf á
nýársnótt!
Logmaðurinn var I essinu sinu.
— Syngdu með, kallaði hann til
min og blés mæðinni eldrauður i
framan.
— Ég get það ekki, sagði ég —
ég er svo hás.
Stuttu seinna hættum við göng-.
unni, og allir tóku gjafir sinar af
trénu.
— Bara að þú fengir nú áttatiu
krónur! hugsaöi ég, þar sem ég
stóöog þreifaöi.á kandisblómi. Og
ég leit yfir til lögmannsins, en ég
hafði skrifað honum um nauðir
minar og stilaö bréfiö til jóla-
sveinsins, en hann haföi ekki
minnst á það allan daginn. Nú
stóð hann og drap tittlinga fram-
an i mig, meöan hann batt slaufu I
hárið á brúðu i rauðum kjól, sem
ein litlu stúlknanna hafði fengið.
Ég varö vonbetri.
— Ef ég fengi pakka með átta-
tiu krónum i, hugsaði ég. — Þá
skal ég svei mér syngja!
Sá trúlotaði stóð enn i horninu
milli bókaskápsins og pianósins,
og nú reif hann upp stórt umslag.
Andlithans ljómaði allt. Og þegar
hann var búinn að ná upp bréfinu,
kyssti hann það þegjandi. Hann
tók ekkert eftir þvi, sem gerðist i
kringum hann.
— Guö minn góður, hugsaði ég
— þaö er sjálfsagt frá Rödby! Ef
ég væri ungur eins og hann! Og
öll gleöin i kringum mig varð til
þess eins, að mér leið enn verr en
áður.
— Hér er eitthvað handa þér!
hrópaði allt i einu drengurinn,
sem stóð við híiðina á mér. Þetta
var sami drengurinn og haföi sótt
mig niöur um daginn og leitt mig
kringum jólatréð. Hann rétti mér
böggul.
Ég þreifaði á honum og var
mjög óstyrkur. Hann var mjúkur.
1 'honum gætu sem best verið
nokkrir tiu krónu seðlar. Ég leit á
lögmanninn. Og hann drap enn
tittlinga framan I mig. — Heims
um ból, helg eru jól! söng innan i
mér, þegar ég fór að taka utan af
bögglinum. Ot úr honum kom
eitthvað rauöleitt. — Það eru ti-
kallar, það eru tikallar, hugsaði
ég og lifsgleðin gagntók mig. Aft-
ur fann ég gömlu jólasemning-
una kringum jólatréö, söng, gjaf-
ir og gleði.... En hver fjárinn var
þetta! Þetta rauða voru ekki pen-
ingaseölar. Það var ullarflik!
Ég leit enn á lögmanninn. Hann
skemmti sér konunglega.
Ég vafði öllum þappirnum utan
af þessum rauða hlut, vafði og
vafði. Og eftir þvi sem ég vafði
lengur, varð ég langleitari og
langleitari. Og ég er nærri viss
um, að ég grét hljóðlega, þegar ég
stóö loksins með hnjáskjól i hönd-
unum, rauð ullarhnjáskjól með
bláum leggingum.
Lögmaðurinn þreif þau af mér
og sýndi húsmóðurinni.
— Ég bjó þau til sjálfur, frú
Larsen.
— Þau eru falleg! sagði frú
Larsen. — Og meö bláum legg-
ingum.
Og allar konurnar dáðust að
verki lögmannsins, börnin
gleymdu leikföngunum sinum, og
meira að segja sá nýtrúlofaði
stakk stúlkunni frá Rödby i vas-
ann til þess að geta komið nær og
séö hnjáskjólin.
En ég vissi ekki mitt rjúkandi
ráð. Mér fannst einna helst, að
ljósin á jólatrénu mynduðu eld-
skrift I loftinu, og þar stæði skýr-
um stöfum: Klukkan tólf á nýárs-
nótt!
— Ertu ekki ánægöur með þau?
spurði lögmaðurinn og færöi mér
hnjáskjólin aftur.
— Jú, sagði ég og brosti eins og
kornabarn með magakveisu. —
Jú, ég er mjög ánægöur!
