Vikan

Issue

Vikan - 18.12.1975, Page 56

Vikan - 18.12.1975, Page 56
í KIRKJU. Kæri draumráðandi! Mig langar til að biðja þig að ráða fyrir mig draum, sem mig dreymdi í fyrrinótt. Mér fannst ég vera inni í kirkjunni hér, og sat ég á aftasta eða næstaftasta bekk, en bekkirnir sneru öfugt. og fannst mér það ekkert skrítið. Tvær stúlkur sátu sitt hvorum megin við mig, og önnur hélt á litlu barni, sem sneri þannig, að ég sá alltaf framan í það, og fannst mér barnið fallegt. Svo fannst mér ég líta til hliðar, og þá sá ég fullt af konum hinum megin í kirkjunni. Ég þekkti ekki konurnar, en meðal þeirra var hárgreiðslukona, sem gekk fram að altarinu. Þá sá ég stelpu sitja á bekk, sem sneri fram. Ég þekki hana og hún heitir... Konan fór nú að leggja hárið á... Svo allt í einu kemur ... og spyr, hvort ég ætli ekki að vera næst, en ég segi, að ég ætli bara að láta bursta hárið, því að það væri orðið svo sítt og liðað. (Það er liðað í verunni, en ekki mjög sítt). Ég vona, að þú ráðir þennan draum fyrir mig. Með fyrirfram þökk. S.S.R. Stúlkan, sem þú þekkir í draumnum, lendir í ein- hverjum vandræðum, og virðist gera eitthvað til þess að draga þig inn í þau líka, en af meðfæddri varfærni sérð þú að þér í tíma, og sleppur því naumlega. 85 OG ERLA. Kæri draumráðandi! Mig langar að biðja þig að ráða fyrir mig tvo drauma, sem mig dreymdi um daginn. Sá fyrri var á þessa leið: Mér fannst pabbi minn vera að fara til einhvers þorps, sem hann sagði ekki, hvað hét. Með honum ætluðu tveir vinnufélagar hans og átti ég að fá að fara með þeim. Þegar við komum til þorpsins, fóru pabbi og vinnu- félagar hans að hitta einhvern mann, sem ég þekkti ekki. Gengu þeir allir hlið við hlið og hafði ókunni maður- inn strák, á aó giská fimm til sex ára gamlan, með sér. Ég spurði þá strákinn litla, hvað þetta þorp héti, og svaraði hann mér: 85. Síðari draumurinn var á þessa leið: Mér fannst mamma koma til mín og segja: J... mín, nú þolir þetta enga bið. Nú skíri ég þig J... Erla. Svo fannst mér ég heita það. Ég vona, að þú getir ráðið þessa drauma fyrir mig. bless, bless. J.H.K. Fyrri draumurinn er töluvert erfiður viðfangs. Þó virðast þessar tölur fela eitthvað í sér, sem mun koma þér töluvert á óvart, en erfitt er að segja um, hvað það er____ kannski húsnúmer. Síðari draumurinn bendir til þess, að móðir þín vænti einhvers sérstaks af þér. Ég þykist vita, hvað það er, en vil ekki Ijósta því upp, því að þú átt að finna það út sjálf. HRAUNMOLAR í AFMÆLISGJÖF. Kæri draumráðandi! Ég ætla að biðja þig að ráða þennan draum, sem mig dreymdi fyrir stuttu, fyrir mig. í draumnum fannst mér mamma koma með afmælis- gjöf handa mér og var það kassi með þremur öskjum í. Öskjurnar voru merktar 1,2,3. Ég opnaði fyrstu öskjuna, og í henni var hraunkögg- ull, sem mér fannst vera úr Vestmannaeyjagosinu. i öskju númer 2 var annar hraunköggull og var hann stærri en sá fyrri. i öskju númer 3 var enn hraunkögg- ull, sem var stærstur þeirra allra. Ég var svo óánægð, að mér lá við gráti. Mér fannst þetta vera svo ómerki- legt. En í því kom mamma aftur og lét mig fá litla ílanga öskju, og þá lifnaði nú yfir mér, en þegar ég opnaði hana, var þar enn einn hraunköggull, og mér fannst þessi vera glóandi heitur, en þegar ég tók hann upp, var hann kaldur og harður viðkomu. Ég setti þá upp óánægjusvip, en þegar mamma sá það, flýtti hún sér að segja: Fyrirgefðu mér, vina mín, en ég á ekki fyrir neinu betra. Þannig endaði þessi draumur, en þegar mig dreymdi hann, var afmælið mitt alveg á næstu grösum. Ég vona, að þú birtir þetta, því að ég held ég viti, hvað sumt af draumnum þýðir. Afmælisbarn. Þér finnst mamma þín afskiptasöm um of, þegar þú velur þér kunningja_og þér finnst hún hafa harla lítið vit á strákum, en þegar þú velur þér loks lífsförunaut, verður mamma þín hæstánægð með hann, þó svolítið feimin við hann. KELERÍ. Kæri draumráðandi! Ég ætla að biðja þig að ráða fyrir mig draum, sem er á þessa leið: Mig dreymdi, að ég fór á ball og var þar með strák, sem er fjórum eða fimm árum eldri en ég. Eftir ballið fórum við upp á herbergið hans og fórum að kela. En þá vaknaði ég. Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna. Anna Sig. Þú ættir að fara varlega í umferðinni í vetur_og helst ekki hætta þér á sjó á næstu mánuðum. Svar til Hildar. Hafðu engar áhyggjur af draumnum um hringina. Hann er fyrir því einu, að pilturinn vill fá að ráða flestu í kringum sig, en þú getur áreiðanlega ráðið því, sem þér líkar, þegar fram í sækir, ef þú þá vilt það. Og það er ekki í mínum verkahring að segja, hvaða merki eiga best við hver.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.