Vikan - 20.03.1975, Blaðsíða 36
Parísarhjólio
Jassballett var ákaf-
lega vinsælt skemmti-
atriði hér fyrir nokkrum
árum, meðan hann var
nýlunda, en að undan-
förnu hefur litið borið á
þessari listgrein.
Jassballettinn lifir þó
góðu lifi, og nýlega hélt
Jassballettskóli Báru
upp á 10 ára starfsaf-
mæli sitt með veglegri
kabarettsýningu i Há-
skólabiói, sem bar
nafnið Parisarhjólið.
Parisarhjólið var
byggt upp af mörgum
dansatriðum, og var
hvert atriði sjálfstæð
saga. Bára Magnús-
dóttir samdi öll atriðin
sjálf, en Edda Þórarins-
dóttir leikstýrði, Gunnar
Bjarnason gerði leik-
myndir, og ljósa-
meistari var Ingvi
Hjörleifsson. Auk dans-
flokks skólans kom
þarna fram hljómsveit
Ragnars Bjarnasonar
og Edda Þórarinsdóttir,
sem m.a. sögn lag úr
söngleiknum Kabarett,
og ekki má gleyma Karli
Einarssyni grinista,
sem var I einlægum
vandræðum með hjólið
sitt.
Var Parisarhjólinu vel
tekið af áhorfendum og
þótti bjóða upp á
nýbreytni i skemmtana-
lífi höfuðborgarinnar.
Vilhjálmur Ragnarsson
fylgdist með æfingu á
Parisarhjólinu og tók þá
nokkrar myndir, sem
hér birtast.
36 VIKAN 12. TBL.
i