Vikan - 06.01.1977, Blaðsíða 36
Hver er Sverrir Run.
En Sverrir er ekki fylgjandi
neinum höftum né haftastefnum,
hvorki í vegalagningu né stjóm-
málum. Hann er því einlæglega
samþykkur, að allir vegir séu öllum
færir — haftalaust. — En ég renni
mér samt yfir allar holur með bros á
vör, — segir hann. — Þær eru
aðeins til að skerpa athyglina — og
til að sýna mönnum fram á að undir
yfirborðinu milli haftanna sé alvara
lifsins. Jafnvel þótt rigning fylli
holurnar og forin geri þær ógreini-
legri má maður ekki láta blekkjast.
Sumir vilja heldur fara ofan í hverja
holu og hossast á lífsleiðinni — en
aðrir gefa bara meira gas og fleyta
sér ofaná höftunum. En fjaðra-
útbúnaðurinn þolir ekki slíkan
akstur til lengdar. Þessvegna er það
mitt viðfangsefni, að allar holur og
höft séu bannfært jafnt i vegalagn-
ingu og í stjómmálum.
— Hvar hefirðu í rauninni fengið
þína þjélfun sem vegagerðarmaður?
spurði ég Sverri, þar sem ég sat í.
vistlegri stofunni hjá honum að
heimili hans að Kvisthaga 14 og
gæddi mér á kaffi með kökum, sem
hann hafði boðið mér.
— Hana fékk ég ,,the hard
way”, þegar ég rak mitt eigið
verktakafyrirtæki í Califomíu. Þar
vom engin höft — og þessvegna
engar holur, sagði Sverrir og hló.
Þar sem höftin em, þar má búast
Sverrir ásamt núverandi konu
sinni, Andreu Þorleifsdóttur.
Rabbað við Sverri Runólfsson
um það sem hann segir að hafi verið
,,dásamlegt ævintýri frá upphafi
til enda.” Lífið hefur verið honum
sannkallaður ,,dans á rósum”
allt frá því að hann fór að syngja
í sveitasælunni hér heima á íslandi.
Framkvæmdaþráin hefur að miklu
leyti stjómað lífi hans, og létt
og glaðvært skapferli hefur ávallt
rennt honum léttilega yfir allar
smáholur í veginum.
Það er haft fyrir satt, að Sverrir
Runólfsson hafi búið til vegarspotta
uppi á Kjalamesi, sem almennt er
nefndur „Sverrisbraut.”
Það er einnig fullyrt, að í þessum
vegarspotta séu nokkrar smáholur,
sem tálmi umferð um veginn.
En ég fullyrði, að þetta er ekki
rétt.
Þð eina, sem Sverrir gerði við
þennan vegarspotta, var að hann
setti á hann nokkur höft milli hola,
og það er ekki sanngjöm skoðun að
ásaka hann fyrir þær holur, sem á
milli haftanna em. Við skulum
heldur líta á það sem vel er gert.
Hann hefur óneitanlega byggt upp
höftin og þar með sannað, að
holumar séu óæskilegar.
Og ef engin höft hefðu verið lögð í
veginn fyrir Sverri, hefði hann að
eigin sögn getað haft hann með
miklu fleiri höftum, eða nánast
samfelldum, þannig að vegfarendur
hefðu varla tekið eftir holunum. Því
að svo þétt og mörg er hægt að hafa
höft, að holumar hverfi gjörsamlega
og höftin verði þannig sammfelld.
Gott skap hefur
ulltuf fleytt honum
yfir stærstu holuraar.
»*
$%*