Vikan


Vikan - 27.07.1978, Blaðsíða 5

Vikan - 27.07.1978, Blaðsíða 5
11. grein ikjur í 1 rauninni er Fiskekœlderen bara kjallarinn undir kunnu veitingahúsi, sem heitir Den Gyldne Fortun. Sagt er, aö þar uppi sé í hádeginu boöiö upp á eitt glæsilegasta kalda borð Kaupmannahafnar. 1 apríl kostaði aðgangurinn aö því 75 krónur danskar eða 4000 íslenskar, en átti 4. maí aö hækka upp I 82 krónur. Einhvern tíma verð ég aö prófa það. Húsiö er greinilega merkt veitingastofunni Den Gyldne. Fortun, en Fiskekælderen er aðeins auðkenndur á hurðinni að horndyrunum, sem liggja niður I kjallarann. Á töflum beggja vegna dyranna eru þó skráð sértilboð dagsins, sem fara eftir ajlabrögðum næturinnar. LAXAFROÐA OG LÍKJÖR MIKIÐ NOTAÐ Dagprísar voru á öllum réttum matseðilsins, og voru þeir greinilega ekki gefnir. 1 for- rétt var til dæmis hægt að fá hina frægu, frönsku fisksúpu, Bouiílabaise, á 82 krónur og reyktan lax á 72 krónur. Fisk- súpan er ekki afgreidd fyrir fœrri en tvo í senn. Meðal annarra forrétta var laxafroða á 22 krónur, rækju- brauð á 26 krónur, síld á 13 krónur, þrenns konar síld á 34 krónur, gravlax á 29 krónur, laxabrauð á 38 krónur og rækju- salat á 29,50 krónur. Meðal aðalrétta var hvítvíns- soðin lúða á 48 krónur, ofn- bakaður körtufóki á 72 krónur, hvítvíns- og líkjörsoðinn laxá 72 krónur og skarkoli í laxafroðu á 51 krónu. Einnig var hægt að fá lax, sandkola ogskarkola, gufusoðna hlið við hlið íþurru amontillado- sérríi, á 68,50 krónur, blandaða sjávarrétti í riesling — hvítvíni frá Alsace á 69 krónur, djúp- steiktan humar á 62 krónur og fakaðan silung, fylltan laxa- froðu, soðinn í fólíu, á 64,50 krónur. líkjör SK ARKOLINN VAR ALDEILIS EKKIFRYSTUR Við vorum tvö og fengum okkar í annan forréttinn eina af sérgreinum hússins, svonefnt „Cassolette d’Escargots Farcies Duc de Bourgogne. ” Það reyndust vera vínakrasniglar í Iaxafroðu, bornir fram í kuðungunum. Ég tek ekki of djúpt í árina, þegar ég segi þá hafa verið æðislega góða. Hinn forrétturinn var einnig mjög góður. Það var „Marmite de Pecheur” eða sjávarrétta- súpa, ættuð frá Miðjarðar- hafinu, soðin í eldfastri leirskál. Annar aðalrétturinn var „La Cassolette des Moules Nicoice” Það var blanda af krœklingi í skelinni og skarkola, hvort tveggja gufusoðið í hvítvíni. Þetta varfrábært, enda varskar- kolinn greinilega ekki frystur, eins og of oft vill brenna við á íslenskum veitingahúsum. Frystur skarkoli verður bragð- laus. Hinn aðalrétturinn var enn betri. Það var „Le Gratin de Fruits de Mer Selon Fernand Point", fullt fat af blönduðum sjávarréttum. Þar voru lax, körtuflóki, þykkvalúra, jóm- frúrhumar og rækjur, gufusoðið með dilli, papriku, sveppum, A töflum beggja vegna dyranna niflur i Fiskekœtderen eru skráð sér- tilbofl dagsins, sem fara eftir afla- brögðum næturinnar. tómati og fleiru í NouiIIe Prat líkjör og síðan bbndað humar- súpu og kremsúpu. ÞETTA KOSTAÐI 5.400 KRÓNUR Á MANN Allur þessi góði matur var I rauninni of mikill, þótt lystin væri í besta lagi. Við lögðum því ekki í eftirrétt, en drukkum sem svarar einni flösku af hvítvíni hússins með matnum. Vínið kostaði 48 krónur, sniglarnir 38,50 krónur, sjávar- réttasúpan 36,50 krónur, kræklingurinn 46 krónur og Idag: Fiskekœlderen blönduðu sjávarréttirnir 66 krónur. Alls nam reikningurinn 237 dönskum krónum á tvo eða 5.400 krónum íslenskum á mann. Þeim, sem treysta sér til að verja miklu fé til kaupa á góðu hvítvíni með matnum, má benda á, að þarna fæst ágœtur árgangur, 1969, af Chateau Issan, sem er 3ieme Cru frá Margaux í Medoc-sveit Borde- aux-héraðs. En flaskan kostar líka 195 krónur danskar, sem þykir þar í rauninni vera hagstætt verð. Mér þætti gaman að frétta, hvort einhverjir hafa svipaða reynslu af öðru hinna tveggja fiskihúsanna í götunni. Ef svo er, þá má Kaupmannahöfn vera stolt af þessari grein á veitinga- húsameiði sínum. RÚMAR EKKIMIKINN FJÖLDA GESTA Fiskekœlderen lætur lítið yflr sér og rúmar ekki mikinn fjölda gesta. Innréttingar eru notaleg- ar, og vel menntaðir þjónarnir eru vingjarnlegir. Ég hefði gjarnan viljað snæða þar aftur þegar að kvöldi sama dags, en til j)ess var akki aðstaða, úr því að lesendur Vikunnar verða að fá að frétta af fleiri veitingahúsum í Kaup- mannahöfn. (Fiskekælderen, Ved Stranden 18, sími 12 2011). Jónas Kristjánsson í nœstu viku: Kong Hans Kælder 30. TBL.VIKAN 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.