Vikan - 06.04.1978, Qupperneq 2
Vikan
14. tbl. 40. árg. 6. apríl 1978
Verð kr. 450.
VIÐTÖL:
8 Aldrei vont veður á hestbaki.
Viðtal við hjónin Fanný Jón-
mundsdóttur og Valdimar
Jóhannesson.
GEEINAR:
16 Umhverfis jörðina í fjórtán
veislum, 14. grein eftir Jónas
Kristjánsson: Frakkland í
London.
36 Ef þú ert A-manneskja, skaltu
aldrei giftast B-nanneskju.
48 Sara Bernhardt — hin guð-
dómlega.
SÖGUR:
18 Morð úr gleymsku grafið. 12.
hluti framhaldssögu eftir
Agöthu Christie.
38 Milli vonar og ótta. 6. hluti
framhaldssögu eftir Mary
Sergeant.
44 Eg skal koma á hverjum degi.
Smásaga eftir Michael Adrian
Ponsor.
FASTIR ÞÆTTIR:
4 Eldhús Vikunnar: Sitthvað um kjöt.
14 Pósturinn.
22 Mig dreymdi.
23 Heilabrot Vikunnar.
25 Myndasögublaðið.
35 Tækni fyrir alla.
40 Stjörnuspá.
47' í næstu Viku.
51 Pop p f r æð ir i t ið: Linda Ronstadt, 2. hluti.
54 Blái fuglinn.
ÝMISLEGT:
2 Gott hár gulli betra.
Gott hár er
gulli betra
Þið skuluð ekki láta það stíga ykkur
til höfuðs, en það lítur út fyrir, að
1978 sé ár breytileikans, hvað
hártísku varðar. Það má hafa sítt,
stutt, slétt, liðað, slegið eða fléttað
hár, allt eftir því hvað ykkur sjálfum
finnst hœfa ykkur best. Ef ykkur
finnst hárið líflaust, má setja per-
manent í það, og ef þið eruð óánægð
með litinn, þá getið þið látið lita
það. Það ætti því að vera óhætt að
halda því fram, að á árinu 1978 þurfi
enginn að hafa áhyggjur, hvað hárið
snertir.
Stúlkan á þessari mynd hefur svo
þykkt og liðað hár, að engin þörf er
fyrir hana að fá sér permanent í það.
Þess i stað hefur hún látið lita nokkra
gullna lokka efst á hvirfilinn ogí
hliðarnar til að gefa því meiri fyllingu.
Þessi stúlka á náðuga ævi. Hún hefur
látið setja permanenet i hárið, og það
eina, sem hún þarf að gera eftir
hárþvott, er að hrista höfuðið örlítið,
og hárið fellur alveg eins og hún vill
hafa það.
Þessi klipping undirstrikar vel andlit
með sterka andlitsdrœtti, sem þurfa
að njóta sín. Og hún er ekki aðeins
frjálsleg, heldur einnig mjög þægileg,
hvað hárþvott snertir, því aðeins
þarf að renna fingrunum í gegnum
hárið, og þá er það orðið þurrt.
Þessi klipping er sérstaklega góð fyrir
þær, sem þurfa að vera sífellt á
ferðinni. Fíngert hárið er greitt niður
með vöngunum, á meðan það er
hlautt, og toppurinn til hliðar.