Vikan - 06.01.1977, Síða 39
M«ð fiðring
í bensíntefinam
A f lcygifcrð
UMSJÓN: /
ÁRNIBJARNA/i
Eins og minnst^var á í einu af
síðustu tölublöðum síðasta árs, var
haldin sýning á tveimur gerðum
frá Ford. Þó var ekki á þessari
sýningu sá Fordbíll, sem mér finnst
einna mest varið í, en það er Escort
1600 Sport. Eg fékk tækifæri til að
prófa þennan Escort og hafði mikið
gaman af, því hann er fjári
skemmtilegur í akstri.
Vélin er 1600 cc, 4 cyl með einum i
tvöföldum Weber blöndungi. Á
5500 snúningum gefur vélin 86 din
hestöfl. Tannstangarstýri er að
sjálfsögðu í Escortinum, Mac—
Pherson fjöðrun á framhjólum, en
stífar blaðfjaðrir að aftan. Gírkass-
inn er fjögra gíra, alsamhæfður í
alla gíra.
Innrétting er öll mjög sportleg og
skemmtilega gerð, mælarnir gífur-
lega skemmtilegir, Stýrið lítið með
góðu handgripi og sætin bæði
þægileg og smekkleg. Að útliti er
þessi sportgerð eins og standard
gerðin, ef undanskilin eru aukaljós
á framstuðurum, sportfelgur og
sportrendur og stafir.
Ogsvovarsest undir stýri og ekið af
stað, og ekki var laust við, að ég
fengi svolítinn fiðring í bensinfótinn
strax í upphafi. í fyrstu var ekið
niður í bæ og þvælst fram og aftur
til að ganga úr skugga um, hvemig
billinn væri í bæjarumferð, og ekki
er hægt að kvarta undan því að
hann hagi sér ósæmilega í þéttbýl-
inu. Stýrið er afskaplega lítið
doblað og svarar frábærlega vel,
gírstöngin er vel staðsett, og stutt
er milli gíra, svo hægt er að skipta
um gír með ótrúlegum hraða. Ástig
á alla pedala er gott, og bremsu-
pedalinn mátulega stífur.
Ekki skipti máli, hvort ekið var
niðri í miðbæ eftir þröngum og
krókóttum götum í mikilli umferð,
þar sem alltaf þarf að vera að
stoppa og taka af stað, skipta um
gír og beygja i bak og stjór, eins og
sjómennimir segja, eða keyrt eftir
beinum greiðfæmm götum, eins og
Miklubraut og Hringbraut. Escort-
inn lét mjög vel að stjórn og var
bæði lipur og snaggaralegur í
akstri. En ekki var hægt að vera að
dúlla sér í bænum allan tímann,
sem ég hafði bilinn til umráða, og
svo var mig líka farið að
lengja eftir að komast á malarveg
og fór því að fikra mig út úr
bænum.
Á leiðinni út úr bænum prófaði ég
Escortinn á mikilli ferð í beygjur á
malbiki. Þar stóð hann sig vel og lét
ekki mikið á sig fá, þótt ekið væri á
ofsaferð í krappar bevgjur, hann
vippaði sér í gegnum þær eins og
ekkert væri.
Og loksins var komið á malar-
veg rétt fyrir utan bæ, þar sem
hægt er að vera í friði og engin um-
ferð. Escortinn var á stífpumpuðum
radial dekkjum og þar af leiðandi
miklu lausari á mölinni en ella.
Vegurinn, sem ég prófaði bílinn á
var þröngur og hlykkjóttur, sem
sagt tilvalinn í leiðangra eins og
þennan. Þegar gefið er í botn og
bæði hólfin á Weber blöndungnum
opnast upp á gátt tekur Escortinn
kipp og rýkur af stað með urrandi
vélarhljóði. Þannig keyrði ég hann
fram og aftur eftir grjóthörðum og
freðnum malarvegi, og hann var
góður, kannski heldur of laus að
íftan, en góður. Það var ekið á fullri
ferð að beygjum, skipt niður og
keyrt í gegnum hverja beygjuna á
fætur annarri á fullri ferð. Það er
mjög misjafnt, hvemig bílar verka á
mann, sumir vel og aðrir allt að því
stressandi, maður situr stífur við
stýrið og hefur áhyggjur af því
hverju hann finni næst upp á.
Escortinn verkaði vel á mig, og eftir
að ég hafði vanist honum svolítið
fannst mér alltaf hægt að vita hvar
ég hafði hann.
Escort 1600 Sport kostar 1.550
þúsund krónur.
1.TBL. VIKAN39