Vikan


Vikan - 06.04.1978, Qupperneq 20

Vikan - 06.04.1978, Qupperneq 20
„Yngsti sonur þinn er ekki giftur, er það?” Frú Fane ljómaði öll. „Nei, Walter býr hér heima. Hann er dálítið viðkvæmur — og hefur alltaf verið frá því hann var bam — ég hef alltaf þurft að hugsa vel um heilsu hans. (Hann kemur rétt bráðum.) Þú getur ekki ímyndað þér, hve hugulsamur og elskulegur sonur hann er. Ég er í sannleika sagt mjög heppin að eiga slíkan son.” „Og hefur honum aldrei dottið í hug að giftast?” spurði ungfrú Marple. , .Walter segir alltaf, að hann geti ekki hugsað sér þessar ungu stúlkur nú til dags. Honum finnst þær ekki aðlaðandi. Hann og ég, við eigum svo mikið sameiginlegt, að ég er hrædd um að hann fari ekki eins oft út og æskilegt væri. Á kvöldin les hann Thackeray fyrir mig og oft spilum við. Walter kann best við sig heima.” „En hvað það er indælt,” sagði ungfrú Marple. „Hefur hann alltaf unnið á skrifstofunni? Einhver sagði mér, að þú ættir son á Ceylon, en það er kannski einhver misskiln- ingur ?” Það dimmdi aðeins yfir svip frú Fane. Hún bauð gesti sínum valhnetuköku og sagði svo: „Það var þegar hann var mjög ungur. Eittafþessumæskuglöpum. Drengi langar alltaf til að skoða sig um í heiminum. En það var reyndar stúlka, sem var orsök alls þess. Stúlkur geta verið svo óstaðfastar. ” „Já, það er alveg satt. Ég man, að frændi minn — ” Frú Fane hélt áfram og lét þetta með frænda ungfrú Marple eins og vind um eyrun þjóta. Hún var sjálf miðpunktur samræðnanna og hún naut þess að öðlast samúð vinkonu Dorothy. „Þetta var afskaplega óæskileg- ur kvenmaður — eins og oft vill verða. Ö, ég á ekki við að hún hafi. verið leikkona, eða neitt slíkt. Systir læknis hér — eða eiginlega meira eins og dóttir hans, því hún var svo miklu yngri en hann — og vesalings maðurinn hafði enga hugmynd um, hvernig hann átti að ala hana upp. Karlmenn eru nú oft svo hjálparvana, finnst þér það ekki? Hún fór alltaf sínu fram, og byrjaði á því að vera í tygjum við ungan mann á skrifstofunni — hann var ekki annað en venjulegur skrifstofumaður — og ekki beinlínis eftirsóknarverður persónuleiki heldur. Þeir urðu að láta hann fara. Hann talaði af sér um trúnaðarmál. En þessi stúlka, Helen Kennedy, var, ja ég geri ráð fyrir, að hægt sé að segja að hún hafi verið mjög lagleg. Mér fannst það ekki. Ég var alltaf viss um, að hún litaði á sér hárið. En Walter, vesalings dreng- urinn, varð ákaflega ástfanginn af henni. Eins og ég sagði, þá var hún í alla staði óæskileg, peningalaus og með ekkert slíkt í vændum, og alls ekki sú manngerð, sem ég myndi óska mér sem tengdadóttur. En hvað getur móðirin gert. Walter bað hennar og hún hryggbraut hann, og þá fékk hann þessa heimskulegu hugmynd að fara til Indlands og vinna við terækt. Maðurinn minn sagði: „Leyfðu honum að fara,” þótt hann væri auðvitað mjög vonsvikinn. Hann hafði hlakkað til að fá Walter inn í fyrirtækið og Walter var kominn með öll tilskilin embættispróf og allt slíkt. En svona fór nú samt. Það er nú meira hvað slikar konur geta skapað mikil vandræði.” „O, láttu mig þekkja það. Frændi minn — ” ru BronV j Uppl i |1H ok 22 i liorti crtjj þúr |:.n;odi Topp nu 12H.r>0 ítluga 14-lH og orta 'irrti, 5() 111 *>() fm ’-Nludyrum. 40 ■inmg 40 1 Hppl i rnynlir kr ||| .upum isl frl- merki Krim^i. jahusirt La-kjar- gólu (>. simi 11H14 Bílaviðskipti Sunbeam Imp. sendibill arg 1971 til sólu, þokkalegur bill l'ppl i sima 404.14 eftir k! 1H. Plvmoulh Belvedere arg 1HK7 iil solu Tilbort. Uppl i sima 42il(>H Chevrolel Impala arg 19K9 111 solu. Tilbort l’ppl i slma 2(K Skulagotu Uppl.1 isiptur, ástai. : ma H4230 eftir kl. > Kiat 850 speeial árg. ‘71 til sölu. góðir greirtsluskilmálar. nýupptekin vél i toppstandi IIppl i sima 74917 Einkamál l'ngur martur iskar eftir art kynnasi siulku - Ul 30 ara mert sai hafa liorn 11lliort lil 1)11 Reynsláner ótysnust Hún sýnir í hvaða blaði smáauglýsing ber mestan árangur. Hvaða ástæða önnur skyldi ráða því að smáauglýsingamagnið er alltaf mest í Dagblaðinu? Þangað leita viðskiptin. sem úrvalið er mest. Smáauglýsingar BIAÐSINS Þverholti11 sími 2 70 22 Opið til kl.10 í 20 VIKAN 14. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.