Vikan - 10.11.1977, Blaðsíða 53
Blandið ve/saman. Hræran á að
vera s/étt, án kekkja, hrærið ekki
mikiö.
45. TBL.VIKAN 53
formkökur
Þeytiö eggin mjög vel með
sykrinum. Annaðhvort í höndum
eða í hrærivé/.
Hveitib/andan sett saman við
eggin, þá mjó/kin og bráðna
smjörið.
6 KÖKUR ÚR SÖMU GRUNN-
UPPSKRIFT (frá vinstri)
ÁVAXTAKAKA
Blandið ca. 3 dl af söxuðu súkkati
og rauðum kokkteilberjum saman
við hveitið. í stað mjólkur er
notaður appelsínusafi.
KRYDDKAKA
Blandið kanil, kardimommum,
engiferog negul í mjölið, ca. 1 tsk.
af hvorri tegund.
KÚRENNUKAKA
Blandið ca. 4 dl af kúrennum
saman við hveitið og bragðbætið
með rifnu hýði af 1 /2 — 1 sítrónu.
APPELSÍNUKAKA
Setjið rifið hýði af 2 appelsínum í
deigið og notið appelsínusafa í
stað mjólkur.
MARMARAKAKA
3/4 hluti deigsins blandaður rifnu
sítrónuhýði og 1/4 hluti blandaður
2-3 msk. af kakói og 1 tsk af
vanillusykri. Sett í lögum í formið
og gaffall dreginn í gegn um
deigið.
MÖNDLUBOTN ÖNNU
Hann má bera fram án skrauts eða
skreyttan eftir vild. Bragöast vel
með ávöxtum, rjóma eða ís.
5 egg
4 dl sykur
4 1 /2 dl möndlur eða hnetukjarnar
Peytið eggin vel með sykrinum og
setjið afhýddar möndlurnar útí.
Setjið í smurt kringlótt form ca. 25
sm í þvermál. Smyrjið formið vel
og stráið að innan með brauð-
mylsnu. Bakið neðst í ofni við
165° í 35 mín. til 40 mín.
SÚKKULAÐIKAKA
Blandið 4 msk. af kakó; 1 msk. af
vanillusykri og e.t.v. 2 tsk. af
kaffidufti í hveitið.
Grunnuppskriftin:
3 egg
2 dl sykur
3 dl hveiti
2 tsk. lyftiduft
1 /2 dl mjólk
100 gr smjör eða smjörlíki.
L