Vikan - 29.01.1976, Blaðsíða 21
mLLJON PUND
er alls ekki venjulegt frímerki og gildir ekki
sem slíkt. Á miðbréfið hefur sendandi teiknað
frímerki,' en á því neðsta er hreint ekki neitt.
Samt hafa þessi bréf og hundruð annarra
eins verið send rakleiðis í gegnum póstþjón-
ustuna. Samt er breska póstþjónustan þekkt
fyrir ákveðni í að innheimta rétt gjöld á
allan póst. En í þessu tilviki er gerð algjör
undantekning. Jólin hafa læðst inn fyrir borðið
hjá póstmönnunum bresku.
Svo skal ég sýna ykkur sýnishorn af inni-
haldi bréfanna, sem jólasveinninn fær. Bréfin
a iahV
iuöuáA ftfce
ned d
eu*i
<3t (jj,oa fctffeH o
, slu\i«tte t? \~
þrjú með teikningunum komu saman í stóru
umslagi ásamt mörgum öðrum svipuðum.
Sennilega hafa þau verið send frá einhverjum
skólabekk, og hefur kennarinn þá líklega séð
um utanáskriftina. i einu bréfanna er beðið um
hjólastól og dúkku, Michael biður um járn-
braut af sérstakri gerð, Claire biður tim dúkku,
sem getur talað og hund,'sem dinglar róf-
U^ W*
"^r-v%^i*> i
juJJ
unni, en frumlegastar finnast mér óskirnar
og teikningarnar frá Gareth, sem teiknar
og biður um: Einn her, og stjómanda lúðra-
sveitar. Öllum bréfunum fylgja margir inni-
legir kossar, sem eru teiknaðir með krossum
neðst á blaðinu. Svo sá ég bréf frá Phyllis
Wilson í Skotlandi, en hún segir: ,,Kæri
jólasveinn: Ég heiti Phyllis Wilson og er 9 ára
gömul. Mig mundi langa til að vita, hvenær
þú leggur af stað í ferðina og hvort þú
notar sleða og hefur rauðnefjaða hreindýrið.
Það er strákur í bekknum mínum, sem heitir
Andrés beinhaus, og hann segist hafa skrifað
þér og þú svarað með jólaóskum inni í jóla-
korti. Í jólagjöf á hverju ári óska ég mér að fá
úr, og mamma sagði núna, að ég fengi
ábyggilega úr, og ég er voða glöð. Og stelpa,
sem heitir Karen, sagðist hafa fengið aura frá
þér í ávísun. Jólasveinn, þú ert voða góður
maður, og einhvern tíma langar mig til að
hitta þig. Þín Phyllis."
Og svo er auðvitað bréfið frá henni Agata
Hugh á herbergi númer 197 á Hotel de France
í Jersey. Hún segir, að jólasveinninn hafi
gleymt sér í tuttugu og fjögur ár, svo að hún
hlýtur að vera í það minnsta þáð gömul. Hún
segist samt ekki setja það fyrir sig, því
sennilega sé það því að kenna, að hún hafi
aldrei skrifað honum fyrr, en það sé mikið
því að kenna, að enginn virðist vita heimilis-
fangið né símanúmerið, svo að nú ætlar hún
5.TBL. VIKAN 21