Vikan - 10.11.1977, Síða 54
Á meðan
Það er sem betur fer liðin tíð, að konur fari í felur, þegar þær
taka að verða áberandi barnshafandi. Að margra áliti eru
þær þá hvað fegurstar, að minnsta kosti ef allar aðstæður
eru í lagi. Og því þá að fela svo ánægjulegt ástand? Anna
Bretaprinsessa hélt áfram að koma fram opinberlega, þar til
hún var komin á 7. mánuð, gagnstætt öllum fyrri venjum í
bresku konungsfjölskyldunni. Og bresku blöðin létu ekki á
sér standa að birta myndir af hinni hamingjusömu Önnu.
Hún á reyndar von á sér í nóvember, svo að ekki er ólíklegt,
að hún verði orðin mamma, þegar þessar línur birtast.
Mynstraði kjóllinn og sá blárósótti
voru hannaöir meö þaö fyrir
augum, aö Anna gæti byrjaö að
nota þá, áöur en fariö væri aö sjá á
henni, en gæti svo haldiö áfram
að notaþá, þótthún væri aöeins
farin að þykkna undirbelti.
Eflaust hafa Anna og fata-
hönnuöur hennar veriö fullar af
rómantískum hugsunum um hiö
langþráöa barn, þegar þessi kápa
með öllu tilheyrandi var sköpuö.
— Bretarnir spá því, að Anna eigi
eftir að klæðast þessari flík áfram
eftir fæðingu barnsins, þar sem
kápan sé einkennandi fyrir smekk
hennar.
or