Vikan - 27.07.1978, Qupperneq 7
er blaðið ekki stórt ennþá, svo
þetta verður að bíða.
Það eru skiptar skoðanir um
myndasögurnar. Sumir vilja
hafa þær, sumir sleppa þeim og
allt þar á milli. Eins vonum við,
að þú munir fylgjast með
þáttunum „Vikan á neytenda-
markaði” og „Vikan kynnir.”
Þar erum við að vekja athygli á
„þessu og hinu og svoleiðis.”
Ritstj.
Hann bannar
mér
að skrifa sér
Kæri Póstur!
Ég er að passa í Eyjum, en
ég er með strák, sem er í
Reykjavík. Hann er búinn að
banna mér að skrifa sér! Hvað
get ég gert? Fundið annan í
Eyjum? Vonandi svararðu mér.
En passa saman meyjarstrákur
og tvíburastelpa? Hvað er
happatala mín og litur og hvað
ér ég gömul? Hvernig er
skriftin. (Afsakaðu staf
setninguna). Kær kveðja.
H.B.M.
Já, blessuð finndu þér hressan
Eyjapeyja, þeir eru mun
skemmtilegri en Reykjavíkur-
strákarnir. Þú ætlar þó ekki að
fara að eyða sumrinu í sorg og
sút, bara af þvi að einhver piltur
vill þig ekki? Meyjarstrákur og
tvíburastelpa eiga vel saman.
Þau skilja hvort annað af eðlis-
ávísun, jafnvel þótt þeim sýnist
stundum sitt hvoru. Þú verður
að gefa mér upp fæðingardag
þinn, svo ég geti sagt þér happa-
tölu og lit. Þú ert varla meira
en 12 ára. Skriftin er sæmileg,
en bréfið þitt var fremur
sóðalegt.
Ég vil hann, en
hann vill vinkonu
mína
Kæri Póstur!
Við erum hér tvær vinkonur
úti á landi, sem höfum aldrei
skrifað áður, og vonumst eftir
svari. Þannig er mál með vexti,
að ég er hrifin af strák, en
hann vill ekki byrja með mér,
fiskar og steingeit átt prýðilega
við hana. Ljónsstrákur á best
við hrútsstelpuna. Skriftin ber
vott um létt lundarfar og gáfur í
ríkum mæli, og ég held þið séuð
15 ára. Skriftin og stafsetningin
er hvort tveggja í besta lagi.
Pennavinir í
Færeyjum
Kæri Póstur!
Við erum hér tvær vinkonur,
sem langar að biðja þig að
segja okkur frá einhverju blaði
í Fœreyjum, því okkur langar
að eignast pennavini þar. Það
þýðir ekki að segja okkur að
skrifa pennavinaklúbbnum í
Finnlandi, því þeir hafa ekki
pennavini frá Færeyjum.
Pennavinir
Hér eru heimilisföng tveggja
blaða í Færeyjum, sem ég vona
að geti aðstoðað ykkur: Dim-
malætting, Thorshavn,
Fæoerne, og 14. September,
Thorshavn, Færoerne.
því hann er hrifinn af vinkonu
minni, en hún vill hann ekki.
Við erum góðir vinir, en ég get
ekki hætt að hugsa um hann.
Hvað getum við gert? Hvaða
merki eiga best við Ijón (kvk) og '
hrút (kvk)? Hvað lestu úr
skriftinni og hvað heldurðu að
við séum gamlar? Hvernig er
skriftin? En stafsetningin?
Tvær forvitnar.
Hvað getið þið gert??? Einfald-
lega ekki neitt. Þú þarft ekki að
hætta að hugsa um piltinn, er
ekki ágætt meðan þið eruð góðir
vinir? Hrútsstrákur á langbest
við ljónsstelpuna, en einnig geta
Ný þjónustumiðstöð
KASK
SKAFTAFELLI
í versluninni:
Allar nauðsynlegar nptvörur,
búsáhöld og vefnaðarvara
miðuð við þarfir ferðamanna.
í veitingastofunni:
Heitur matur og grillréttir.
Opið frá kl. 9 til 23 alla daga.
Þjónustumiöstöö:
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga
Þjóögarðinum SKAFTAFELLI
30. TBL.VIKAN 7