Vikan


Vikan - 27.07.1978, Blaðsíða 16

Vikan - 27.07.1978, Blaðsíða 16
lega sögu af Donald Collicks. Þegar hann dvaldi hér kynntist hann fjölskyldu í Hafnarfirði, sem hann langaði að hitta aftur. Hann tók leigubíl og með góðri aðstoð leigubílstjórans tókst honum að finna húsið Öldugötu 4, sem hann þekkti aftur, þótt búið væri að byggja við það. Hann gekk að útidyrunum og hringdi. Til dyra kom Svanhvit Jónsdóttir og þótt mörg ár væru liðin, þá sagði hún eftir örskamma stund: Getur það verið? Er þetta Donald? Þarna urðu fagnaðarfundir og ekki síst þótti Donald gaman að hitta móður Svan- hvítar á lífi, en hún er orðin 89 ára gömul. BRÚARLAND VAR MIÐPUNKTURINN Magnús Lárusson, húsgagnasmiður, á heima að Markholti 24 í Mosfellssveit. Hann er næstelstur átta systkina, sem áttu heima á Brúarlandi í Mosfellssveit þegar herinn kom til landsins. Heimilisfólkið á Brúarlandi hafði óvenju náið samneyti við herinn, þar sem Brúarland var þá mið- punktur sveitarinnar — þar var barna- skólinn, símstöðin og samkomusalur var í kjallara hússins. Það var því eðlilegt að herinn hefði augastað á þessu húsi, þegar þeir létu sér nægja kjallarann. Yfírmennimir bjuggu um sig þar, og þeir létu hólfa leikfimi- og samkomusalinn í tvennt. Ég man eftir hvað okkur fannst skrýtið að yfirmennimir höfðu einkabílstjóra og einkaþjóna. Þeir settu strax vörð við símann. Fyrst var vörður allan sólarhringinn, en síðar var vörður á nóttunni, því þeir hafa sennilega treyst því, að ef eitthvað óvænt gerðist yfir daginn yrðu þeir látnir vita. Ég man vel eftir einum símaverði, sem hét Lesley. Hann var af frönskum ættum, skemmti- legur maður. Hann hafði stutta viðdvöl hér fyrir nokkrum árum, og datt þá í hug að Donald sagði, að hann og kona sín, hefðu boðið Svanhviti og manni hennar að koma til Englands á næsta ári og vonaðist hann til að þau myndu sjá sér fært að þiggja boðið. Eitt enn áður en við hverfum til annarra minninga frá þessum tíma. Fjórmenn- ingarnir sögðust ekki hafa fengið nein fyrir- mæli frá yfirboðurum sínum um það hvemig þeir ættu að umgangast landann. En þeir höfðu alltaf á tilfinningunni, að þar sem þeir væru hermenn, og ísland ekki aðili að stríðinu nema óbeint, þá hefðu íslend- ingar fremur kosið að fá hingað til lands Bandaríkjamenn i þeirra stað, vegna þess að þeir vom þá ekki orðnir beinir þátt- takendur i stríðinu. En svo kom árásin á Pearl Harbour, og þar með voru Banda- ríkjamenn orðnir beinir þátttakendur og íslendingar sátu enn uppi með her, sem var stríðsaðili. VAR BÚIN TIL SKÝRING? Ég velti þessari skoðun fjórmenninganna alllengi fyrir mér, og þegar litið er til baka, þá er ekki óeðlilegt að ætla, að Englend- ingar hafi ekkert verið hrifnir af því að Bandaríkjamenn næðu yfirráðum á Norður-Atlanshafinu, þó þeir væru banda- menn þeirra í stríðinu, og þessvegna hafi verið búin til viðunandi skýring handa bresku hermönnunum þegar þeir fóm héðan og Bandarikjamenn tóku við. En þetta, eins og svo margt annað sem gerðist í stríðinu, er og verður álitamál. hringja í Brúarland og spyrja eftir pabba. Hann hafði miililent hér á leið til Kanada. Pabbi sagði honum að taka leigubil, og hann kom i heimsókn í Tröllagil, en þangað fluttu foreldrar mínir árið 1949. FÖTIN BRUNNUINNI — Tjölduðu ekki hermennirnir á túninu hjá ykkur? — Jú, þegar þeir komu var búið að bera skit á öll tún og komið óvenju mikið gras miðað við árstíma, þvi vorið var hlýtt en vætusamt. Pabbi bað þá um að tjalda bara á einu túni og gerðu þeir það, en þegar yfirmaður þeirra kom, tveimur eða þremur dögum síðar, skipaði hann þeim að dreifa tjöldunum út um allt. Ég man að þeir tóku í sina vörslu sumarbústað við Álafoss og þar þvoðu þeir fötin sín. Skömmu síðar varð það óhapp, að sumarbústaðurinn brann og jafnframt brann mikið af fatnaði her- mannanna. Næstu daga sáum við her- menn skjótast milli tjalda buxnalausa, því þeir áttu ekki buxur til skiptanna! Skömmu eftir að þeir komu byrjuðu þeir að byggja bragga, og jafnframt hlóðu þeir hús úr steini. Þegar Kanadamennirnir komu byggðu þeir aftur á móti mikið hús úr timbri og er hluti þess nú íbúðarhúsið Litlaland. Nokkur steinhúsanna, sem Englendingarnir byggðu.eru að stofni til enn notuð sem íbúðarhús hér í sveitinni. Ég minnist þess hve okkur brá, þegar allt i einu voru felld öll tjöld á túninu eftir að sírena byrjaði að væla. Hermennirnir Myndin til vinstri sýrlir hvemig umhorfs var vkJ Brúariand i byrjun striðsins. Hluti af húsinu lengst til vinstri stendur enn á sama stað og heitir i dag Litla land. Það hús byggðu Kanadamenn. Hin myndin er tekin af pallinum ó Brúarlandi, fremst er hænsnakofi, en bakvið hann er rafstöð, verslun og tómstundabraggi. Nú sjást svo til engin ummerki um þessa byggð. hann kom hingað fyrst og tók að svipast um | eftir húsnæði til bráðabirgða. Húsráðendur á Brúarlandi i þann tið voru Lárus Halldórsson, skólastjóri, og Kristin Magnúsdóttir, en þau eru nú bæði látin. — Hvað varstu gamall, Magnús, þegar herinn kom, og hvað er þér minnisstæðast frá fyrstu dögum hernámsins? — Ég var 14 ára þegar herinn kom i maí 1940. Ég man ekki nákvæmlega daginn, sem herinn settist að í Mosfellssveit, en það var nokkrum dögum eftir að herinn kom til Reykjavikur. Þegar fyrstu hermennirnir komu hingað í sveitina var ég að vinna í garðyrkjunni á Reykjum og fór hjólandi úr og í vinnu. Þegar ég kom heim eitt kvöldið, í mígandi rigningu, var fullt af hermönnum á hlaðinu heima. Þegar ég tók beygjuna inn um hliðið heim á hlað var ég nærri búinn að hjóla á varðmann, sem var búinn að taka sér þar stöðu. Ég hrökk óskaplega við, eins og nærri má geta. Reyndar var ég búinn að sjá hermenn áður, því þeir komu heim og mældu húsið hátt og lágt til að finna út hvað þeir gætu komið fyrir þar mörgum rúmum. Sennilega hefur verið ætlun þeirra að leggja undir sig allt húsið, en 16 VIKAN 30. TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.