Vikan - 29.01.1976, Blaðsíða 11
í NÆSTU VIKU
HVERERGEGGJAÐUR
I næsta blaði mun birtast viðtal Vikunnar við Hjálta
Rögnvaldsson leikara, cn hann fer um þessar mundir
með hið viðkvæma hlutverk Alans Strangs í sýningu
Leikfélags Reykjavíkur á Equus eftir Peter Shaffer.
Þetta hlutverk hefur stundum verið kallað tækifæri
aldarinnar, og fyrir túlkun sína á því hlaut Hjalti
mikið lof gagnrýnenda. Vikunni þótti því forvitni-
legt að ganga á fund Hjalta, kynnast honum ofurlítið
nánar og ræða við hann um Alan Strang og Equus,
en í fáum orðum má segja, að leikritið fjalli
um spurninguna: Hver er geggjaður?
FRÁSÖGN AF BARNI Í LEIT AÐ SJALFU
SÉR.
I næsta blaði hefst ný framhaldssaga, sem er svo-
lltið óvenjuleg. Hún fjallar um fimm ára dreng, sem
Dibs heitir, en hann virðist eiga við mikil sálræn
vandamál að stríða. Foreldrar hans hafa komið hon-
um fyrir í einkaleikskóla í þeirri von, að eitthvað
rætist úr fyrir honum, en framfarir hans eru ákaflega
hægar. Hann segir aldrei nema örfá orð í einu, og
orðaforði hans virðist vera mjög takmarkaður. Eigi að
síður er engu líkara en hann sé læs, því að hann unir
sér með bækur, og aúgu hans virðast fylgja línunum.
Stundum fær Dibs óskapleg bræðiköst og lemur. þá
og ber hvað sem fyrir verður. Svona er semsé í
stuttu máli komið fyrir Dibs, þegar honum er fengin
aðstoð sálfræðings. Sagan er lögð í munn sálfræð-
ingnum, sem segir allítarlega frá kynnum sínum af
Dibs.
Þessa athyglisverðu sögu eftir Virginia M. Axline
ættu allir foreldrar og aðrir uppalendur að lesa, því
að hún er skrifuð af glöggskyggni á sálarlíf Dibs
og um leið annarra barna.
ótrUlegtminni
Sagt er, að Harry Lorayne hafi fullkomnasta minni
nokkurs lifandi manns. Ef skrifaðar eru niður 30 eða
40 stafa tölur og sýndar honum, þá man hann þær í
réttri röð, eða jafnvel afturábak í öfugri röð, eftir
nokkrar sekúndur. Stokki maður spilastokk og lesi hann
upp fyrir hann, mun hann geta haft spilin eftir I
réttri röð, eins og fyrir hann var lesið. Þetta eru aðeins
dæmi um fágætt minni þessa merkilega manns, en
í næsta blaði má lesa grein um Harry Lorayne,
þar sem segir nánar af hæfileikum hans.
AUGAÐ kemur upp um okkur
I birtu dregst augasteinninn saman — í rökkri
þenst hann út. Nú hafa vísindamenn komist að því,
að fleira en breytt birta hefur slik áhrif á augastein-
inn, og sannað vísindalega, að ,,við rekum upp stór
augu" í bókstaflegri merkingu — þ.e. augasteinn-
inn stækkar — þegar eitthvað vekur sérstaka athygli
okkar. I næstu viku segir frá athyglisverðum tilraun-
um til að mæla áhrif sýna á aiígasteininn.
VIKAN Otgefandi Hilmir h.f.' Ritstjóri: Kristin Halldórsdóttir, Blaðamenn: Trausti ólafsson,
Hrafnhildur Schram, Guðmundur Karlsson. Útlitsteiknari: . Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari:
Jim Smart. Auglýsingastjori: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing
í Síðumúla 12. Símar 35320-35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 250. Áskriftarverð
kr. 2.800 fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, kr. 5.250 fyrir 26 tölublöð hálfsárslega eða kr. 9.800
íársáskrift. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddagar: nóvember, febrúar, maí.ágúst.
Vikan
5. tbl. 38. árg. 29. jan. 1976
GREINAR:
2 Heima hjá Grace og Rainier.
6 Einn fyrir alla — allir fyrir einn.
Sagt frá hátterni maura.
20 íslenski jólasveinninn. ,,Sendu
mér milljón pund".
VIÐTÖL:
16 Upp í sex tíma samfleytt við rit-
vélina. Viðtal við Snjólaugu
Bragadóttur frá Skáldalæk.
42 Þeir sáu flísina i auga náungans.
Hebbi (Herbert Guðmundsson
tónlistarmaður) leggur spilin á
borðið fyrir Babbl.
SÖGUR:
18 Veislan. Smásaga eftir Ansijack-
son.
26 Barnsræninginn. Smásaga eftir
Agöthu Christie.
¦36 Marianne. Tíundi hluti fram-
haldssögu eftir Juliette Benzoni.
FASTIR ÞÆTTIR:
9 Krossgáta.
12 Póstur.
33 Tækni fyrir alla.
38 Stjörnuspá.
42 Babbl. Þáttur í umsjá Smára
Valgeirssonar.
44 Lestrarhesturinn. Fiðrildið, 1.
hluti.
46 Á fleygiferð. Árni Bjarnason
prófar vclsleða.
48 Draumar.
50 Eldhús Vikunnar: Boðið til
rækjuveislu.
ÝMISLEGT:
14 Vikan í skóleit.
34 I leiðinni
52 Hvað segja blómavasarnir um
þig?
5.TBL. VIKAN 11