Vikan - 06.04.1978, Síða 35
w.y.y.y.y.v'y
Áður en langt um líður
mun ógnvekjandi at-
burður gerast úti í
geimnum: Skylab, hin
yfirgefna bandarfska
geimstöð, stærsta
geimskip í heimi, mun
rifna í sundur og falla
niður til jarðar.
Hiö volduga geimfar skelfur í dauðans angist!
Sólorkuspeglarnir slitna af því og brenna upp til agna.
Skrokkurinn byrjar aö gliðna í sundur, og innvolsið
í sundur.
tætist
Sérfræðingar NASA eru skelkaðir og undrandi á
þessu frumhlaupi Skylabs. Það var almennt álitið, að
geimskipið myndi halda
áfram á braut sinni um-
hverfis jörðu til ársins 1983, en nú þykir sýnt, að það
geti alveg eins stefnt til jarðar á næsta sumri.
278 KM
LENGD: 30 M
(l’SAMANBURÐI VIÐ MANN)
Skylab er stærsta geimskip á braut umhverfis jörðu.
Hin yfirgefna geimstöð vegur 85 tonn, er 6,5 m (
þvermál og 30 metra löng. Upphaflega var Skylab
440 km frá jörðu, en samkvæmt nýjustu
útreikningum er Ijóst, að stöðin getur náð gufuhvolfi
jarðar í 278 km fjarlægö innan eins árs.
Skylab er staðsett milli 50° norðlægrar breiddar og
50° suðlægrar breiddar. Það er heldur ólíklegt, að
geimstöðin brenni algjörlega upp á leið sinni til
jarðar, og sú hætta vofir yfir, aö leifar þess lendi (
Svíþjóð!
BJÖRGUNARFLAUGIN SENDIR FRÁ
SÉR GEIMSKOTFLAUG
GEIMSKOT FLAUGIN
ITENGIST
SKYLAE
SKYLAB SKOTIÐ
ÚT í GEIMINN
Þessar upplýsingar um Skylab hafa komið af stað
róttækum aðgerðum innan NASA. Fyrsta skrefið er
að reyna að ræsa eldflaugar stöðvarinnar.
Einnig verða gerðar ráðstafanir með aðstoó
björgunarflaugar. Ómönnuð, fjarstýrð geimskotflaug
verður send frá björgunarflauginni og hún tengd
Skylab. Þegar það hefur tekist, er auðvelt að beina
Skylab út ( geiminn á einhverja braut ( órafjarlægð
frá jörðu.
Texti: Anders Palm Teikn: Sune Envall