Vikan - 18.12.1975, Side 34
inu, tvo daga til þess að verða
hin sallafína Anna.
, Og eftir Önnu brustu taugarnar.
Hann sagði, að það vxri ágætt, þvi
að nú væri röðin komin að Kötu—
hinni taugaveikluðu Kötu.
Að Kötu lokinni ætluðu þau að
fara í ferðalag og hvxlast. En það
varð þá bara hún ein, sem fékk hvíld.
Hann hafði fundið ,,nýja” ekki
statista í þetta skipti, heldur sótti
hann leikkonu alla leið til Danmerk-
ur. Fyrstu myndirnar af þeim í blöð-
unum voru eins og aðvörun.
Jæja, hugsaði hún, ég hef gefið
allt, sem ég átti — galdramaður-
inn hlaut að gefast upp. Hún leit
niður á hendur sér, sem skulfu svo-
lítið. Og allt í einu vissi hún fyrir
víst, að hún hafði leikið sitt síðasta
stóra hlutverk.
— Hann lætur þig sigla þinn sjó,
þegar þú ferð að þreytast. Hver
sagði þetta? Dóttir hans! Hún
fletti möppunni og kom að síðustu
úrklippunum.
— Hann er stórkostlegur. Ég
vissi ekki, að það byggi svona mikið
í mér — sagði þessi danska Ijóska
og geislaði af fögnuði...
Lone fann sárt til með þessari
ungu stúlku. Hve lengi héldi hún
þetta út?
— Stúlkan er ung og þrekmikil,
sagði hann þegar hann lét þess getið
við hana, að hann ætlaði að sækja
hana til Danmerkur. — Já, enda
veitir ekki af þrekmikilli stúlku
í þetta hlutverk. Myndin er um
kappakstur, skilurðu. Hann sagði
eitthvað fleira, en hún hlustaði ekki
á það. Hann hafði sagt þetta allt
saman áður. Hún hafði hlustað á
þetta í fimm ár.
Síðasta myndin í möppunni. Arne
og sú danska sátu á gangstéttarkaffi-
húsi í París. — Við erum bara vinir,
sagði sú ljóshærða.
Hún heyrði í bílnum hans koma.
Hann kom snemma heim. Þá fengi
hún tækifæri til þess að „leika loka-
atriðið". Allt I einu datt Wenni í
hug, hvort þau myndu flytja inn í
þetta hús, eða hvort hann léti hana
halda því.
Eitt andartak var eins og hún
væri orðin tilfinningalaus. Fætur
hennar urðu ískaldir. Hún sat í sófan-
um og átti bágt með að draga
andann.
Hann leit ekki á hana, en gekk
beint að barskápnum, blandaði sér
sterkan drykk og kveikti sér í sigar-
ettu. Það var eitthvað undarlegt
við baksvipinn á honum, eins og
hann væri gamall maður. Þá datt
henni það í hug I fyrsta sinn: Hann
er orðinn rúmlega fimmtugur. Þegar
hann sneri sér við, tók hún í fyrsta
sinn eftir því, hvað andlit hans var
hrukkótt. Undir útiteknu yfirborð-
inu var eins og skini í fölt og tekið
andlit, eins og hann væri veikur,
eða eins og hann hefði gleymt að
þvo af sér leikhúsfarðann.
Hann gekk út að glugganum og
horfði út á vatnið, þar sem flug-
vélin hafði hrapað. Allt x einu datt
henni í hug, að „dagurinn” væri
í dag. Nei, það var maí og þetta
gerðist í júní. Kannski var hann
líka orðinn leiður á því.
„Daginn” var hann vanur að
helga minningu hennar. Hann reri
út á vatnið með hvítan blómvönd
og lagði hann varlega á vatnsflöt-
inn. Fyrsta árið fannst henni það
fallegt og rórrrantískt. Annað árið
brá henni við það. Og nú —
— Dramatísk tilgerð, sagði thann
eins og hann vissi, hvað hún var að
hugsa.
Henni hitnaði í kinnum og hún
skammaðist sín svolítið.
— Drottinn minn dýri, sagði
hann. Ég get ekki meir.
Hún stóð og beið eftir því, að
hann segði „réttu orðin”, þakkaði
henni fyrir þessi ár, og bæði um að
fá að vera vinur hennar áfram.
Hann drakk í botn, blandaði
sér aftur í glasið og settist svo þung-
lega í sófann.
Það er í lagi, sagði hún. — Ég
skal setja niður.
Hann starði á hana.
— Setja niður?
— Já, er það ekki það, sem þú
vilt. Súnýja...
Hann starði enn á hana.
— Hún er ekki annað en stelpu-
krakki, sagði hann seint og um síðir.
— Þú ert stórtækur upp á síð-
kastið.
Hún vissi, að þetta hljómaði
særandi, og þó ætlaði hún ekki að
særa hann.
Hann kveikti í annarri sígarettu
og leit undan.
MECCANO
er broskandl fyrlr börn á öllum aldri
Hverjum MECCANO-kassa fylgir listi fyrir hvert sett, sem gelur
leiðbeiningar og sýnir hluta af því, sem hægt er að búa til.
Þetta er hið upphaflega og raunverulega MECCANO, sem pabbi lék
sér að, en tíminn og tæknin hafa endurbætt það og gjört að
vinsælasta leikfangi sonarins — og nú fást alls konar rafmótorar og
gufuvélar, sem hægt er að tengja við og þannig auka fjölbreyttni og
glæða sköpunargáfu barna og unglinga.
☆ Látið hugmyndaflugiÖ ráða
er þér raðið MECCANO
TÖMSTUNDAHOSIÐ %
SIMI 21901
LAUGAVEGI 164
34 VIKAN 51.TBL.