Vikan - 29.01.1976, Blaðsíða 4
T
Hásatissa/urinn er notaður við opinberar móttökur. Á jólunum er öllum börnum í Mónakó boðið til fagnaðar.
prins Rainicr cr 29. furstinn af
Grimaldi ættinni. Fjölskylda hans
hefur ríkt yfir Mónakó frá árinu'
1297 með stuttum frávikum.
Ef Grimaldicettin deyr át, samein-
ast Mónakó Frakklandi.
Mónakó stendur og fellur með
Grimaldifjölskyldunni. I gömlum
sáttmála við Frakkland segir, að
Móhkó sameinist Frakklandi ef
Grimaldiættin deyr út. Eins
lengi og Mónakó er sjálfstætt ríki
eru þegnar þess undanþegnir
herþjónustu og borga aðeins synd-
arskatt. Þeir þóttust því eiga' þarna
nokkurra hagsmuna að gæta, og þvi
var beðið með eftirvæntingu eftir
ríkiserfingja. Þeim varð að ósk
sinni. .
Karolína prinsessa fæddist réttu
ári eftir að brúðkaupið stóð, og
hún var boðin velkomin í heiminn
með 21 fallbyssuskoti og viðeigandi
hátíðarhöldum. Allt ríkisstarfsfólk
fékk fri. Og ríkisfangelsið lauk
upp dynim sínum fyrir eina fangan-
um, sem þar sat. Ári síðar sá
Albert prins dagsins ljós. Fagnaðar-
látunurrí ætlaði aldrei að linna.
1 þetta skipti var skotið 101 fall-
byssuskoti. Qg aftur fengu allir
frí, og fimm fangar gengu út í
frelsið í þetta skipti.
FERÐAMANNASTRAUMURINN
ADAL TEKJULINDIN.
Landið Mónakó er aðeins 6 fer-
milna s'andströnd. Til að auka
landrýmið og rikistekjurnar hefur
Rainier látið byggja hótel og
spilavíti, því aðaltekjulind Mónakó
er jú ferðamannastraumurinn. I
þessu putalandi búa aðeins 30.000
manns. Og vegna smæðar landsins
fylgist Rainier vel með öllu, er þar'
skeður. Og þar er alltaf eitthvað að
gerast.
Höfuðborgin Monte Carlo er
leiksvið milljónamæringa úr öllum
heimshornum. Og kvikmynda-
stjörnur og annað þekkt fólk flykk-
ist þangað á frumsýningar og alls
kyns uppákomur. Stór hluti af tíma
Grace fer I undirbúning fyrir veislur
og móttökur utan hallarinnar og
innan. Það þarf að setja saman
matseðla, skrifa og senda út boðs-
kort og undkbúa skemmtiatriði.
Þar að auki er tekið á móti blaða-
mönnum nokkra daga I mánuði.
Blaðamennirnir spyrja reyndar allt-
áf um það sama. Hvenær ætlar
Grace að leika aftur I kvikmyndum ?
Af veislum furstahjónanna fer
mikið frægðarorð. Það er tekið á
móti gestum í Speglasalnum og
boðið upp á kampavín. Þvínæst
leiða viðhafnaklæddirþjónarþá inn
í hanastélsherbergið. Neðan úr
loftinu hangir stórfengleg kertakrist
alskróna. Á einum veggnum hang-
ir dýrmætur spegill frá 16. öld.
Spegilumgjörðin er gjörð af falleg-
um litlum laufblöðum, sem lögð
eru gulli. Gólfið er úr marmara.
GRACE SÉRFRÆDINGUR 1
BLÓM ASKREYTINGUM.
Borðskreytingar við veisluhöld
eru ákaflega smekklegar og per-
sónulegar. Grace prinsessa hefur
sjálf lært að hagræða blómum í
einni virðulegustu þlómabúð
Monte Carlo. Grace og Rainier
kunna best við sig í vetrargarðinum.
4 VIKAN 5.-TBL.