Vikan - 07.08.1975, Side 40
Andafundur i ganginum
Kæri draumráðandi!
Ég ætla að biðja þig að ráða eftirf arandi draum f yr-
ir mig.
Mér f annst ég vera að koma að húsinu heima, en þá
gerði ég mér Ijóst, að það var einhvers konar anda-
fundur í ganginum hjá mér, því að ég gægðist inn um
bréfalúguna. Allt í einu var ég stödd í herbergi stráks,
sem ég kannast við, og spurði hann, hvernig ég ætti að
fara að því að komast heim til mín, þvi að ég þyrfti að
gera eitthvað sérstakt þar. Strákurinn lá uppi í rúmi
og las í rauðri bók, og sagðist ekki vita, hvernig ég ætti
að komast heim.
Allt í einu var ég komin á tröppurnar heima, og þá
kom fólk út úr húsinu. Meðal þess var einn kunningi
pabba, sem bauðmér sælgæti. Þar var líka arabi með
einhvers konar hvítt hreinlegt höfuðfat.
Þakka birtinguna.
Edda
Þessi draumur er fyrir einhvers konar átökum
heima hjá þér. Þú heldur, að þú getir fundið lausnina
á vandamálinu hjá kunningjum þínum, en kemst að
því síðar, að þú ein getur ráðið við vandann, og finnur
til þess heillavænlega leið.
Hús í arf og annar draumur.
Komdu sæll draumráðandi!
Ég ætla að biðja þig að ráða f yrir mig tvo drauma.
Annan dreymdi mig um páskana, en hinn rétt fyrir
hvítasunnu. Ég ætla að taka það f ram, að ég er skyggn
og dálítið berdreymin.
Fyrri draumurinn var á þessa leið:
Mér fannst ég hafa erft tveggja hæða gamalt timb-
urhús, og einhver stelpa, sem ég þekki ekki, haf ði erft
það hálft á móti. Við vorum búnar að skipta öllum
húsgögnunum milli okkar og húsinu sjálf u skiptum við
í tvennt, beint í miðju, nema einu rúmi. Það var hvítt,
gamalt rúm með brúnu teppi. Það létum við á mitt
gólf ið.
Svo fórum við að sofa. Ég svaf uppi í rúminu, en
stelpan undir því. Ég varð allt i einu svo þjóf hrædd, að
ég fór að pakka öllu saman og læsa það niðri. Mér
fannst líka, aðstelpan ætlaði að drepa mig, og vaknaði
við það.
Þess ber að geta, að stelpan var Ijóshærð, há og
grönn.
Hinn draumurinn var á þá leið, að við tvær og f leira
fólk vorum að leita að f jársjóði einhvers staðar upp í
f jalli á mjóum, malbikuðum stíg með runnum í kring.
Ég og stelpan vorum svolítið á undan og mér fannst í
draumnum, að ég væri skyggn og hún líka, og við viss-
um báðar, þegar við komum að fjársjóðnum. Hann
var grafinn niður í lítið moldarflag rétt við stíginn.
Fjársjóðurinn var gullhnífur með demöntum og öðr-
um fallegum steinum. Okkur tókst ekki að ná hnífn-
um, en hún ætlaði að drepa mig til að ná hníf num.
Ég vona, að þú ráðir þennan draum fyrir mig.
Gudda.
Drápsfyrirætlun stúlkunnar i draumnum er óbeinn-
ar merkingar. Mundu, að þaö er hægt að deyja á ann-
an hátt en líkamlegum dauða.
mi§ dreymdi
„Allavega" samllh^
Kæri draumráðandi:
Mig dreymdi draum um daginn, sem ég ætla að
biðja þig að ráða fyrir mig.
Mig dreymdi, að strákur, sem ég var einu sinni með,
ætti að velja sér stelpu að vera með, og vorum ég og
fyrrverandi vinkona mín meðal þeirra, sem hann átti
að velja um. Þegar hann kemur þar að röðinni, sem ég
var, fannst mér sem hann ætti eftir að fara til fyrr-
verandi vinkonu minnar, og ég, sem er dálítið hrifin
af stráknum, gat ekki hugsað mér hann vera með
henni, svo ég sagði við hann: Kysstu mig einn lítinn!
Hann gerði það og mér f annst nú sem ég væri búin að
tryggja mér hann. Svo vorum við „allavega" saman í
draumnum.
Mér f annst mömmu hans vera eitthvað illa við mig,
en ég vissi ekki hvers vegna, en ákvað að reyna að
vinna traust hennar.
Einu sinni fannst mér ég vera að hlaupa heim til
hans. Þá var svolítil rigning og blautt um, og þegar ég
var að fara yfir götu, kom bíll akandi. Ég stökk yfir
götuna og slapp naumlega, en bíllinn, sem var hvítur,
snarhemlaði, rann út á vegarkantinn, svo að brettið
beyglaðist. Mér fannst þetta vera mér að kenna, og
eins og ég ætti að borga viðgerðina, og eitthvað meira
vesen var í kringum þetta.
Jæja, kæri draumráðandi. Geturðu séð nokkra
merkingu í þessu rugli?
Ég les alltaf Vikuna, enda er ég áskrifandi, og ætti
því að sjá ráðninguna, ef af henni verður.
Þakka fyrirfram birtinguna.
Lóla.
P.S. Geturðu sagt mér, hvað nafnið Edda þýðir í
draumi, og sömuleiðis hvað það merkir að vera með
marga gull- og silfurhringi á fingrum sér.
Sama
Það hefur löngum verið hald draumspekinga, að
það væri karlmönnum fyrir heldur slæmu, ef konur
létu vel að þeim í draumi — þ.e.a.s. væru „allavega"
með þeim. A þessari kvenréttindabaráttuöld hlýtur
það því eins að vera konum fyrir slæmu, ef karlmenn
eru „allavega" með þeim ídraumi. Semsé: Draumur-
inn þinn er ekki fyrir góðu, heldur fyrir einhverri pest
eða öðru fári, sem á þér hrinur. Erfitt er að segja til
um, hvað nafnið Edda merkir í draumi eitt sér. Til
þess að um slíkt megi dæma, er nauðsynlegt að heyra
drauminn allan í samhengi. Að vera með gull- og silf-
urhringi á fingrum er hins vegar talið vera fyrir upp-
hefð og mannvirðingum.
Svar til Esterar.
Hollt er að íhuga tvennt í sambandi við þennan
draum, sálarástand þitt, áður en þig dreymdi hann og
endi hans. Þegar tekiðer tillittil þess, hve illa þú varst
á þig komin, áður en þú lagðist til svefns, er ekki að
undra, þótt draumfarir þínar yrðu martraðarkennd-
ar, og endir draumsins bendir til þess, að ótrúlega vel
rætist úr þessu fyrir kunningja þínum — jafnvel betur
en hann á skilið.