Vikan


Vikan - 06.04.1978, Qupperneq 5

Vikan - 06.04.1978, Qupperneq 5
^cjptið fyrst öðrum megin, og þegar það er hæfilega steikt, snúið því þá við. Kjötstykkjum, sem eru meira en 1,5 sm þykk, þarf þó að snúa 'nokkrum sinnum. Þunn kjötsneið gegnsteikist fljótt, en þykk sneið þarf að sjálfsögðu mun lengri tíma. Erfitt er að segja nákvæmlega til um steikingartíma einstakra kjöt- tegunda og því er best að skera örlítið í kjötið til þess að fullvissa sig um, að það sé steikt. Setjið ekki of mikið á pönnuna í einu. Það er Eldhús Vikunnar UMSJÓN: DRÖFN FARESTVEIT auðveldara að halda réttum hita á pönnunni, ef hún er ekki fyllri en sem nemur 2/3. PIPARBUFF Áætlið eina stóra, þykka sneið á mann af innri eða ytri lundum. Malið hvítan og svartan pipar (eða notið grófmalaðan pipar). Notið smjör til að steikja kjötið. Annað, sem til þarf, er 1/2 tsk. salt og u.þ.b. 1/2 dl af koníaki, sem þá sleppa, ef steikin er ekki borin logandi fram. Kjötið er barið með hnúunum, um leið og það er lagað til. Piparnum er síðan stráð yfir (u.þ.b. 30 piparkorn nægja á fjórar sneiðar). Smjörið hitað, þar til það er orðið hæfilega heitt, og buffin sett á pönnuna. Steikingartíminn er undir því kominn, hvort kjötið á að vera svo- lítið hrátt eða alveg gegnumsteikt og svo auðvitað eftir þykkt sneið- anna. Saltið ekki fyrr en buffin eru steikt öðrum megin. Koníakinu er k síðan hellt yfir og kveikt í um leið og y

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.