Vikan - 06.04.1978, Page 3
'
Sítt hár getur verið fallegt á að horfa,
en það getur líka orðið erfitt að
meðhöndla það. Þessi stúlka hefur
leyst þann vanda með því að láta
klippa það styttra ■ í vöngunum og á
hvirflinum, og síðan er sett per-
manent í það, þannig að allt leitar það
inn að miðju að aftan. Og það er
sama, hvað stúlkan kemur til með að
hrista sig mikið, það er öruggt, að
hárið leggst allt í sömu skorðurnar
aftur.
Þessi greiðsla er mjög hentug fyrir
þær stúlkur, sem þurfa, vegna vinnu
sinnar, að taka hárið saman. Hárið er
fléttað á meðan það er blautt, til þess
að hafa hemil á litlu hárunum, sem
alls staðar vilja stingast útúrflétt-
I unum. Þvíer skipt í fjóra hluta, og að
lokum eru flétturnar bundnar saman,
tvær og tvær.
Og hér er önnur lausn fynr pær, sem
vilja hafa síða hárið sitt snyrtilegt.
Það er tekið allt frá andlitinu, fléttað í
hliðunum og fléttunum síðan vafið
utan um taglið.
Þessi stúlka er með klippingu, sem
óneitanlega minnir nokkuð á ræfla-
rokkarana. Hún hefur látið setja létt
permanent í hárið til að gera það
líflegra, en til þess að stíllinn haldist,
þarf hún að láta snyrta það á sex til
átta vikna fresti.
Þessi frjálslega greiðsla er góð fyrir
þær, sem títið vilja hafa fyrir hárinu.
Hárið er klippt allt misjafnlega sítt og
síðan sett misjafnlega mikiðperm-
anentíþaðT. d' er toppurinn svo ti'
sléttur, en þeim mun meiri krullur eru
í vöngunum.
14. TBL. VIKAN 3