Vikan


Vikan - 10.11.1977, Page 36

Vikan - 10.11.1977, Page 36
Sakamálasaga eftir ORLU JOHANSEN Stafurinn Hið fullkomna morð er ekki til. í gær, í dag, á morgun er slíkt reynt, en alltaf er hefndum náð. Ef ekki fyrir dómstólum, þá á einhvern annan hátt. P APPÍRSBLAÐIÐ lá á bríkinni fyrir utan, aðeins til hœgri við gluggann.... bríkinni eða brettinu, eða hvað maður á að kalla svona mjóa steinsteyptabrún, sem af einni eða annarri óskiljanlegri ástæðu, er utan við gluggana á nokkuð gamalli byggingu. í yfir hundrað metra hæð frá jörðu. Kannski er það meiningin, að gluggaþvottamennirnir noti sér bríkina, nú eða loftfimleikafólk, sem ekkert óttast. Það er ekki gott að segja. Ég vissi það eitt, að ég varð að ná i pappírinn, sem fokið hafði út um opinn gluggann á skrifstofunni. Þetta var pappir, sem ekki væri gott að láta sjást. Það gæti haft slæmar afleiðingar fyrir lög- fræðingsskrifstofu mína, ef hann kæmist i rangar' hendur, og slíkt gæti auðveldlega gerst. Pappirar þola vel að falla úr mikilli hæð. Sem sagt.... P G heiti Harald Axelsen og er 45 ára. Hæfni min i fimleikum er í núlli, og mér hættir til að fá svima, eins og fleirum. En ég hafði ekki um neitt að velja. Þegar ég nokkrum sekúndum siðar klifraði með ítrustu varúð út á bríkina, gætti ég þess auðvitað vandlega að líta ekki niður.... niður i hyldýpið, þar sem götulifið var eins og iðandi maurabú. Ég snéri bakinu að gínandi dýpinu og ein- beitti mér að því að horfa einungis á vegginn, meðan ég fikraði mig áfram sentimetra fyrir sentimetra, i átt að skjalinu, sem lá ennþá þarna. Mér fannst það glotta að mér. Svo nærri og samt svo langt frá... Hjartað barðist af skelfingu, og andardrátturinn var óeðlilegur. Það eina sem bjargaði mér frá því að sogast niður i hyldýpið, var nauðsyn þess að ná þessu bölvaða skjali. örvæntingin hélt mér uppi. Ég náði reyndar að komast að skjalinu, en einmitt i því blés golan þvi lengra frá. Ef ég hefði tekið það upp af gólfinu inni á skrifstofunni, hefði þetta aldrei þurft að verða. En nú.... Ég lokaði augunum til hálfs og beygði mig hægt í hnjánum. Eitt andartak leit ég niður, og mér rann kalt vatn milli skinns og hörunds. Ég lokaði augunum alveg og hallaði mér þunglega að veggnum og fálmaði eftir haldi, sem ekki var að fá. Ég kjökraði, þegar ég hafði jafnað mig aftur og beygði mig á ný og fálmaði eftir blaðinu. Ég greip blaðið og bögglaði það saman og tróð því í jakkavasann. Ég safnaði nú kröftum til að komast til baka, varirnar skulfu, og í hnjánum var magnleysi. Þetta voru bara fimm metrar, en fyrir mér var þetta eins og dagsferð með ótal skelfilegum hættum og hindrunum. Það var á þessu augnabliki, sem 36VIKAN 45. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.