Vikan - 06.04.1978, Page 16
Gœsalifrar- og koníá
nautalundir innbaka
Besta mat í London fá menn sennilega í
veitingasal hins aldna og virðulega „Connaught"-
hótels við Carlos Place í Mayfair.
Good Food Guide gefur
salnum hæsta einkunn allra
veitingastaða borgarinnar.
Bæði Ronay og Michelin gefa
honum tvær stjörnur af þremur
mögulegum, og er það i báðum.
tilvikum hæsta einkun-, sem
veitingahúsi í London er gefin.
Hjá Michelin deilir Connaught
þessu viröulega sæti með
aðeins einum veitingastaö
öörum, ,,la Gavroche,” sem er
talinn sá dýrasti í London.
Vegna þessa er viðeigandi að
Ijúka á Connaught hinni miklu
ferö umhverfis jörðina í fjórtán
veislum, sem að undanförnu
hefur verið umræöuefni í
Vikunni. Við ætlum að kveðja
London meö stórveislu á
Connaught.
RAMBAÐ Á BARMI
HINS MÖGULEGA
Um leiö er veislan áningar-
staður í Frakklandi, þvi aö svo
lengi sem menn muna hefur ríkt
á Connaught frönsk elda-
mennska undir stjórn heims-
frægra, franskra matreiðslu-
manna. Nú ræður hér rík.um
Michel Bourdin, ungur,
franskur matreiöslusnillingur,
og er hann bæði nýr og ferskur
í starfi.
Hjá honum fáum viö að sjá
allt aðra hlið franskrar elda-
mennsku en við sáum fyrr í
þessari hnattferð, þegar við
sóttum heim frönsku bistróna
,,le Chef.” Á báðum stöðum er
byggt á vönduðum hráefnum.
Þar var matreiðslan einföld, en
hér er hún flókin.
Michel Bourdin eldar í anda
meistara Escoffier, frægasta
kokks veraldarsögunnar. Hann
leggur áherslu á vandasama
matargerð, þar sem rambað er
á barmi hins mögulega og hin
minnstu mistök eyðileggja
matinn. Ef hins vegar allt
lukkast vel, er árangurinn ein-
faldlega listaverk.
INN OG ÚTÚR
SAUÐARLEGGNUM_________
Frá Oxford Street má ganga
Duke Street, sem liggur til
suðurs andspænis austurhorni
Selfridge vöruhússins. Stefnt
er beint fram hjá Grosvenor
Square, þar sem nafn götunnar
breytist í Carlos Place. Þar er
Connaught á hægri hönd,
þungt og virðulegt með
breskan fána yfir dyrum. Þetta
er minna en fimm mínútna
gangur.
Hingað þýöir ekki að koma,
nema pantað hafi verið. Viö
göngum fjögur inn í anddyrið
og sjáum hinar þungu viðarinn-
réttingar. Mér dettur andartak i
hug, aö hér munum við mæta
Viktoríu Englandsdrottningu í
fullum skrúða. En anddyrið er
mannlaust og þögult.
Yfirþjónninn tók á móti okkur
í gangi veitingasalarins og
visaði okkur til sætis. Matar-
þjónn og vínþjónn færðu okkur
skrár hússins og hurfu síðan.
i Ijós kom, að hér var aö
minnsta kosti maður á mann í
SABA-SABA
Móhairgarníð vinsæla
fæst í f lestum hannyrða -
verzlunum um land allt
16 VIKAN 14. TBL.