Vikan


Vikan - 27.07.1978, Qupperneq 37

Vikan - 27.07.1978, Qupperneq 37
sannfærð um, að í kastalanum væri að finna svarið við öllum spurningum og efasemdum, sem höfðu kvalið hana siðustu mánuði. Ég verð að komast í kastalann, hugsaði hún. Einhvern veginn. Bráðum. Ég ætla að minnast á það við Torquil. Hún var í þann veginn að snúa sér undan, þegar hún hafði tekið þessa ákvörðun, en er hún leit á kastalann í síðasta sinn sá hún mannveru, örsmáa vegna fjarlægðarinnar, og sem stóð hættulega nærri brúninni á hálfhrund- um veggnum. Hún saup hveljur af hryllingi, og snéri sér að manninum við hlið sér og greip i handlegg hans. „Líttu þama upp!” Rödd hennar var hás. „Hún hlýtur að detta. Við verðum að gera eitthvað. Hvað getur hún verið að gera þarna?” Hún hristi handlegg granna síns og snéri sér í sama mund tryllingslega að stýrimanninum. Hann varð að snúa bátnum — það var að verða hræðilegt slys — þau urðu að hjálpa — reyna að koma i veg fyrir það. En þá gerðist hið hræðilega óum- flýjanlega atvik. Litla veran á veggnum steyptist fram fyrir sig og hrapaði niður með löngu, kveinandi ópi, niður í gegnum loftið, snérist og endaventist, máttvana eins og tuskudúkka, og skall í öldurötið fyrir neðan Isabel greip höndunum fyrir andlit sér og veinaði... „Sjáðu, hún er að opna augun.” Isabel rankaði við sér með höfuðið á þægilegri öxl feitu konunnar, trygginga- salann fyrir framan sig veifandi einum bæklingnum sinum og kjúklinga- manninn að hella viskísnapsi i tappann af vasapelanum sínum handa henni. „Drekktu þetta," sagði hann. „Læknar alla hræðslu á svipstundu.” Isabel starði á stýrimanninn og síðan á feitu konuna. „Hvers vegna snúum við ekki við?” spurði hún. „Við ættum aðsækja hjálp. Lögreglan.” Feita konan og kjúklingamaðurinn HLUTI litu hvort á annað, en tryggingasalinn ræskti sig. Það varð stutt þögn. „Þess þarf ekki,” sagði feita konan loks. „Hvað áttu við með að þess þurfi ekki?” Það lá við, að Isabel hrópaði orð sin. „Stúlkan féll niður — „Nei vinan,” sagði feita konan blíðlega en ákveðin. „Það var enginn þarna. Þegar þú bentir, litum við öll þangað, og þar var engan að sjá. Alls engan.” Isabel hallaði sér aftur, og drakk viskiið ósjálfrátt. Róandi vökvinn hressti hana svolítið við. „Ég skil þetta ekki,” sagði hún loks. Feita konan klappaði á hönd hennar. „Þetta var ekkert. Bara sjónhverfing i ljósaskiptunum. Eða ímyndunaraflið að leika sérað þér.” „En þetta var svo raunverulegt. Ég hefði getað svarið, að þetta gerðist,” sagði Isabel. Tryggingasalinn horfði þungbúinn á hana um stund. „Það gerðist,” sagði hann eftir nokkru stund. Feita konan stirðnaði upp og leit aðvarandiá hann. „Nei, þegiðu, Dougie,” sagði hún ásakandi, en maðurinn virtist ekki taka eftirþví. „Það var einu sinni stúlka, sem féll þarna niður og drukknaði, vesalings skinnið,” sagði hann. „Nú er nóg komið!” sagði konan hvasst, og i þetta sinn leit maðurinn upp og mætti augnaráði henni. Isabel fann, að á milli þeirra fóru þögul skilaboð. Svo lyfti tryggingasalinn brúnum, yppti öxlum og hélt áfram með breyttri og jarðneskari röddu. „En það var allt fyrir langa löngu, fyrirævalöngu.” Isabel tók eftir þvi, að félagar hennar þrír slökuðu nú á, eins og hætta, sem naumlega hafði verið komist hjá, væri loksliðin. Upp um hvaða leyndarmá! hafði tryggingasalinn næstum því komið? Hvers vegna hafði feita konan þaggað svona ákveðið niðri í honum? Hana langaði að spyrja, en hún þorði því ekki. „Ég skil þetta ekki,” sagði hún aftur. „Aye, nú, jæja, hver getur skýrt slíkt,” sagði kjúklingamaðurinn og stakk flöskunni aftur í vasann. „Kannski hefurðu sjónina!” Hann brosti glaðlega við Isabel. „Þú gætir orðið góð, ef þú æfir þig, og þá gætum við öll leitað til þín með ástamál okkar. Þúgætir orðiðfræg!” Isabel hló titrandi hlátri. 30. TBL.VIKAN 37

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.