— Þú segir, að þér sé alltaf svo
kalt á hnjánum!
. — Já, hræðilega!
— A hnjánum? sagði hann aftur
og deplaði augunum.
— Já, mér er oft kalt á hnján-
um! sagði ég sannfærandi.
— Já, en ertu þá ekki feginn að
fá hnjáskjól?
— Jú, það veit guð, sagði ég og
reyndi að hrista af mér áhyggj-
urnar.
— Jú, það er ég! Ég er yfir mig
ánægöur með hnjáskjólin! Þakka
þér fyrir gamli vinur. Þessu skal
ég aldrei gleyma!
Lögmaðurinnn brosti. Og ég
held hann hafi snúist svona hratt
á hæli til þess eins aö leyna glott-
inu, sem hann sendi mér.
Ég hefði getaö löðrungað hann
með hnjáskjólunum! Og heföi
hann ekki snúiö sér undan, hugsa
ég, að ég hefði látiö verða af þvi.
Klukkan hálf niu lauk jólatrés-
gleðinni, og viö fórum niður og
settumst við aö spila lomber.
En fyrst vildi lögmaðurinn
endilega, aö ég færi úr buxunum
og mátaði hnjáskjólin. Ég leyföi
honum aö toga af mér buxurnar
og vonaði, aö það bliðkaði hann
svolltið, þvi að enn haföi ég ekki-
gefið upp alla von...
En á eftir spiluðum við lomber,
við drukkum rommtoddý, og við
reyktum vindla. Þaö varð mjög
heitt I herberginu. Ullarhnjá-
skjólin fóru að pirra mig, og átta-
tiu krónurnar nöguðu mig i hjart-
að. Augu lögmannsins glóðu af
kátínu, og yfirskeggið á honum
iiristist af velliðan. Sá trúlofaði
tók bréfið öðru hverju upp úr vas-
anum og skoðaði það i krók og
kring. En ég lagaöi toddý og lag-
aði toddý og drakk og drakk,
drakk skál fööurlandsins, drakk
skál járnbrautarinnar til Rödby,
drakk skál alls milli himins og
jarðar. Og smám saman tókst
mér næstum að gleyma áttatiu
krónunum, og mér fannst eins og
enn væri harla l.angt til nýársnæt-
urinnar. Þar kom, aö lögmaður-
inn og sá nýtrúlofaði urðu að
leggja mig til hvilu I rúmið mitt...
Daginn eftir tók ég mér morg-
ungöngu eftir þjóðveginum, sem
liggur út úr bænum langt út i
heiminn.
Snjór var yfir öllu. 011 jörðin
var hvit og fögur, himinninn var
grár og ég var meö höfuöverk.
Eiginlega var ég þó ekki með
venjulegan höfuðverk, réttara
væri að segja, að ekki hafi allt
veriö með felldu I höfðinu á mér.
Mér fannst ég yrði aö muna eitt-
hvað, en ég gat ómögulega rifjað
upp, hýað það var.
Nokkrir bóndadrengir I bláum
bómullarfötum og á tréskóm
komu gangandi á móti mér. Það
var rétt svo skóhljóð þeirra
heyrðist I snjónum og mér fannst
þessir bóndadrengir vera ótrú-
lega litlir. A milli sin báru þeir
stóra körfu, og upp úr henni sá I
nefiö á svinshaus.
— tJff! Nú ætlar einhver stór-
karlinn aö fara að éta á sig gat!
hugsaði ég.
— Gleðileg jól! sögðu bónda-
drengirnir og tóku ofan. Ég ans-
aði þeim ekki, þvi að ég var I svo
slæmu skapi. Ég vissi ekki hvers
vegna. En þegar mér varð litiö
niðrum mig, skildi ég hvað var
aö. Ég var ekki i neinum buxum.
HANSA-húsgögn
HANSA-gluggatjöld
HANSA-kappar
HANSA-veizlubakkar
Vönduð íslenzk framleiðsla.
Umboðsmenn um allt land.
J
24 VIKAN 49. TBL.