Vikan - 06.01.1977, Qupperneq 5
5
FÍLAPÚÐINN er settur saman
úr tveimur hlutum, höfði og búk.
Fyrst er búkurinn gerður úr
tveimur stykkjum, en málin finn-
þið á bls. 46. Fyllið búkinn með
tættum svampi, ekki of þétt,
troðið með prjóni út í fæturna.
Flausinn er einnig saumaður
saman úr tveimur stykkjum, sjá
bls. 46. Augun eru tvær tölur, en
tennurnar eru gerðar úr þykku,
hvítu bómullarbandi, sem er
rúllað upp í endana og saumað
fast, svo að tennurnar haldi
lögun sinni. Saumið loks haus-
inn fastan við búkinn með sterku
garni, en hafið samskeytin ekki
stór, í mesta lagi 5 sm að
ummáli.
8
SEBRAPÚÐINN er gerður úr
gluggatjaldaefni með breiðum,
svörtum röndum. Efnið er klippt
í þríhyrninga, sjá meðfylgjandi
teikningu, og saumað þannig
saman, að á framhliðinni séu
ferningar, en kross á bakhliðinni
(bláu ferningarnir eru á framhlið-
inni). / þetta ver þarf 50 sm af
120-130 sm breiðu efni.
6
PLAKATPÚÐINNersaumaður
úr diskaþurrku, þið veljið eitthvað
eftir ykkar höfði, og ekkert er
auðveldara en að sauma púða-
ver úr diskaþurrku.
7
LJÓNIÐ er tilvalinn púði í
barnaherbergið. Það er búið til á
sama hátt og fíllinn, nema
fæturnir eru lægri, halinn lengri,
og hausinn umkringdur makka
úr gulu ullargarni, sem saumað
er á í löngum lykkjum, líkt og
dúskurinn á halanum. Sjá teikn-
ingar og nánari skýringar á bls.
46.
1.TBL. VIKAN5